Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 26
26 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
Þegar fjárveitingar til háskóla eru skoðaðar skiptast þær í grófum
dráttum í fjárveitingar til kennslu
og rannsókna. Kennsluframlög mið-
ast annars vegar við fjölda nemenda
sem sækir í viðkomandi námsgrein
og hins vegar við þann kostnað sem
áætlaður er við hvern nemanda.
Eðlilegt er að reyna að stýra fjár-
veitingum með einhverjum slík-
um hætti en hins vegar er ljóst að
fámennar greinar eiga undir högg
að sækja í slíku líkani. Það getur
haft áhrif á fjölbreytni í háskóla-
starfi, sem getur rýrt gæði skóla-
starfsins. Þó að fjöldinn sæki í
einhverjar greinar umfram aðrar
hlýtur það að vera markmið mennta-
málayfirvalda að halda uppi ákveð-
inni fjölbreytni. Þessi sjónarmið
þarf að hafa í huga, ekki síst á nið-
urskurðartímum þegar mjög þreng-
ir að kennslu- og rannsóknastarfi. Í
þessum efnum skiptir mestu máli að
hafa akademísk sjónarmið að leiðar-
ljósi og tryggja um leið ákveðna fjöl-
breytni innan háskólasamfélags.
Lýðræði í háskólum
Síðastliðið haust ákváðu stjórn-
endur HR að loka kennslu- og lýð-
heilsudeild við skólann. Inga Dóra
Sigfúsdóttir, fyrrverandi prófessor
við skólann, hefur kvartað yfir því
í blaðaviðtali að ég sem ráðherra
hafi ekki beitt mér gegn þessari
ákvörðun.
Það er alveg ljóst að ráðherrar
geta ekki beitt handafli gegn
ákvörðunum sem teknar eru af
stjórnendum háskóla enda væri
slíkt ráðherraræði ólýðræðislegt og
beinlínis ógn við akademískt frelsi.
Enginn vill snúa aftur til þess kerfis
þegar prófessorar voru persónulega
skipaðir af ráðherrum – eða því vil
ég að minnsta kosti trúa. Spurning-
ar hafa hins vegar vaknað hvort ekki
þurfi að rýna alla löggjöf um háskóla
með það að leiðarljósi að tryggja lýð-
ræðislegt stjórnskipulag háskóla
þar sem bæði nemendur og kennar-
ar taka þátt í umræðum og ákvörð-
unum þegar afdrifaríkar ákvarðan-
ir eru teknar. Sem dæmi má nefna
að í lögum um háskóla frá 2006 er
ekki gert ráð fyrir neinum fulltrúa
úr háskólasamfélagi viðkomandi
skóla til setu í háskólaráði. Ekki er
tilgreint hversu langur skipunartími
skuli vera í háskólaráði eða hver sé
hlutverkamunur háskólaráðs og
háskólafundar. Hins vegar er tekið
fram að háskólaráð ákveði nánar
hlutverk og fyrirkomulag háskóla-
fundar og tryggja þurfi að starfs-
fólk skólans komi að háskólafund-
unum. Því má segja að vald og vægi
háskólafundar sé mismunandi, allt
eftir vilja viðkomandi háskólaráðs.
Hlutlægni og akademískt frelsi
Síðustu ár hefur verið sterk krafa
um aukin tengsl háskóla við
atvinnulífið. Í rannsóknarskýrslu
Alþingis eru þessi tengsl skoðuð í
gagnrýnu ljósi. Þar kemur fram að
mörk milli fyrirtækja og viðskipta-
lífs við háskóla og rannsóknarstofn-
anir hafi verið orðin óljós. Í skýrsl-
unni eru tekin dæmi um óheilbrigð
áhrif þessara tengsla á þekkingar-
sköpun og kennslu. Í skýrslu þing-
mannanefndar segir: „Hvetja þarf
háskólamenn af ólíkum fræða-
sviðum til að taka þátt í opinberri
umræðu og styrkja með því tengsl
fræðasamfélagsins, atvinnulífsins
og hins almenna borgara.“ Ljóst er
að skýrar þarf að kveða á í lögum
um hvernig beri að skilgreina og
verja grunnskyldur fræðimanna,
þar á meðal akademískt frelsi og
samfélagslega ábyrgð. Eins þarf
að huga betur að því hvernig megi
tryggja sjálfstæði háskólanna
gagnvart auknum fjárhagslegum
hagsmunum. Skapa þarf skýrari
umgjörð um þessa þætti í lögum
um háskóla. Við megum nefni-
lega aldrei gleyma samfélagsleg-
um skyldum skóla – að stuðla að
almennum framförum samfélags-
ins sem einmitt hefur verið ein af
meginröksemdum fyrir stofnun
háskóla.
Háskólar í mótun II
Menntamál
Katrín
Jakobsdóttir
mennta- og
menningarmálaráðherra
Það er alveg ljóst að ráðherrar geta
ekki beitt handafli gegn ákvörðun-
um sem teknar eru af stjórnendum
háskóla, enda væri slíkt ráðherraræði
ólýðræðislegt og beinlínis ógn við akademískt frelsi.
Enginn vill snúa aftur til þess kerfis þegar prófessorar
voru persónulega skipaðir af ráðherrum – eða því vil
ég að minnsta kosti trúa.
AF NETINU
Rústum kjördæmakerfinu!
Við eigum annars að hætta þessu eilífa karpi um höfuðborg og lands-
byggð. Hvert byggt ból hefur sína kosti og sína ókosti – og við jafn-
aðarmenn teljum að innan vissra marka eigi að ríkja
jafnræði um allt land um aðgang að grunnþjónustu. Til
þess er sjálfsagt að við leggjum ýmislegt á okkur.
Á þeim örlagatímum sem við lifum nú í landinu
gengur hinsvegar ekki að setja enn einusinni af stað
þennan kunnuglega væl þar sem breitt er yfir innri
mistök, mótsagnir og óstjórn með sameiginlegu bauli
á allt og alla „fyrir sunnan“. Og svo kveikt í rakettunum sem ganga
undir nafninu þingmenn landsbyggðarinnar og ráða úrslitum á alþingi
óháð almannahag – sem oftast fer hinsvegar saman við hagsmuni
þeirra rúmlega sex af hverjum tíu Íslendingum sem sagan og forlögin
hafa valið bústað í Reykjavík og stórnágrenni.
Rústum fjárlögunum! hrópaði hetjan mikla úr fjárlaganefnd hruns-
ins. Það verður nú ekki, háttvirtur þingmaður Kristján Þór Júlíusson.
Þau eru okkur lífsnauðsynleg nokkurnveginn einsog þau eru nú, og
ekki síður næstu kynslóðum syðra og nyrðra. En kannski væri það
skynsamleg hagræðing að rústa kjördæmakerfinu?
blog.eyjan.is/mordur
Mörður Árnason
Tilboðsverð frá kr. 22.900*
Miele ryksugurnar eru í senn kraftmiklar, hljóðlátar, léttar
og þægilegar í notkun og fást þær í nokkrum litum.
Hægt er að setja ofnæmissíur í ryksugurnar.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
*Gildir á meðan birgðir endast.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur