Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 14. október 2010 25
Stjórnarskráin frá 17. júní 1944 er í meginatriðum samhljóða
dönsku stjórnarskránni. Stjórn-
arskránni verður því ekki með
góðu móti kennt um hrunið, ekki
hrundi Danmörk. Reynslan virðist
þó sýna, að Íslendingar geti þurft
strangari stjórnarskrá en Danir.
Eftir á að hyggja hefði stjórnar-
skráin þurft að girða fyrir langan
aðdraganda hrunsins. Því þarf nú
að skerpa ákvæði stjórnarskrár-
innar um vald forseta Íslands, úr
því að valdheimildir hans sam-
kvæmt stjórnarskránni eins og
hún er dugðu ekki til.
Valdmörk og mótvægi
Valdi forsetans er ætlað að treysta
valdmörk og mótvægi fram-
kvæmdarvalds, löggjafarvalds og
dómsvalds í samræmi við hug-
myndina um þrískiptingu valds
innan ramma þingræðisins. Mál-
skotsréttur forsetans er að vísu
skýr, en hann þarf að rýmka, svo
að forsetinn geti vísað til þjóðar-
atkvæðis ekki aðeins frumvörp-
um, sem þingið samþykkir, svo
sem nú er hægt, heldur einnig
frumvörpum, sem þingið hafnar.
Það væri nýjung. Forsetinn gæti
þá vísað lagafrumvörpum utan-
þingsstjórnar til þjóðaratkvæða-
greiðslu fram hjá þinginu. Til-
skilinn hluti kjósenda þarf einnig
að geta vísað lagafrumvörpum
til þjóðaratkvæðis. Trausti rúið
Alþingi gæti þá ekki staðið í vegi
fyrir framgangi mála vinsællar
utanþingsstjórnar. Með því móti
væri girt frekar fyrir getu Alþing-
is til að ganga gegn vilja fólksins
í landinu. Ég tek undir með Ólafi
Jóhannessyni fyrrum forsætis-
ráðherra, að setja þurfi sérstakt
ákvæði í stjórnarskrána um rétt
forseta til að mynda utanþings-
stjórn, takist Alþingi ekki að
mynda starfhæfa stjórn. Ég tel
einnig koma til greina að veita for-
setanum vald til að skipa ríkis-
stjórn, svo að utanþingsstjórn að
bandarískri og franskri fyrirmynd
yrði reglan, ekki undantekningin,
svo sem Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra og Vilmundur Gylfa-
son alþingismaður lögðu til fyrir
löngu. Ýmsar útfærslur á sjónar-
miðum þeirra koma til álita.
Ýmis önnur ný ákvæði þarf í
ljósi reynslunnar að setja í nýja
stjórnarskrá, þar á meðal ákvæði
til að skerða veldi stjórnmála-
flokka og hagsmunasamtaka líkt
og Ólafur Jóhannesson mælti fyrir
til að koma í veg fyrir „ofbeldi ein-
staklinga og félagsheilda“. Þá þarf
ýtarlegri ákvæði um eignarrétt,
þar á meðal eignarrétt yfir auð-
lindum, og lögvernd hans, þannig
að „einstakir menn auðgist ekki
óhæfilega fyrir beinar aðgerðir
hins opinbera“, svo að ég vitni enn
í Ólaf. Kjördæmaskipaninni þarf
að breyta, svo að landið verði eitt
kjördæmi, þingmenn ekki fleiri en
til dæmis 21 eða 35 og ráðherrar
ekki fleiri en sjö eða átta og sitji
ekki á þingi.
ESB og stjórnarskráin
Andstæðingar aðildar Íslands að
Evrópusambandinu líta margir
svo á, að stjórnarskráin leyfi ekki
inngöngu Íslands í ESB. Ég hef
hér í blaðinu fært lagaleg rök að
því, að stjórnarskráin standi ekki
í vegi fyrir aðild að ESB, þar eð
samþykkt Alþingis myndi duga, en
rétt væri þó að bera málið undir
bindandi þjóðaratkvæði. Aðildin
að Evrópska efnahagssvæðinu
1994 fól í reynd í sér umfangs-
meira afsal valdheimilda en aðild
að ESB myndi fela í sér nú til við-
bótar, þar eð skrefið, sem þá var
stigið, var stærra. Í lagalegu til-
liti er aðild að ESB þó í eðli sínu
ólík aðild að EES. Aðild að ESB
þýðir, að stofnanir ESB fá laga-
setningarvald á Íslandi og dóm-
stóll ESB fær bindandi dómsvald,
en hvorugu er til að dreifa innan
EES. Hvort tveggja yrði að minni
hyggju Íslandi til framdráttar líkt
og öðrum aðildar löndum. Margir
lögfræðingar og allir stjórnmála-
flokkar landsins líta þó svo á, að
eðlismunurinn á ESB og EES kalli
á stjórnarskrárbreytingu. Sú stað-
reynd knýr ásamt þeim atriðum,
sem reifuð voru að framan, á um
nýja stjórnarskrá.
Hreint borð
Þörfin fyrir nýja stjórnarskrá í
hrundu landi helgast öðrum þræði
af nauðsyn þess að byrja upp á
nýtt, frá grunni, með hreint borð.
Stjórnmálastéttin kallaði hrun-
ið yfir landið ásamt meðreiðar-
sveinum sínum í bönkum og útrás-
arfyrirtækjum eins og skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis lýsir
glöggt. Þjóðin þarf að byrja upp
á nýtt með því að binda gagnger-
ar breytingar á stjórnskipaninni í
stjórnarskrá og nota tækifærið til
að senda umheiminum skýr skila-
boð um nýtt upphaf og nýja siði.
Aðrar þjóðir hafa sett sér nýjar
stjórnarskrár við mikilvæg tíma-
mót í sögu sinni. Þjóðverjar settu
sér nýja stjórnarskrá eftir heims-
styrjöldina síðari. Suður-Afríku-
menn settu sér nýja stjórnarskrá
við valdatöku svarta meiri hlutans
eftir hrun aðskilnaðarstjórnarinn-
ar 1994. Þessar tvær stjórnarskrár
geta ásamt öðrum reynzt góðar
fyrirmyndir. Mannréttindakaflar
beggja skjala eru skínandi góðir.
Stjórnlagaþingi er ætlað að end-
urskoða stjórnarskrána eða semja
nýja í beinu umboði þjóðarinnar og
án atbeina stjórnmálaflokkanna.
Til að vinna að framgangi þeirra
hugmynda, sem ég hef lýst hér að
framan, hef ég ákveðið að bjóða
mig fram til stjórnlagaþingsins.
Byrjum með hreint borð
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Í DAG
AF NETINU
Svikamyllan
Svikamylla ársins
2010 hlýtur að
vera fundin.
Baldvin Jóns-
son, varaþingmað-
ur Hreyfingarinnar,
segist hafa verið
plataður til að styðja frumvarp um
að sturta peningum í hafnargerðina
í Helguvík. Svo er að sjá að hann
hafi ekki áttað sig á því að fram-
kvæmdirnar stæðu í sambandi við
álversdraumana á staðnum.
Annað hvort er Baldvin mesti
hrekkleysinginn á löggjafarsamkom-
unni eða sá sem plataði hann til að
skrifa undir klókasti svikahrappur
þingsögunnar.
kaninka.net/stefan
Stefán Pálsson
Gullkálfur berst í bökkum
Enginn vafi er á því
að Iceland Airwaves
er gríðarleg búbót
fyrir ferðaþjónustu
í landinu utan
háannatíma. Hátíðin
er gríðarlega vítam-
ínssprauta fyrir ferðamannaiðnaðinn
yfir vetrarmánuðina. Hins vegar er
hinn bitri veruleiki sá að þessi hátíð
sem veltir vel á annan milljarð króna
árlega hefur ekki bolmagn til að
borga laun eins einasta starfsmanns
í fullu starfi, en örfáir lágt launað-
ir starfsmenn í hlutastarfi vinna
að undirbúningi og framkvæmd
hátíðarinnar. Rekstur hátíðarinnar er
í járnum og því óvíst hvort hátíðin
verður haldin á næsta ári, nema til
komi viðhorfsbreyting stjórnvalda til
þessa mikilvæga viðburðar.
http://www.pressan.is/pressu-
pennar/Skuli_Helgason
Skúli Helgason
Þjóðin þarf að byrja upp á nýtt með
því að binda gagngerar breytingar á
stjórnskipaninni í stjórnarskrá og nota
tækifærið til að senda umheiminum
skýr skilaboð um nýtt upphaf og nýja
siði.
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Fólk án atvinnu
fær frystingu
á húsnæðislánum
Komdu og ræddu við ráðgjafa í næsta útibúi Íslandsbanka