Fréttablaðið - 14.10.2010, Síða 6
6 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
NEYTENDUR Sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið hefur undan-
farna daga fengið fyrirspurnir
frá tveimur heildsölum um aukn-
ingu á innflutningskvóta á kjúkl-
ing. Ástæðan er skortur á innlend-
um kjúklingi á landinu sem hefur
verið viðvarandi sökum skæðrar
salmonellusýkingar sem herjaði á
kjúklingabú í vor.
Ólafur Friðriksson, skrifstofu-
stjóri framleiðslu- og markaðsskrif-
stofu sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðuneytisins, segir ráðuneytið
fyrst hafa heyrt af skortinum á
þriðjudag og staðfestir að hann sé
til kominn vegna sýkingarinn-
ar í vor. Hann segir þessa viku
vera sérlega bágborna hvað varð-
ar framboð en telur líklegt að jafn-
vægi komist á aftur í næstu viku
miðað við framleiðsluspár fyrir-
tækjanna.
„Að því gefnu að ekkert komi
upp á er líklegt að framboðið verði
orðið eðlilegt í næstu viku,“ segir
Ólafur. Hann telur ekki ástæðu til
þess að endurskoða núverandi toll-
kvóta á kjúkling sökum þessa og
breytingar á þeim taki fleiri vikur.
Hann segir engar verslanir hafa
haft beint samband við ráðuneytið
sökum skortsins.
Vegna fréttar á forsíðu Frétta-
blaðsins í gær vill Matthías Hann-
es Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Reykjagarðs, árétta að hann
hafi ekki sagt í samtali við blaðið að
fyrirtækið hafi getað afgreitt allar
pantanir. Hann hafi sagt aðspurð-
ur að fyrirtækið hafi verið í vanda-
málum vegna salmonellusýkingar
en ástandið væri að lagast. Að því
leyti væri ekki fyrirsjáanlegur
skortur hjá Reykjagarði. - sv
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið telur ekki ástæður til að endurskoða tollkvóta á kjúkling:
Líklegt að ástandið lagist í næstu viku
KJÚKLINGAR Í REYKJAGARÐI Ráðuneytið
segir að miðað við framleiðsluspár mun
framboð á kjúklingi aukast á ný í næstu
viku. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ERTU MEÐ
VIÐKVÆMA HÚÐ?
Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu
eða færðu sár við notkun dömubinda?
Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs,
ilm- og plastefna.
www.natracare.is
LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR
Nàttúruleg vellíðan
Kíktu í heimsókn á www.hipp.is
Lífrænt skiptir máli
fyrir barnið þitt
- Engin erfðabreytt innihaldsefni
- Ræktað án notkunar meindýraeiturs
Kitlar bragðlaukana
Framboðum til stjórnlagaþings skal skilað
til landskjörstjórnar fyrir klukkan 12 á hádegi
næstkomandi mánudag, 18. október. Nánari
upplýsingar á kosning.is og landskjor.is.
Kosið verður 27. nóvember. Stjórnlagaþing kemur
saman eigi síðar en 15. febrúar 2011 til að endurskoða
stjórnarskrá Íslands.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið
EFNAHAGSMÁL Miðað við álagn-
ingarskrá 2010 eru heildarskuld-
ir heimila með veði í fasteignum
1.201 milljarður króna.
Langflestir eru þannig settir
að skuldir vegna íbúðarkaupa eru
lægri en fasteignamat viðkomandi
eignar. Í um tuttugu prósentum til-
vika er veðsetningarhlutfallið hins
vegar hærra en fasteignamat. Svo
háttar til um skuldir sem nema
samtals 519 milljörðum króna.
Þessar upplýsingar eru meðal
þeirra sem lagðar hafa verið fram
í samráðsferli stjórnmálanna og
hagsmunaaðila um lausn á skulda-
vanda heimilanna.
Á þeim sést að hjá 1.360 heim-
ilum er skuldahlutfallið meira
en 200 prósentum umfram fast-
eignamat. Í þeim tilvikum nema
skuldirnar samtals 49 milljörðum
króna, eða rúmlega 36 milljónum á
heimili. Sé litið til þeirra sem búa
við skuldahlutfall á bilinu 100 til
110 prósent yfir fasteignamati er
meðalskuldin tæplega 22 miljónir
króna. bjorn@frettabladid.is
Eitt af hverjum fimm
heimilum yfirveðsett
Heildarskuldir heimila með veði í fasteignum eru 1.201 milljarður króna. Fasteigna-
skuldir 20 prósenta heimila eru hærri en fasteignamat eignarinnar. Hjá 1.360
heimilum er skuldahlutfallið meira en 200 prósentum umfram fasteignamat.
REYKJAVÍK Mörg heimili eru skuldsett langt umfram fasteignamat eignar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skipting lána eftir teg-
undum og lánveitendum
Sundurliðað eftir tegund lána
Gengisbundin lán 119,6 ma. kr.
Verðtryggð lán 1.116,9 ma. kr.
Óverðtryggð lán 96,2 ma. kr.
Samtals 1.332,8 ma. kr.
Sundurliðað eftir lánveitanda
Bankar og sparisj. 512,6 ma. kr.
Íbúðalánasjóður 645,1 ma. kr.
Lífeyrissjóðir 175,1 ma. kr.
Samtals 1.332,8 ma. kr.
Heimild: Seðlabankinn
Fjöldi skuldara með
yfirveðsettar eignir
Skuldahlutfall Fjöldi Skuld
100-110 5.166 112
110-120 4.565 104
120-130 3.184 77
130-140 2.114 55
140-150 1.404 39
150-160 889 26
160-170 644 20
170-180 456 15
180-190 337 12
190-200 293 10
yfir 200 1.360 49
Samtals: 20.412 519
Fjárhæðir skulda eru í milljörðum króna.
Heimild: Fjármálaráðuneytið
heimila eru
með veðsetn-
ingarhlutfallið
hærra en fasteignamat.
20%
Bindur þú miklar vonir við
komandi stjórnlagaþing?
Já 27%
Nei 73%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú fylgst með björgun
námuverkamannanna í Síle?
Segðu þína skoðun á visir.is
SAMFÉLAGSMÁL Stígamót og Skotturnar, samstarfs-
vettvangur íslensku kvennahreyfingarinnar, efna
til mikils söfnunarátaks sem hefst í dag.
Er átakið í kjölfar þess að loka þurfti þjónustu-
miðstöðvum Stígamóta utan höfuðborgarsvæðis-
ins vegna niðurskurðar, en þjónusta á Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum, Selfossi, Borgarnesi, Akranesi og
Grundarfirði lagðist af.
„Það var alveg hræðilegt að klippa á þá vinnu sem
var í gangi. Við erum þegar að fara af stað aftur,
treystandi á fjármagn,“ segir
Guðrún Jónsdóttir, tals-
kona Stígamóta.
Nú stendur til að
opna stofnanirnar á ný.
En auk þess er stefnt að
því að auka þjónustuna á
höfuðborgarsvæðinu með
sólarhringsþjónustu, flytja
Stígamót í stærra húsnæði og útbúa athvarf fyrir
konur sem eru að brjótast út úr vændi.
„Það er viðurkennd þörf fyrir slíkt athvarf,“ segir
Guðrún. „Þar sem útilokað er að fjármagna vinnuna
á þessum tímum, munu Skottur deila henni á kvöld-
in og um helgar í sjálfboðavinnu.“
Skotturnar munu hefja söfnunarátakið á morgun
og selja kynjagleraugnanælur fram yfir helgina
á 1.000 krónur stykkið og er markmiðið að selja
17.000 nælur. - sv
Skotturnar og Stígamót standa fyrir söfnunarátaki sem hefst í dag:
Skottur selja kynjagleraugu
KYNJAGLERAUGUN Merkið
er hannað af Hrafnhildi A.
Jónsdóttur og Tinnu Brá
Baldvinsdóttur. Þær unnu opna
hönnunarsamkeppni Skottanna
um barmmerki.
KJÖRKASSINN