Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 58
10. september 2010 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fram undan eru fjórar
síðustu umferðirnar í Pepsi-deild
karla sem verða spilaðar á næstu
tveimur vikum. Fréttablaðið nýtti
tækifærið og skoðaði það hvenær
í leikjunum liðin í Pepsi-deildinni
eru hættulegust og hvenær þau
eru veikust fyrir.
Breiðablik hefur skorað flest
mörk í fyrstu átján umferðum
Pepsi-deildar karla eða alls 40
eða 2,2 að meðaltali í leik. Helm-
ingur markanna hefur komið á
fyrsta hálftímanum í seinni hálf-
leik þegar hálfleiksræða þjálfar-
ans Ólafs Kristjánssonar er enn
fersk í huga leikmanna. Blikar
eru nefnilega með 17 mörk í
plús á 46. til 75. mínútu, þar
af hefur liðið skorað 11 mörk
gegn aðeins einu á fyrstu
fimmtán mínútunum í seinni
hálfleik. Það er ljóst á bæði
sókn og vörn liðsins að Ólafur
stillir strengi sinna manna
kórrétt í hálfleiknum.
Blikar eru í algjörum
sérflokki í deildinni
á þessum hálftíma
kafla en þeir hafa
skorað langflest
mörk á þess-
um kafla, hafa
fengið á sig
fæst mörk á
þessum kafla
og eru með 13
mörkum betri
markatölu en
næsta lið sem
er FH sem
hefur 4 mörk
í plús á marka-
tölu á 46. til 75.
mínútu í sínum
leikjum.
Aðalmarka-
skorarar Blika,
Alfreð Finn-
bogason (8 af 12
mörkum sínum)
og Kristinn Steindórsson (4 af 10
mörkum sínum), hafa líka verið
sjóðheitir á þessum kafla leikj-
anna en auk þess að skora saman
12 mörk á þessum 30 mínútna
kafla þá hafa þeir einnig átt saman
5 stoðsendingar á þessum fyrsta
hálftíma í seinni hálfleik.
Eyjamenn sitja á toppi Pepsi-
deildarinnar með tveggja stiga
forskot á Blika og það hefur mikið
að segja að ekkert lið hefur endað
hálfleiki betur en Eyjamenn.
ÍBV-liðið hefur skorað átta mörk-
um meira en mótherj-
ar þeirra á síðustu
fimmtán mínútun-
um í bæði fyrri
og seinni hálf-
leik. Marka-
tala ÍBV á
þessum kafla
leikjanna er
14-6 en næst-
ir koma KR-
i nga r með
sjö mörk í plús
og markatöluna
16 -9. KR-ingar
heimsækja ein-
mitt Vestmannaeyjar á
sunnudaginn.
KR og FH eru í þriðja
og fjórða sæti í deild-
inni, fjórum og fimm
stigum á eftir ÍBV
en þau eiga bæði
það sameiginlegt
að byrja fyrri
hálfleikinn illa en
enda hann vel. FH
er með 3 mörk í
mínus á fyrstu
fimmtán mín-
útum leikjanna
en hafa skor-
að 6 mörk-
um meira en
mótherjar
þeirra á 16.
til 45. mín-
útu. KR-ingar eru með 4 mörk í
mínus á fyrstu 15 mínútunum en
hafa endað hálfleikinn með 7 mörk
í plús frá 16. til 45. mínútu.
Fylkir og Stjarnan byrja leikina
best en bæði eru með 5 mörk í plús
á fyrsta hálftímanum. Markatala
Fylkis á 1. til 30. mínútu er 12-7 en
markatala Stjörnumanna á sama
tíma er 13-8. Stjarnan er ásamt
ÍBV eina liðið sem er aldrei í mínus
í markatölu á neinum fimmtán
mínútna kafla í leikjunum.
Það vekur athygli hversu mikill
munur er á markatölu Valsmanna
og Fylkismanna eftir hálfleikjum.
Þar er 17 marka sveifla hjá Fylki
en 14 marka sveifla hjá Val. Fylkir
er með 5 mörk í plús í fyrri hálf-
leik (16-11) en 12 mörk í mínus í
seinni hálfeik (15-27) en Valur er
með 4 mörk í plús í fyrri hálfleik
(13-9) en 10 mörk í mínus í seinni
hálfleik (13-23). ooj@frettabladid.is
Blikarnir í ham eftir hálf-
leiksræður Ólafs Kristjáns
Fréttablaðið hefur skoðað hvenær í leikjunum liðin í Pepsi-deild karla stóðu
sig best í fyrstu 18 umferðunum. Breiðablik er eitt af liðunum sem berjast um
titilinn en það er ekki síst að þakka fyrsta hálftímanum í seinni hálfleik.
1. til 15. mín.
Bestir: Valur +5 Slakastir: KR -4
16. til 30. mín.
Bestir: KR +5 Slakastir: Fram, Valur, Keflavík -3
31. til 45. mín.
Bestir: FH +4 Slakastir: Selfoss -8
46. til 60. mín.
Bestir: Breiðab. +10 Slakastir: Fylkir, Valur -3
61. til 75. mín.
Bestir: Breiðablik +7 Slakastir: Haukar -5
76. til 90. mín.
Bestir: ÍBV +6 Slakastir: Haukar -8
Fyrsti hálftíminn
Bestir: Fylkir, Stjarnan +5 Slakastir: Selfoss -4
Síðasti hálftíminn
Bestir: Breiðab., ÍBV +9 Slakastir: Haukar -13
Fyrsti hálftíminn í seinni
Bestir: Breiðablik +17 Slakastir: Haukar -7
Lok hálfleikja
Bestir: ÍBV +9 Slakastir:: Haukar -7
Upphaf hálfleikja
Bestir: Breiðablik +9 Slakastir: Selfoss -5
Besti og versti tími liðanna í Pepsi-deild karla í fyrstu 18 umferðunum 2010
+4 GRINDVÍKINGAR hafa bestu markatöluna í uppbótartíma í leikjum sínum í Pepsi-deild karla í sumar. Grind-víkingar hafa skorað 4 mörk í uppbótartíma fyrri eða seinni hálfleiks og hafa á sama tíma ekki fengið á sig mark
þegar hefðbundar 45 mínútur eru liðnar. FH-ingar eru aftur á móti neðstir á sama lista með 3 mörk í mínus.
FÓTBOLTI Á heimasíðu knattspyrnu-
deildar KR birtist í gær frétt
þess efnis að félagið treysti ekki
dómaranum Erlendi Eiríkssyni.
Erlendur dæmdi tvö víti á KR í
bikarúrslitaleik félagsins gegn
FH og í kjölfarið var umræða um
meint tengsl Erlends við FH á
spjallsíðu stuðningsmanna félags-
ins.
KR-ingar eru mjög ósáttir við
að Erlendur eigi að dæma leikinn
í Eyjum um helgina. Á heimasíðu
KR stendur meðal annars:
„Við treystum Erlendi ekki, svo
það sé á hreinu. Við vissum ekki
af tengslum hans við FH fyrr en
eftir bikarúrslitaleikinn í síðasta
mánuði. Tengslin eru að okkar
mati þess eðlis að Erlendur, eða
KSÍ, áttu að gera okkur grein
fyrir þeim, þó ekki væri nema í
nafni háttvísinnar. Vegna tengsl-
anna hefði hæfi hans eða van-
hæfi átt að koma til skoðunar,“
segir meðal annars á heimasíðu
KR-inga.
Gylfi Þór Orrason, formaður
dómaranefndar KSÍ, furðar sig á
þessari yfirlýsingu KR-inga og full-
yrðingum þess efnis að Erlendur sé
tengdur FH á óeðlilegan hátt.
„Eldri sonur hans æfði einu
sinni með FH í þrjá mánuði en býr
nú erlendis. Hann lék aldrei með
félaginu. Yngri sonur hans mætti
svo einu sinni á æfingu hjá FH er
hann var á leikskólaaldri. Það er
nú allt og sumt. Þetta er algjör
stormur í vatnsglasi,“ segir Gylfi
Þór en sögusagnir þess efnis að
Erlendur hafi unnið sjálfboðaliða-
störf fyrir FH og jafnvel safnað
dósum fyrir félagið eru úr lausu
lofti gripnar.
Gylfi segir ekki hafa komið til
greina að skipta Erlendi út sem
dómara leiksins þrátt fyrir þessa
uppákomu.
Ekki náðist í Kristin Kjærne-
sted, formann knattspyrnudeildar
KR, við vinnslu fréttarinnar. - hbg
KR-ingar segjast ekki treysta Erlendi Eiríkssyni sem dæmir leik ÍBV og KR:
Þetta er allt á misskilningi byggt
EKKI VINSÆLL HJÁ KR-INGUM Erlendur
rekur hér KR-inginn Grétar Sigurðarson
frá sér í bikarúrslitaleiknum fræga.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Markahæstu leikmenn á
46. til 75. mínútu
Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 8
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 4
Atli Viðar Björnsson, FH 4
Guðmundur Kristjánsson, Breiðabliki 3
Almarr Ormarsson, Fram 3
Óskar Örn Hauksson, KR 3
Danien Justin Warlem, ÍBV 3
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 3
Markatala á 46. til 75.
mín.
Breiðablik Markatala: +17 (20-3)
FH +4 (12 mörk-8 mörk á sig)
KR +3 (9-6)
ÍBV +3 (8-5)
Grindavík 0 (5-5)
Fram 0 (8-8)
Stjarnan -1 (8-9)
Keflavík -2 (5-7)
Valur -5 (11-16)
Fylkir -6 (9-15)
Selfoss -6 (10-16)
Haukar -7 (5-12)
HANDBOLTI Skyttan örvhenta Rúnar
Kárason hefur verið seld frá þýska
úrvalsdeildarfélaginu Füchse Berl-
in til 2. deildarliðsins Bergischer
HC. Rúnar náði sér aldrei almenni-
lega á strik hjá Degi Sigurðssyni í
Berlin og hefur því ákveðið að róa
á önnur mið.
„Ég hef ekki fundið mig alveg
nógu vel hérna og er á þeim tíma-
punkti að ég þarf að spila meira.
Þetta lið sem ég er að ganga til liðs
við vantar örvhenta skyttu þannig
að ég fæ að spila helling þar,“ sagði
Rúnar við Fréttablaðið í gær en
hann leikur í kvöld kveðjuleik sinn
fyrir Berlínarliðið.
„Ég er ekkert að svekkja mig of
mikið á því að hlutirnir hafi ekki
gengið upp hérna. Ég gerði mér
alveg grein fyrir því að þetta yrði
erfitt en það þarf margt að ganga
upp til að maður slái strax í gegn.
Mér líst vel á félagið sem ég er að
fara í. Það varð í 2. sæti í fyrra og
verður í toppbaráttu í ár. Þetta félag
er fjárhagslega sterkt og vel mann-
að. Þetta á eftir að verða fínn vetur,“
sagði Rúnar sem semur við liðið út
þessa leiktíð. Næsta sumar þarf
hann því að skoða framhaldið upp
á nýtt. - hbg
Skyttan Rúnar Kárason farin frá Füchse Berlin:
Þarf að fá að spila meira
FLOGINN Á BROTT Rúnar er hér í leik með Füchse Berlin. Hann leikur sinn síðasta
leik fyrir félagið í kvöld. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
NÚ ER
TVÖFALT
MEIRA
Í VINNING
EN Á-DUR!
I I
!
1. Arsenal – Bolton ÚRV.D.
2. Fulham – Wolves
3. Man. City – Blackburn
4. Newcastle – Blackpool
5. W.B.A. – Tottenham
6. West Ham – Chelsea
7. Wigan – Sunderland
8. Q.P.R. – Middlesbro 1. D.
9. Elfsborg – Mjallby ÚRV.D.
10. Helsingborg – Gefl e
11. Trelleborg – AIK
12. Atvidaberg – Malmö FF
13. Syrianska FC – Norrköping 1. D.
110.000.000
22.500.000
18.000.000
37.500.000
ENSKI BOLTINN 11. SEPTEMBER 2010
36. LEIKVIKA
(13 R.)
(12 R.)
(11 R.)
(10 R.)
Stærstu nöfnin eru í Enska
boltanum og nú er potturinn
orðinn ennþá stærri. Vertu með
og tippaðu fyrir kl. 13 á morgun.
SÖLU LÝKUR 11. SEPT. KL. 13.00
1 X 2
TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS