Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 48
28 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Heyrðu,
kemurðu...
oft hingað? Nei!
Og við höfum ekki
hist áður! Ég er
hárgreiðslukona og
þú ert augljóslega
strætóbílstjóri. Og nei
takk, ég kaupi mína
drykki sjálf!
Hvað með
nokkur
spor? NEI!
Ég vil ekki
dansa!
En einn sjort-
ara bakvið?
Nú erum við
að tala saman!
Farðu og gerðu
þig kláran, ég
kem!
GÓÐA... Á FÆT...
Á FÆT...
Æi, drífðu
þig bara á
fætur.
Nú meikar
þetta aðeins
meiri sens.
klára setn-
ingarnar
mínar
Ég gefst upp! Þú munt halda
áfram þessum netstefnumót-
um hvað sem ég segi.
Hárrétt.
Og bara svo þú vitir það, þá
held ég að Tommi ætli að biðja
mín í kvöld.
HA??
Hann er búinn að gefa ýmislegt
í skyn og ég held að stóra
stundin sé í kvöld!
Spennan er að
drepa mig!
Gott, því ef
hún gerir það
ekki þá mun
mamma gera
það.
Hjóna-
bands-
ráðgjafi
Hún þarf
alltaf að
Það má ekki pissa bak við hurð og ekki henda grjóti oní skurð,“ syngja
leikskólabörn og læra þannig hvað má
og hvað má ekki í laginu um það sem
bannað. Allar þessar reglur eru til vegna
þess að þeirra er þörf. Það er almenn
kurteisi að pissa ekki bak við hurðir, og
það er aldrei að vita hver er ofan í skurð-
inum eða hvað það er sem skvettist upp
úr honum þegar steinninn lendir á
yfirborðinu.
ÖNNUR bönn úr þessu lagi
úreldast hins vegar hratt eftir
því sem fólk eldist. Fullt af
fullorðnu fólki veður út í sjó
sér til heilsubótar oft í viku
og les blóm skammarlaust úr
blómabeðum í garðinum handa
ömmu, sem launar fyrir sig
með því að tína orma handa
mömmu áður en sú síðar-
nefnda fer í veiðiferð. Og þá
eru ótaldir allir snúðarnir
sem úrgrasivaxnir litlir
bræður þiggja glaðlega
og sjálfráða af full-
orðnum eldri syst-
kinum sínum á degi
hverjum.
BIBLÍAN er samsafn
margra bóka og meðal
margs annars handbók um hvernig best
var að lifa af í eyðimörkum og hirðingja-
samfélögum fyrir þúsundum ára. Marg-
ir nota þessa löngu úreltu handbók til að
réttlæta sína eigin fordóma. Þeir segjast
trúa því að hún flytji orð Guðs og þeim
eigi að hlýða. En orð Guðs eru ekki öll
jöfn. Svínakjöt skemmist hratt í steikj-
andi hita og skemmt svínakjöt getur
verið banvænt. Það sama má segja um
skelfisk, humar og rækjur. Þess vegna
bannar Biblían neyslu á þessum mat-
vörum. Fáir þeirra sem nota hana til
að réttlæta skoðanir sínar neita sér um
rækjusalat eða skinkusamloku milli
predikana. Þeir hinir sömu eru reynd-
ar merkilega oft sléttrakaðir, jafnvel þó
að þriðja Mósebók leggi blátt bann við
slíku. Fyrir þessum einstaklingum eru
lögmál Biblíunnar konfektkassi fyrir
þá til að velja úr en ekki alvöru boð og
bönn. Og það er ekkert hægt að taka
mark á þeim, því miður.
REGLUR eru settar af því að það er
þörf fyrir þær. Það er hins vegar engin
ástæða til að taka mörg þúsund ára
gamlar reglubækur bókstaflega, því auð-
vitað úreldast þær eftir því sem mann-
kynið breytist, þróast og þroskast. Og
það er engin ástæða til að kippa sér upp
við það að einn sléttrakaður kall vilji
ekki fara í veislu.
Um það sem er bannað
Helgarblaðið:
Tolli í Tíbet
Tolli fetaði slóðir pílagríma þegar
hann gekk í kringum hið helga fjall
Kailash í Tíbet.
Sannir snillingar stela
Fær fræga fólkið í útlöndum lánað
frá Íslendingum?
Þeir ráku féð í réttirnar
Mikið var um að vera í Reykjahlíð við
Mývatn þegar réttað var í Hlíðarrétt.
Sérblaðið Heimili
og hönnun:
Stofan poppuð upp
Guðbjörg Magnúsdóttir
innanhússarkitekt gefur lesendum
góð ráð.