Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 39

Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 39
FÖSTUDAGUR 10. september 2010 5 „Ferðina förum við til að kynna okkur hvað sé í pípunum í orku- geiranum, því það vill fólk vita. Lítið sem ekkert hefur verið kynnt um áform virkjana í Skaftá og Hólmsá og markmið að fólk átti sig á hvað menn hafa þar í huga, hvernig svæðið lítur út, hvern- ig virkjanatilhögun er, hvað fer undir lón og hvaða áhrif virkjan- irnar hafa,“ segir Sigmundur Ein- arsson jarðfræðingur sem verð- ur leiðsögumaður í vettvangsferð Landverndar, Náttúruverndarsam- taka Íslands og Græna netsins um eitt magnaðasta eldsumbrotasvæði veraldarsögunnar, Skaftárhrepp og nærsveitir um helgina. „Við leggum af stað frá BSÍ klukkan 9 í fyrramálið og gerum ráð fyrir að koma heim klukkan 20 á sunnudagskvöld. Gisting verður í svefnpokaplássi í Hólaskjóli sem er fjallaskáli skammt frá Eldgjá og þar bjóðum við upp á ilmandi kjötsúpu og eftirrétt,“ segir Sig- mundur sem ætlar með ferðafólk sitt um ægifagra náttúru. „Á leiðinni fjalla ég um orku- vinnslu á Hellisheiði og eldgosið í Eyjafjallajökli, og í Mýrdalnum fer ég með fróðleik um Kötluhlaup og áhrif þeirra. Úr Skaftártungu ökum við að Hólmsárfossi sem er með fegurstu fossum þessa land- svæðis og aftur niður að fyrir- huguðu virkjunarsvæði milli Hólmsár og Kúðafljóts, sem áætl- að er að verði fremur lítið eða 40 megavött,“ segir Sigmundur um Hólmsárvirkjun sem ekki er komin á fram- kvæmdastig en að henni standa Landsvirkjun og Rarik. „Að fyrirhug- aðri Búlands- virkjun, sem áætluð er 130 megavött, sem er svipuð stærð og virkjanirnar í Hrauneyjum og Sigöldu, hefur Landsvirkjun staðið, þar til nýlega að hún seldi undirbúningsgögn til Suðurorku, sem öðru nafni heitir Magma. Það virkjanasvæði ætlum við að skoða á sunnudag, en svæðið teygir sig upp undir Hólaskjól þar sem Skaftá verður veitt yfir á Þorvaldsaura í allmyndarlegt miðlunarlón sem tekið verður í neðanjarðarvirkjun og útfall þaðan til Ása-Eldvatns, sem er kvísl úr Skaftá við Búland, efsta bæ í byggð við Skaftá,“ segir Sigmundur og bætir við að þar sé að finna stór tæknileg vandamál sem ekki hafi verið leyst í virkj- anaáformum. „Þar mun Skaftá klofna í Ása- Eldvatn og Skaftá sem rennur austur með Síðu, en útfall verður fyrst og fremst til Ása-Eldvatns. Það þýðir að náttúruleg skipti verða ekki lengur fyrir hendi heldur þarf að stýra ánni aftur í Skaftá ella þornar farvegur henn- ar upp að allverulegu leyti á löng- um kafla. Þá hafa menn ekki held- ur sýnt hvernig þeir ætla að leysa sín mál þegar koma Skaftárhlaup sem þarf að hleypa framhjá virkj- unum og bera ógrynni af drullu og aur með sér, en í hlaupi hættir Skaftá að líkjast vatni heldur hníg- ur áfram í þungri og hæggengri leðju,“ segir Sigmundur sem ætlar í hlutlausa vettvangsferð þar sem menn mynda sér sjálfir skoðun, og ef tími gefst munu verða skoðaðar aðstæður við Skál þar sem fyrir- huguð er lítil virkjun í Skaftá. „Báðar virkjanir yrðu á frem- ur fjölförnu landi sem um leið er óskaplega fallegt að ferðast um og njóta. Landið er enn í sumarbún- ingi og forvitnilegt að skoða hvað stendur til í okkar heimalandi, þótt ákvarðanir séu ekki endanlegar.“ Áhugasamir hafi samband við Landvernd í síma 552 5242. thordis@frettabladid.is Á slóðir náttúruhamfara Um helgina verður farin vettvangsferð um eitt magnaðasta eldsumbrotasvæði veraldarsögunnar, en í henni gefst fólki kostur á að vega og meta fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir Landsvirkjunar og Magma. Sigmundur Einars- son jarðfræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hólmsárfoss er formfagur foss sem fellur úr Hólmsá, en í ferðinni verður gerð grein fyrir fyrirhuguðum stíflumannvirkjum í Hólmsá við Atley. Rýmum fyrir nýjum vörum Útsala á föstudag, laugardag og sunnudag 20% - 40% afsláttur á efri hæð 40% - 70% afsláttur á barnafötum í kjallara Einnig ýmislegt til á konurnar á góðum verðum. Opið Mán-Fös frá 11.00 - 18.00 Lau frá 10.00 - 16.00 Sun frá 12:00 - 16.00 Sími 534 0073 Erum með opið á lau. kl. 11—16 FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUR af öllum vörum um helgina 20% afsláttur VORUM AÐ TAKA UPP NÝJAR SOYA VÖRUR, NÝJA SKOKKA OG NÝJAR KVARTBUXUR. SalsaKennum Kúbu-salsa Krakkar Frábær 14 vikna námskeið fyrir ykkur. Yngst 5 ára. Freestyle Allt það nýjasta. Yngst 9 ára. Einnig námskeið fyrir 18+ Reykjavík og Mosfessbær Innritun og upplýsingar www.dansskoliheidars.is og í síma 551 3129 milli klukkan 16 og 20 til 12. sept. Kennsla hefst mánudaginn 13. sept. Systkinaafsláttur 2. barn hálft gjald 3. barn frítt Reykjavík og Mosfellsbær styrkja dansnám barna Konusalsa Sjóðheitt námskeið. Hentar öllum konum, ungum og öldnum, liðugum og stirðum. Skemmtileg hjóna- og paranámskeið Byrjendur og framhald. Salsa-merenge, gömlu dansarnir, samkvæmisdansar og upprifjunarnámskeið. Keppnisdansar Hinn frábæri danskennari Svanhildur Sigurðardóttir sér um þjálfunina. Mæting 2x eða 3x í viku. Woodex á Íslandi frá árinu 1977. Löngu landsþekkt fyrir endingu og gæði. Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.