Fréttablaðið - 07.09.2010, Síða 25
tómstundir og útivist ● fréttablaðið ●ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2010 5
● ELSTI TRIMMKLÚBBUR LANDSINS Trimm-
klúbbur Seltjarnarness, TKS, hittist þrisvar í viku árið um
kring í anddyri Sundlaugar Seltjarnarness, á mánu- og
miðvikudögum klukkan 17.30 og á laugardögum klukk-
an 9.30. Hitað er upp með þjálfara, síðan gengið, skokk-
að og hjólað mislangt, eftir áhuga og getu hvers og eins.
Yfirleitt er hlaupið út með sjó og mislangt inn í Reykjavík.
Að svo búnu er endað á teygjum og stundum styrktaræf-
ingum og farið í heita pottinn í Sundlaug Seltjarnaness.
Klúbburinn var stofnaður árið 1985 og hefur markmið-
ið frá upphafi verið að gleðjast saman. Seltjarnarnesbær
leggur til þjálfara en félagar greiða 2.000 króna árgjald
sem notað er til að halda uppi félagslífinu. Dagskrá TKS
liggur frammi í sundlauginni. Nánar á www.tks.is.
● VEFSÍÐA UM ÍS-
LENSK FRÍMERKI
Frímerkjasöfnun hefur lengi
verið stunduð meðal áhuga-
manna, bæði á Íslandi og um
víða veröld. Íslandspóstur held-
ur úti skemmtilegri síðu www.
stamps.is sem skoða má á fimm
tungumálum, íslensku, dönsku,
ensku, þýsku og frönsku.
Þar kemur til dæmis fram að
Frímerkjasala Íslandspósts tekur
þátt í nokkrum frímerkjasýning-
um í haust. Til dæmis:
Svíþjóð: Skaneland 2010,
Kristianstad 17.-19. september.
Þýskaland: Alþjóðleg
frímerkjasýning, Sindelfingen
29.-31. október.
Danmörk: Forum 2010, Hró-
arskelda 5.-7. nóvember.
Frakkland: Salon d‘automne,
París 4.-7. nóvember.
Á vefsíðunni má meðal ann-
ars nálgast nýjustu frímerkja-
fréttirnar en nýjustu frímerki
Íslandspósts eru af Vífilsstaða-
spítala sem er hundrað ára í ár,
eldsumbrotum í Eyjafjallajökli
og á Fimmvörðuhálsi, fyrstu
gasljósunum í Reykjavík og frí-
merki í tilefni af Ólympíuleikum
ungmenna í Singapúr.
● KNAPAMERKI FYRIR
HESTAMENN AÐ
HAUSTI Hestamenn hafa
lítið getað hreyft hesta sína frá
því í vor vegna hestaflensu. Í
venjulegu árferði væru hestar í
hvíld nú, á leið í hausthaga, en
Hestamannafélagið Fákur hefur
ákveðið að bjóða upp á svoköll-
uð knapamerkjanámskeið eitt
og tvö nú í september ef næg
þátttaka fæst.
Námskeiðin yrðu þrisvar
í viku og því mun hraðari
kennsla en venjulega. Þetta er
tilvalið tækifæri fyrir hestamenn
að vinna upp tapaðan tíma og
nýta haustið til lærdóms og
þjálfunar.
Nánari upplýsingar er að
finna á www.fakur.is.
Bæði námskeiðin hefjast 13. september
Fyrirlestur 11. september
Verð kr. 34.900
Skráning er hafin í síma 444-5090
eða nordicaspa@nordicaspa.is
Fimm tímar í viku – hreinsun, liðleiki og styrkur
3 tímar – jóga, liðleiki og öndun
2 tímar – léttar styrktaræfingar í tækjasal
Tímar: 6:35 og 17:20 mán/mið/fös.
Þjálfari er Sigríður Guðjohnsen
NORDICASPA
28 daga
hreinsun
með mataræði
og hreyfingu
WWW.NORDICASPA.IS
Hjá okkur nærðu árangri!
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Lúxusnámskeið
NORDICASPA
fyrir konur og karla
4 vikna
Á námskeiðinu hreinsum við líkamann af
óæskilegum eiturefnum, aukum getu hans til að
vinna rétt úr fæðunni, aukum liðleika og styrk og
komum þér af stað í nýjan lífsstíl!
Ertu að glíma við:
Mataróþol
Matarfíkn og sykurlöngun
Maga- og ristilvandamál
Verki og bólgur í liðum
Streitu, þreytu og svefnleysi
Þunglyndi
Aðra lífsstílssjúkdóma Nýtt námskeið