Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 10. september 2010 3
Valentino mun leggja Gap til ítalskt
og íðilfagurt innsæi sitt í vetur með
því að hanna fyrir keðjuna kvenfata-
línu á sanngjörnu verði. Þessar frétt-
ir koma strax í kjölfar tilkynningar um
að Lanvin hafi ákveðið samstarf við
H&M, en tónar vel við það trend ofur-
hönnuða nú að sameina lúxushönn-
un sína við götutísku og
grunnfatnað.
Valentino-lína Gap
verður fyrst sett fram í
nýrri Gap-búð Míl-
anó-borgar í lok
nóvember, nokkru
áður en varan fæst
í Colette í París,
á Dover Street
Market eða í
Gap-búðinni í
Lundúnum.
Hönnuðirnir
Maria Grazia Chiui
og Pier Paolo
Piccioli hanna
Gap-línu Valentin-
os, en áður hefur Gap
unnið með Pierre Hardy
í fyrra og Stellu McCartn-
ey að fádæma vinsælli
barnafatalínu. - þlg
Valentino stígur í
vænginn við Gap
HEIMSFRÆGT TÍSKUMERKI MUN FÁST Í
ALÞÝÐLEGRI VERSLANAKEÐJU.
Hinn þrettán ára tískubloggari
Tavi Levinson verður stjörnum til
halds og trausts á tískuvikunni í
New York sem er að hefjast.
Tavi hefur vakið mikla athygli frá
því hún byrjaði að blogga um tísku
fyrir tveimur árum, þá aðeins ell-
efu ára. Hún heldur úti síðunni
Style Rookie og þykir vera ótrú-
lega næm á nýjustu strauma og
stefnur í tískunni.
Þrátt fyrir að hún sjálf líti út eins
og lítil gömul kona, og hafi jafnvel
litað hár sitt grátt, hafa menn trú
á þessari tískupísl. Þannig hefur
hún hannað stuttermaboli í sam-
starfi við bolaframleiðandann Bor-
ders&Frontiers.
Nýjustu fréttir herma að Tavi
hafi fengið nýtt hlutverk á tísku-
vikunni í New York sem er að hefj-
ast. Í fyrra sat hún á fremsta bekk
við hlið heimsfrægra hönnuða, í ár
mun hún takan virkan þátt. Sögur
herma að hún muni stílisera stjörn-
ur sem koma fram á sýningu Alice
+ Olivia. Þeirra á meðal eru söng-
konan Amanda Blank og tónlistar-
dúettinn The Pierces. - sg
Tavi hjálpar stjörn-
unum baksviðs
Tavi stíliserar stjörnur sem koma fram á einni af tískusýningum tískuvikunnar í New
York.
Tískukóngurinn Karl Lagerfeld
kemur öllum á óvart rétt fyrir
tískuvikuna í París.
Þeir sem beðið hafa með óþreyju
eftir að sjá samnefnda línu Karls
Lagerfeld á tískuvikunni í París í
byrjun október verða að bíða enn
því tískukóngurinn hefur afboðað
komu sína á pallana. Ástæðan? Jú,
hann hefur einsett sér að vinna að
nýrri og aðgengilegri fatalínu.
Kvisast hefur út að hin fína
Karl Lagerfeld-lína muni fram-
vegis verða hefðbundnari og laus
við heimskunn áhrif hans sjálfs
að mestu. Í staðinn áformar hann
að kynna tískulínu sem sameinar
orðstír hans og fjöldaframleiddrar
tískuvöru, og selja á netinu. Vinna
við þá línu er þegar langt komin og
verður sýnd undir nýju nafni fyrir
haust og vetur 2011.
Þetta þykja dásamleg tíðindi
því með þessum viðsnúningi færir
einn mesti snillingur tískuheims-
ins sig inn á almennan markað þar
sem almúginn ætti að geta keypt
sér spjarir með hans merki.
Karl hyggst þó samt verja heið-
ur sinn á tískuvikunni í París
því fyrir utan smotterí sem hann
hannar fyrir Chanel, ætlar hann
að frumsýna töskulínu sem hann
hannaði fyrir Hogan. - þlg
Lagerfeld hannar
fyrir almúgann
Þýski hönnuðurinn Karl Lagerfeld, hér
með fyrirsætu sem sýndi hönnun hans
fyrir Chanel í París 2007.
Unglingamenningin náði yfirhöndinni á sjöunda áratugnum og hafði
áhrif á alla tískuhönnun. Hinn nýi markhópur vildi fatnað sem hægt
var að kaupa á verði sem var í samræmi við venjulegar tekjur.
Fatnaður og fylgihlutir hippatískunnar urðu að nýjum tískuvörum
sem hægt var að kaupa ódýrt í vöruhúsum.
Tíska aldanna