Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 10. september 2010 11 NEYTENDAMÁL Fleiri ósáttir Land Cruiser-eigendur hafa komið fram í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðs- ins í gær um meinta galla í Land Cruiser 120 bifreiðum. Þar sagði Aubert Högnason frá samskipt- um sínum við Toyota á Íslandi varðandi meintan galla í spíssum bílanna. Vildi hann meina að um þekktan galla væri að ræða sem gæti valdið eigendum miklum fjár- útlátum. Talsmaður Toyota vísaði þessum ásökunum á bug og sagði að um einangruð tilfelli væri að ræða en ekki þekktan galla. Ekki væri því ástæða til innköllunar, en sú ákvörðun væri á hendi Toyota erlendis. Bárður Ragnarsson, sem á 2005 árgerð af Land Cruiser 120, hafði samband við ritstjórn og hafði svipaða sögu að segja þar sem bif- reið hans bilaði fyrir skemmstu. „Ég fór að heyra glamur og ein- hver skot í vélinni þannig að ég fór með bílinn í skoðun á Toyota-verk- stæði í Kópavoginum. Þar sögðu þeir mér að grófsigtið í olíupönn- unni væri ónýtt og spíssarnir bil- aðir.“ Bárður greiddi 402 þúsund krón- ur fyrir viðgerðina þar sem skipt var um spíssa og grófsíu. Hann segist hafa haft samband við Toy- ota og viljað fá bilunina viður- kennda sem galla og viðgerðar- kostnað endurgreiddan. Hann fékk hins vegar þau svör að þó að Toyota á Íslandi hafi áður séð bilun sem þessa, sé hún ekki algild og ekki hægt að segja að um galla sé að ræða. Líklegra sé að aldri og notkun bifreiðarinnar sé um að kenna, og sat Bárður því uppi með kostnaðinn. - þj Fréttablaðinu hafa borist fleiri sögur um meintan galla í Land Cruiser120 bílum frá Toyota: Greiddi 400 þúsund fyrir viðgerð á spíssum LAND CRUISER 120 Fleiri eigendur Land Cruiser 120 vilja meina að um galla sé að ræða. LÖGREGLUMÁL Lögreglunni í Vest- mannaeyjum var nýverið til- kynnt um að unglingadrykkja færi fram í heimahúsi þar í bæ. Er lögregla kom á staðinn var þar fyrir nokkur fjöldi ungmenna og reyndust tveir drengir á sautj- ánda ári vera undir áhrifum áfengis. Var drengjunum ekið til síns heima og rætt við foreldra þeirra. Lögreglan vill af þessu tilefni hvetja fólk til að tilkynna verði það vart við svokölluð „unglingapartí“ þar sem áfengis- neysla fer fram. - jss Tveir sextán ára keyrðir heim: Unglingadrykkja stöðvuð í Eyjum HEILBRIGÐISMÁL Björn Zoëga, starf- andi forstjóri Landspítala, hefur verið skipaður forstjóri spítal- ans frá og með 1. október næst- komandi. Guðbjartur Hannesson, heilbrigðis- og félags- og trygg- ingamálaráðherra, tilkynnti um þessa ákvörðun sína í gær og var tilkynning um þetta birt á heima- síðu ráðuneytisins. Alls sóttu sex manns um starf forstjóra þegar það var auglýst í júlí. Hæfni umsækjenda var metin af þriggja manna nefnd sem skip- uð er af heilbrigðisráðherra. Björn er skipaður forstjóri Landspítala til fimm ára frá og með 1. október 2010. Björn tekur við starfinu af Huldu Gunnlaugsdóttur. Hún var ráðin forstjóri Landspítalans frá 1. september 2008, en fékk leyfi frá störfum til eins árs frá og með 1. október 2009. Björn hefur gegnt starfi forstjóra í fjarveru Huldu. Hún sagði starfi sínu lausu í júlí síðastliðnum. Breytingar í heilbrigðismálum: Björn ráðinn forstjóri LSH Miklu hraðara Internet Nú býður Síminn viðskiptavinum sínum upp á enn meiri hraða en áður á Internetinu. Hraðinn í Grunnáskrift, Leið 1 og Leið 2 fer upp í allt að 12 Mb/s. Núverandi viðskiptavinir fá sjálfvirka uppfærslu á næstu mánuðum. Það erFáðu þér Internet Símans í síma 800 7000 eða á siminn.is. NOREGUR Lögmaður Arne Tre- holt, sem dæmdur var fyrir njósn- ir fyrir Sovétríkin, vill að málið verði tekið fyrir að nýju vegna nýrra upplýsinga. Í nýrri bók er því haldið fram að norska lögregl- an hafi falsað sönnunargögn í málinu, meðal annars ljós- myndir. Bókin heitir „Forfalksningen – Politiets løgn í Treholt-saken“, eða „Fölsunin – lygi lögreglunn- ar í Treholt-málinu“. Geir Selvik Malthe-Sørenssen, sem skrifar bókina ásamt blaða- manninum Kjetil Botelid Mæland, bendir meðal annars á ljósmyndir af skjalatösku með peningaseðlum, sem lögreglan segir að hafi fund- ist í íbúð Treholts í ágústmánuði árið 1983. Á myndunum er límbandsbútur á læsingu töskunnar, en á ljósmynd sem tekin var af Treholt með tösk- una rétt áður en hann var handtek- inn í janúar árið eftir sést ekkert límband á læsingunni. Treholt er nú 67 ára. Hann hefur sjálfur viðurkennt að hafa gert alvarleg mistök í starfi sínu hjá utanríkisráðuneytinu, en hefur jafnan neitað öllum ásökunum um njósnir. Hann hefur tvisvar reynt að fá málið endurupptekið, fyrst 1986 og síðan 1990. Hann segir upplýsingarnar í bók þeirra Malthe-Sørenssens og Mælands vera sannfærandi. Treholt var háttsettur starfs- maður í norska utanríkisráðu- neytinu þegar hann var handtek- inn í janúar árið 1984, sakaður um að hafa veitt sovéskum njósn- urum upplýsingar sem áttu að fara leynt. Hann hlaut 20 ára fangelsisdóm árið 1985, en var náðaður árið 1992 af heilsufarsástæðum. Dómsmálið er hið þekktasta í sögu Noregs. Leyniþjónusta norsku lögregl- unnar lítur svo á að máli Tre- holts sé formlega lokið, og birti nú í sumar af því tilefni nokkrar ljósmyndir tengdar málinu sem ekki hafa verið gerðar opinber- ar áður. - gb Kröfur um að mál Arne Treholt verði tekið upp að nýju eftir útkomu bókar með nýjum upplýsingum: Lögregla sögð hafa falsað sönnunargögn ARNE TREHOLT TREHOLT OG NJÓSNARARNIR Á götuhorni í Ósló árið 1983 ásamt tveimur rússnesk- um KGB-mönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.