Fréttablaðið - 14.10.2010, Side 29
FIMMTUDAGUR 14. október 2010 29
Í grein sinni í Fréttablaðinu 22. september síðastliðinn gerir
Eiríkur Sigurðsson tilraun til að
skrifa burtu vísindi sem sýna
áhættu af völdum erfðabreyttra
plantna.
Eiríkur fullyrðir að Orf líftækni
muni nota leyfi sitt til ræktunar á
erfðabreyttu (eb-) byggi í samræmi
við íslensk lög. Leyfi Orf var veitt
til tilrauna í rannsóknaskyni, ekki
til ræktunar fyrir framleiðslu. Þó
hefur Orf síðar lýst yfir að fyrir-
tækið hyggist stunda „stórfellda
ræktun“. Þar sem Orf hefur aðeins
ræktunarleyfi í Gunnarsholti má
reikna með að þar verði þau áform
framkvæmd. Hvernig ætlar Orf að
nota tilraunaleyfi til framleiðslu-
ræktunar? Hafi Umhverfisstofn-
un (Ust) veitt leyfið á þeirri for-
sendu að um stórfellda ræktun yrði
að ræða, hvers vegna setti hún þá
skilyrði fyrir leyfinu sem eiga við
um litla tilraunareiti – þ.e. að hvert
svæði sé girt rafgirðingu og þakið
netum? Er hugsanlegt að leyfið sé
ætlað til tilrauna á nokkrum blett-
um innan leyfðra 10 hektara en
ekki til stórfelldrar ræktunar á
heilum 10 hektörum?
Eiríkur minntist ekki á að áform
Orf um „stórfellda“ útiræktun
myndu setja Ísland í sérflokk í
Evrópu. Engin leyfi hafa verið
veitt innan ESB til stórfelldrar
útiræktunar á eb-lyfjaplöntum.
Einungis tilraunaræktun á litlum
skikum (að jafnaði hálfur ha) hefur
verið leyfð með eb-lyfjaplöntur.
Líftæknifyrirtæki sem sækja um
leyfi til stórfelldrar ræktunar (til
markaðssetningar afurða) innan
ESB þurfa að leggja fram niður-
stöður dýrarannsókna. Þar sem
Ust mundi tæpast vilja Ísland á
skjön við Evrópu og hefur aldrei
krafið Orf um dýratilraunir hlýt-
ur stofnunin að hafa reiknað með
að umrædd leyfi yrðu ekki notuð
til stórfelldrar ræktunar.
Eiríkur fjallar um vísindahugtak
sem ef til vill má nefna flata gena-
færslu (e. Horizontal Gene Trans-
fer). Hún gerist þegar erfðaefni
(DNA) í eb-plöntum sundrast ekki
í meltingarvegi heldur berst úr
þörmum í líffæri þess sem neytir
þeirra. Eiríkur virðist viðurkenna
að þetta gerist en heldur því fram
að DNA úr eb-plöntum sé engu
skaðlegra en DNA úr öðrum plönt-
um. Hefur hann enga hugmynd um
vaxandi fjölda rannsókna sem sýna
að eb-fóður valdi alvarlegu heilsu-
tjóni á dýrum? A.m.k. 14 óháðar
og ritrýndar rannsóknir hafa leitt
í ljós að tilraunadýr fóðruð á eb-
afurðum urðu fyrir skaða á nær
öllum helstu líffærum. Nefnum
örfá dæmi: Rottur sem fengu eb-
tómata fengu magasár. Dánartíðni
afkvæma var fjórföld hjá rottum
sem fengu eb-soja í samanburði við
rottur sem fengu venjulegt soja.
Kanínur sem fengu eb-soja sýndu
truflanir á ensímbúskap í nýrum
og hjarta. Rottur sem fengu eb-
maís þróuðu vandamál í starfsemi
lifrar og annarra hreinsilíffæra,
svo og á hjarta, milta, nýrum og
nýrnahettum. Rannsóknir á sauð-
fé sem fóðrað var á eb-maís í þrjár
kynslóðir sýndu truflanir á starf-
semi meltingarkerfis í fullorðn-
um ám og á lifur og brisi í lömbum
þeirra.
Tvær nýlegar rannsóknir, önnur
birt í tímaritinu Fisheries Sci-
ence (2008) og hin í Aquaculture
Research (2009), sýndu að fiskur
(regnbogasilungur og beitarfiskur)
sem fékk erfðabreytt fóður hafði
DNA úr eb-plöntum í nær öllum
innri líffærum. Eiríkur reynir allt
til að gera lítið úr þessu með því að
ræða önnur atriði rannsóknanna.
Mikilvægasta niðurstaða þessara
rannsókna er að „flöt genafærsla“
á sér stað í fiski. Verði tilrauna-
dýr og búfé fyrir tjóni á líffærum
þegar erfðabreytt efni berast í líf-
færi þeirra er líklegt að hið sama
gerist í fiskum. Reikna má með að
framhaldsrannsóknir verði gerð-
ar úr því að þessi hætta blasir nú
við.
Ekki þarf að undra þótt erfða-
breyttar plöntur valdi skaða þegar
venjulegar plöntur gera það ekki,
enda er um gjörólíkar plöntur að
ræða. Eb-mat- og fóðurjurtir inni-
halda DNA sem ekki hefur áður
verið hluti af fæðu manna og dýra.
Erfðatækni breytir hefðbundnum
plöntum með svonefndri genasmíð,
sem ekki er bara samsett úr fram-
andi geni (t.d. úr dýrum, skordýr-
um, fiski, jafnvel mönnum), held-
ur líka bakteríu, vírus og geni sem
framkallar sýklalyfjaónæmi. Mat-
vælum og fóðri er veruleg áhætta
búin frá öllum þessum fjórum
þáttum (sjá www.erfdabreytt.net).
Sá vísindaveruleiki blasir við
að erfðabreyttar plöntur eru gjör-
ólíkar hefðbundnum plöntum. Hvar
sem þær eru ræktaðar til matar,
fóðrunar eða lyfjapróteina skapa
þær heilsufarsáhættu fyrir líf á
landi og í legi sem við erum rétt
að byrja að skilja. Erfðabreyttar
lyfjaplöntur eru einkum áhættu-
samar vegna þess að þær fram-
leiða prótein til nota í lyf og lækn-
ingaefni. Fyrirbyggja verður að
þessi lífvirku prótein komist í mat
eða fóður, beint eða óbeint, hvort
sem er með vindi, jarðvegi eða
vatni. Eina örugga leiðin til rækt-
unar erfðabreyttra lyfjaplantna
er í lokuðum húsum með föstum
gólfum.
Erfðabreyttar plöntur eru ekki öruggar
Neytendamál
Sandra B.
Jónsdóttir
sjálfstætt starfandi
ráðgjafi
AF NETINU
Einstakt atvik
Með ólíkindum
er, að enginn fjöl-
miðill skuli fylgja
eftir fréttinni um
að Ögmundur Jón-
asson, dómsmála-
ráðherra, hafi kallað Valtý Sigurðs-
son, ríkissaksóknara, á teppið til
að skamma hann að ósk feminista
í röðum vinstri-grænna og krefjast
af honum skýrslu um embættis-
færslu hans og ummæli. Þetta er
einstakt atvik í íslenskri réttarsögu.
Ég hef velt fyrir mér, hvernig
fjölmiðlamenn hefðu hundelt mig,
hefði mér dottið í hug að reyna að
hafa áhrif á ákvarðanir ríkissak-
sóknara á þennan veg.
bjorn.is
Björn Bjarnason
S24 = HAGSTÆÐARI
INNLÁNSVEXTIR
• Betri innlánsvextir
• Enginn binditími
• Engin lágmarksupphæð
• Óverðtryggður sparnaður
• Engin úttektarþóknun
• Innlánsvextir 3,45%- 5,35%**
Sparnaðarreikningur S24
% Samanburður á innlánsvöxtum*
SPARNAÐUR FYRIR FYRIRTÆKI
OG EINSTAKLINGA
Í meira en 10 ár hafa einstaklingar getað ávaxtað sparnað sinn hjá S24.
Nú gerum við betur og bjóðum einnig fyrirtækjum og félögum að nýta sér
betri kjör á óverðtryggðum innlánsreikningi okkar.
Kynntu þér málið, það kostar ekkert.
Kíktu á www.s24.is eða hringdu í síma 533 2424 – og þú hagnast.
S24 býður hagstæðari kjör á óbundnum, óverðtryggðum innlánsreikningi.
Það kostar ekkert að stofna sparnaðarreikning hjá S24.
*Á www.keldan.is er að finna samanburð á sambærilegum innlánsreikningum banka og sparisjóða
fyrir 1 milljón til 9.999.999, 10.000.000 til 49.999.999, 50.000.000 – 99.999.999 og 100 milljónir og hærra.
Í öllum þessum flokkum býður S24 upp á hagstæðustu kjörin. Myndin í auglýsingunni tekur mið af
samanburði m.v. 1 milljón til 9.999.999. Upplýsingar eru teknar af www.keldan.is þann 11.10.2010.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
0
1
2
3
4
5
Arion banki
3,40%
Íslandsbanki
3,60%
Landsbankinn
3,65%
MP banki
3,70%
Sparisjóðurinn
4,20%
Byr
4,02%
S24
4,50%
**Skv. vaxtatöflu S24 11.10.2010