Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 38
14. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR
Cooper M+S
Neglanlegt
vetrardekk.
Sérhannað
snjómunstur.
Eitt vinsælasta
vetrardekkið undir
jeppa og jepplinga á
Íslandi í dag.
Michelin Alpin A4
Óneglanlegt vetrardekk.
Umhverfisvænn hjólbarði
fyrir allar gerðir bifreiða.
Allt að 35% meiri ending
en á öðrum hjólbörðum.
Hjólbarðinn er með 10%
meira gripi og styttir
hemlunarvegalengd um
allt að 5% á snjó, ís eða
í rigningu.
Michelin X-Ice North
Negldur hjólbarði.
Umhverfisvænn hjólbarði
fyrir allar gerðir bifreiða.
Frábær hjólbarði sem
veitir mikið öryggi á ís og
í snjó. Hjólbarðinn styttir
hemlunarvegalengd á ís um
allt að 10% og eykur grip í
miklum snjó um allt að 10%.
Kumho KW19
Neglanlegt vetrardekk.
Hjólbarði fyrir allar gerðir
bifreiða.
Hjólbarði með djúpu
munstri og góðu gripi.
Frábær hjólbarði fyrir
þá sem vilja komast á
öruggan hátt í gegnum
vetrarófærðina.
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA WWW.N1.IS Meira í leiðinni
N1 opnaði vefverslun með
dekk um síðustu mánaðamót
inni á vefsíðu sinni www.n1.is.
Fólk getur fundið þar réttu
hjólbarðana á bílinn sinn með
því að slá inn bílnúmerið.
„Það nýjasta í þjónustu N1 er
vefverslun með hjólbarða sem
við settum í loftið 1. október. Við
vonum að fólk nýti sér hana og
horfum ekki síst til landsbyggðar-
innar í því sambandi,“ segir Hlöð-
ver Sigurðsson, deildarstjóri hjá
N1. Hann tekur fram að þeir við-
skiptavinir N1 sem séu með sér-
stök kjör njóti þeirra líka gegnum
vefverslunina. Dagur Benónýs-
son, rekstrarstjóri þjónustuverk-
stæða N1, bætir því við að fólk
geti fundið réttu hjólbarðana á
bílinn í vefversluninni með því að
slá inn bílnúmerið sitt. „Við erum
með fólksbíla-, jeppa-, sendibíla-
, mótorhjóla- og fjórhjóladekk
þarna inni og í framhaldinu mun
fleira bætast við. Felgur munu
til dæmis fara þarna inn áður en
langt um líður.“
N1 er stærsti dekkjainnflytj-
andi landsins og er með allt frá
smæstu hjólbörudekkjum upp
í stærstu vinnuvéladekk sam-
kvæmt upplýsingum Dags og
Hlöðvers. „N1 er umboðsaðili
fyrir Michelin, Cooper, Kumho
og fleiri tegundir,“ segir Dagur.
En hvað ræður því helst hvaða
dekkjategund fólk velur, að hans
áliti. „Það er misjafnt en þeir
sem einu sinni prófa að keyra á
Michelin gera það gjarnan aftur.
Það er vegna þess að Michelin
veitir hámarksöryggi og akst-
urseiginleika, auk þess eru þau
eldsneytissparandi því þau rúlla
léttar en önnur dekk, því veld-
ur gúmmíblandan sem í þeim
er ásamt uppbyggingu hjólbarð-
ans. Þeir sem aka á Michelin eru
kannski að leggja út aðeins meiri
pening í upphafi en þegar upp er
staðið eru þau hagkvæmasti kost-
urinn.“
Hlöðver segir dekk endast mis-
lengi, en það fer eftir aksturslagi
ökumanns og þyngd og gerð bíla.
„En ef við tökum sama ökumann
á sama ökutæki með sama akstur-
lag en á sinni hverri gerðinni af
dekkjum þá telst Michelin skila
honum mun meiri endingu en
aðrar gerðir,“ fullyrðir hann.
Átta hjólbarðaverkstæði eru á
vegum N1 á landinu, sex á höfuð-
borgarsvæðinu, eitt á Akranesi og
eitt í Reykjanesbæ.
„Starfsmenn verkstæðanna
leggja sig fram við að veita fag-
lega þjónustu með bestu tækj-
um sem völ er á,“ segir Dagur og
tekur fram að starfsmenn hjól-
barðaþjónustu N1 hafi margir
hverjir áratuga reynslu. Hann
minnir líka á dekkjahótel N1.
„Þar er fólki boðið að geyma
dekkin sín gegn vægu gjaldi, hjól-
barðarnir eru yfirfarnir, felgurn-
ar þrifnar og fólki gefin ráð um
bestu nýtingu á hjólbörðum. Þessi
þjónusta er vinsæl og mikið notuð.
Við bjóðum líka upp á smurþjón-
ustu á tíu stöðum og erum með
útkallsþjónustu 24 tíma á sólar-
hring sem við köllum N1 Vegaað-
stoð en hún nær til höfuðborgar-
svæðisins, út á Suðurnes, austur
á Selfoss og upp í Borgarnes. Sím-
inn þar er 660-3350.“
Versla með dekk á vefnum
Dagur og Hlöðver innan um dekkin hjá N1 sem er stærsti dekkjainnflytjandi landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þjónustustöð og verkstæði N1 við
Bíldshöfða 2 hafa hlotið óháða
vottun samkvæmt hinum alþjóð-
lega umhverfisstjórnunarstaðli
ISO-14001. Þetta er mikill heiður
og viðurkenning fyrir N1 og vísar
veginn til þess sem koma skal.
Vottunin er afrakstur mark-
vissrar vinnu því umhverfisvæn
hugsun litar alla starfsemi á staðn-
um. Þar fæst til dæmis bæði metan
og bíódísill til jafns við hefðbund-
ið eldsneyti og endurnýting dregur
verulega úr neikvæðum umhverf-
isáhrifum starfseminnar.
N1 á Bíldshöfða 2 er fyrsta þjón-
ustustöðin og eldsneytissalan á
landinu sem fær þessa vottun en
aðeins þrettán fyrirtæki á landinu
hafa staðist þær kröfur sem gerð-
ar eru samkvæmt ISO-14001. Loks
má geta þess að bifreiðaverkstæði
N1 við Bíldshöfða er eitt af fimm
verkstæðum sem hlotið hafa þessa
eftirsóttu vottun.
Vísar til þess sem koma skal
Bjarni Hermann Sverrisson er sölustjóri verkstæðisins á Bíldshöfða 2. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA