Fréttablaðið - 14.10.2010, Qupperneq 10
14. október 2010 FIMMTUDAGUR
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Kauptu gott kaff
i í dag
á góðu verði
Einnig til 250 gr á
ennþá betra ver
ði
á meðan birgðir
endast
FRAKKLAND Ný og harðari innflytj-
endalöggjöf var samþykkt af neðri
deild franska þingsins á þriðjudag,
en í því felast mörg umdeild ákvæði
sem gera stjórnvöldum meðal ann-
ars kleift að reka Rómafólk, eða
sígauna, úr landi. Meðal annars
kveða lögin á um að hægt verði að
vísa íbúum annarra ríkja Evrópu-
sambandsins (ESB) úr landinu ef
þeir gerast uppvísir að lögbrotum,
en það hefur fallið í grýttan jarð-
veg í Brussel. Framkvæmdastjórn
ESB gaf Frakklandi frest til 15. okt-
óber til að hlýta tilskipun frá árinu
2004 þar sem segir að allir borgarar
sambandsins megi ferðast óáreittir
milli landa þess.
Þá hefur frumvarpið þótt halla
verulega á Rómafólk þar sem brott-
rekstur liggur við þjófnaði, betli og
landtöku.
Talið er að forsetinn Nicolas Sar-
kozy mæli fyrir þessari löggjöf til
að höfða til hægrimanna, en vin-
sældir hans hafa dalað verulega
undanfarið.
Eric Besson innflytjendaráðherra
hefur blásið á gagnrýnisraddir og
segist viss um að löggjöfin marki
fyrsta skrefið í smíð nýrrar inn-
flytjendastefnu í Evrópu.
- þj
Umdeild innflytjendalöggjöf samþykkt í neðri deild franska þingsins:
Ný lög leyfa burtrekstur Rómafólks
REKIN BURT Rómafólk í tjaldbúðum í
Frakklandi. NORDICPHOTOS/AFP
ORKUMÁL „Ef ég væri ríkissaksókn-
arinn í þessu landi myndi ég hefja
sakamálarannsókn á þessu máli,“
sagði Eva Joly, fyrrverandi ráð-
gjafi embættis sérstaks saksókn-
ara vegna bankahrunsins, um kaup
Magma Energy á HS Orku.
Þetta sagði Joly á fundi með Björk
Guðmundsdóttur í Norræna húsinu
í gær. Þar tók Joly undir áskorun
Bjarkar og annarra til stjórnvalda
um að stöðva kaup Magma Energy
á HS Orku og láta fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu um orkuauð-
lindir landsins. Spurð hvers vegna
hún vildi að sakamálarannsókn
yrði hafin sagði Joly samninginn
mjög slæman, og rannsaka ætti
hvers vegna hann hefði verið gerð-
ur. Hún benti á að óheimilt væri
að greiða fyrir kaup á fyrirtæki
með fé frá fyrirtækinu sem verið
væri að kaupa, en fullyrti þó ekki
að það hefði átt sér stað í þessu til-
viki. Það og annað ætti að rannsaka
ítarlega.
„Það eru nægar ástæður til að
hefja slíka rannsókn,“ sagði Joly.
Hún fullyrti að einkavæðing á auð-
lindum landsins myndi skila sér í
vasa hluthafa Magma Energy, sem
sumir væru óþekkt félög með aðset-
ur í þekktum skattaskjólum.
Björk Guðmundsdóttir fagnaði
stuðningi Joly við málstaðinn. Hún
sagði mikilvægt fyrir forsvarsmenn
hópsins að fá alþjóðlegan sérfræð-
ing á borð við Joly til liðs við sig.
Tæplega 19.400 höfðu í gær skrif-
að undir áskorun hópsins á vefnum
orkuaudlindir.is. - bj
Eva Joly tekur undir kröfur um að komið verði í veg fyrir kaup Magma á HS Orku:
Ætti að rannsaka sem sakamál
SKULDIR Eva Joly sýndi fréttamönnum skuldir ríkis og einkaaðila á Íslandi samanbor-
ið við önnur lönd OECD. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI