Fréttablaðið - 10.09.2010, Side 32
6 föstudagur 10. september
Á næstu vikum munu
mörg ný andlit skjóta
upp kollinum í þeim
mörgu íslensku bíó-
myndum sem verða
frumsýndar á næstunni.
Á meðal þeirra er andlit
Hallfríðar Þóru
Tryggvadóttur, sem
leikur eitt aðalhlutverk-
anna í Sumarlandi Gríms
Hákonarsonar sem
verður frumsýnt næsta
föstudag.
Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir
Myndir: Stefán Karlsson
H
a l l f r í ð u r Þ ó r a
Tryggvadóttir er
ekki nema tvítug
en hefur þó látið
að sér kveða í leik,
söng og dansi frá blautu barns-
beini. Í Sumarlandinu, fyrstu
kvikmynd leikstjórans Gríms
Hákonarsonar í fullri lengd, leik-
ur hún átján ára stelpu, sem býr
við nokkuð sérstakar aðstæður.
„Ég leik dóttur Ólafíu Hrannar
Jónsdóttur og Kjartans Guðjóns-
sonar. Persónan sem Ólafía leikur
er þekktur miðill og mjög sérstök,
á meðan karakterinn hans Kjart-
ans er svakalegur bissnesskall
og alltaf að hugsa um að græða
peninga. Hann rekur draugasafn
í húsinu okkar. Svo er bróðir minn
skyggn þar að auki. Ég leik stelp-
una sem hefur alltaf verið dálít-
ið nörd, sennilega strítt í skóla og
svona, en langar ekkert meira en
að vera bara eðlileg stelpa.“
HEFUR EKKI SÉÐ MYNDINA
Í myndinni kynnist stelpan strák,
sem leikinn er af Snorra Engil-
bertssyni. Sá á eftir að breyta lífi
hennar töluvert. „Ég held ég megi
nú ekki segja neitt of mikið um
þetta. En hann er nokkrum árum
eldri en ég, algjör töffari, trúir
ekki á neitt, býr í holu, gengur
um í síðum leðurjakka og hefur
lifað lífinu! Og ég verð náttúru-
lega dálítið skotin í honum …“
Myndin var tekin upp sumarið
2009, svo það er nokkuð um liðið
síðan Hallfríður var alfarið með
hugann við hana. Hún er orðin
ansi spennt fyrir frumsýning-
unni næsta föstudag. „Ég hef ekki
séð myndina í heild. Bara mínútu
hér og þar. Hún lítur svakalega vel
út og ég hlakka mikið til að sjá
hana.“
DRAUMURINN AÐ RÆTAST
En hvernig kom það til að Hallfríð-
ur landaði hlutverkinu? „Grímur
var víst búinn að leita og leita að
stelpu í þetta hlutverk. Svo hafði
hann samband við Ólaf S.K. Þor-
valdz, sem leikstýrði mér í Nem-
endamótssýningunni Stardust.
Þar lék ég reyndar úlf! En hann
benti á mig og fleiri stelpur sem
hann hafði leikstýrt. Ég fór í prufu
og fékk svo hlutverkið.“
Hún var ekki lítið ánægð með
það, því innst inni hafði hana allt-
af langað til að verða leikkona – þó
hún sé reyndar ekki alveg tilbúin
að kalla sig sjálfa því nafni enn
þá. „Mér finnst skrýtið að heyra
fólk segja við mig að ég sé leik-
kona,“ segir hún. „En mig hefur
alltaf langað til að verða leikkona
en hafði eiginlega aldrei trú á því
að ég gæti orðið það. Þegar ég var
sjö ára ætlaði ég að verða fræg
söngkona og ofurfyrirsæta. Mig
langaði líka að segja leikkona, en
fannst það samt of fjarlægt til að
vera að tala um það!“
GÓÐUR TÍMI Í VERZLÓ
Úlfshlutverkið í Stardust-sýn-
ingunni er langt frá því að vera
það eina sem Hallfríður tók að
sér á Verzló-árunum, en hún tók
líka þátt í leiksýningum Lista-
félagsins. Á síðasta árinu sínu
þar var hún formaður þess fé-
lags, sem sér meðal annars um
að setja upp aðrar leiksýning-
ar en Nemendamótssýninguna.
„Ég eyddi öllu míni lífi í Lista-
félagið síðasta árið mitt í skól-
anum. Við settum meðal ann-
ars upp leikritið Poppkorn eftir
Ben Elton. Forvarnafulltrúunum
í Verzló brá dálítið í brún þegar
þeir fréttu af því. Það fjallar um
fjöldamorðingja og snýst meðal
annars um kynlíf og ofbeldi,“
segir Hallfríður og hlær. Það er
greinilegt á henni að hún lét
sér ekki leiðast á menntaskóla-
árunum. „Þetta var æðislegur
tími. Ég er mjög aktív manneskja
og stór ástæða fyrir því að ég fór
í Verzló var að ég vissi að félags-
lífið væri svo gott þar. Mér finnst
líka rosalega gott að hafa farið á
hagfræðibraut. Ég lærði heilmik-
ið um hvernig þjóðfélagið virk-
ar. Ég held að hagfræðin nýtist
manni alltaf, því það eru við-
skipti í öllu sem maður gerir.“
KOMIN Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hallfríður útskrifaðist úr Verzló
síðastliðið vor og er nú komin í
Háskóla Íslands, þar sem hún
ætlar að læra bókmenntafræði
fram að áramótum. „Ég hef mjög
mikinn áhuga á leiklistarsögunni.
Ég er í tveimur leikritaáföngum
núna og líka í nútímalistasögu.
Ég er eiginlega bara að taka kúrsa
sem ég hef áhuga á. Í menntaskóla
hefur maður ekki nægan tíma til
að rækta vel það sem maður vill
gera. Ef ég mun starfa sem leik-
kona í framtíðinni finnst mér ég
þurfa að hafa einhvern fræðilegan
bakgrunn að byggja á.“
Á LEIÐINNI ÚR LANDI
Samhliða náminu er Hallfríður
að vinna hjá Spúútnik, þar sem
hún svalar áhuga sínum á tísku.
Og ekki nóg með það, þá er hún
nýbúin að stofna hljómsveit með
hópi vina sinna. „Við erum meðal
annars með blásara en tónlistin
verður samt rafskotin líka,“ segir
Hallfríður, sem að sjálfsögðu verð-
ur söngkona, enda liðtæk á því
sviði ekki síður en í leiklistinni.
Hún hefur meðal annars lært
djasssöng og klassískan einsöng
og var í þriðja sæti í Söngkeppni
framhaldsskólanna nú síðast.
Eftir áramótin ætlar Hallfríður
að taka sér pásu frá öllu saman
og flytja af landi brott. „Ég er ekki
búin að ákveða enn þá hvert ég
fer en New York heillar mikið. Ég
ætla að fara á leiklistarnámskeið
og gera allt sem mig langar til að
gera!“
SKRÝTNA STELPAN
SEM VILL VERÐA EÐLILEG
Tískuhönnuðum hefur oft verið legið á hálsi fyrir æskudýrkun í vali
sínu á fyrirsætum. Þeir virðast undanfarið hafa tekið sig á í þeim
efnum enda dæmi um að aðalfyrirsætur á tískupöllum hafi verið á
virðulegum aldri.
Þannig má nefna Stellu Tennant 39 ára, Kirsty Hume 35, Kristen
McMenamy 45 ára og Elle Macpherson sem orðin er 47 ára. Þær
komu allar fram á svölum tískusýningum á borð við Louis Vuitt-
on, Calvin Klein og Marc Jacobs. Tímaritið Dazed & Confused var
með McMenamy á forsíðunni í ágúst og tímaritið 10 tileinkar allt
septemberhefti sitt hinni 33 ára Guinevere Van Seenus.
Þroskaðar Hollywoodleikkonur eru einnig vinsælar á forsíður
helstu tískublaðanna. Þannig er Julia Roberts 42 framan á Elle,
Halle Berry 44 framan á bandaríska Vogue og Jennifer Aniston 41
á forsíðu bandaríska Harper‘s Bazaar.
Auglýsendur eru heldur ekki fráhverfir eldri fyrirsætum. Christy
Turlington 41 auglýsir fyrir Louis Vuitton, Stella Tennant fyrir Bal-
enciaga og Calvin Klein og hin síunga Madonna 52 ára, kemur
fram í auglýsingum Dolce & Gabbana. - sg
FYRIRSÆTUR Í ELDRI KANTINUM OG ÞROSKAÐAR
Reynsluboltar f
Full búð
af sjúúúkum
haustvörum,
endilega kíkið
til okkar.
Þökkum frábærar móttökur í nýja
húsnæðinu okkar í Síðumúla 3.