Fréttablaðið - 14.10.2010, Side 41
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Í tæp þrjátíu ár hefur Tengi selt
og þjónustað blöndunar- og
hreinlætistæki sem allar götur
síðan hafa sannað sig á mark-
aðnum sem gæðavörur. Tengi
rekur verslanir sínar í Kópavogi
og á Akureyri.
„Tengi stendur fyrir gæði, þjón-
ustu og ábyrgð,“ segir Jón Ari Ey-
þórsson, verslunarstjóri Teng-
is í Kópavogi. „Frá upphafi hefur
markmið fyrirtækisins verið að
bjóða góða og viðurkennda vöru
á frábæru verði og frá þekktum
framleiðendum þar sem byggð
hafa verið upp áralöng og traust
sambönd.“
Jón Ari segir Tengi bjóða gæða-
vörur í öllum verðflokkum og
ávallt kappkosta að þjónusta alla
neytendur.
„Við tökum aldrei óþarfa
áhættu – látum aðra um það.
Okkar hagsmunir eru eingöngu
að bjóða örugga, góða og trausta
vöru, enda stöndum við hundr-
að prósent á bak við það sem við
seljum og eftirþjónustan er okkur
mjög mikilvæg,“ segir Jón Ari
og útskýrir að Tengi selji nánast
allt sem við kemur baðherbergj-
um; allt frá gólfhitakerfum yfir í
sturtuhausa.
„Gólfniðurföll eru fáanleg frá
Kessel í Þýskalandi og Unidrain
í Danmörku, en þeir síðarnefndu
eru frumkvöðlar og með einka-
leyfi á framleiðslu svokallaðra
gólfrenna sem koma alveg upp að
vegg. Dönsku niðurföllin eru úr
ryðfríu stáli sem er afar mikilvægt
og hafa hlotið mörg verðlaun fyrir
framúrskarandi hönnun, nú síðast
Danish Design Awards þann 8. okt-
óber síðastliðinn,“ segir Jón Ari.
Hann bendir á að hreinlætis-
tæki frá Ifö hafi verið til sölu hér-
lendis í næstum hálfa öld og vöru-
úrvalið sé mjög breitt.
„Þar má nefna salerni, hand-
laugar og sturtuklefa, en síðustu
ár hefur Ifö komið sterkt inn með
samsettar baðinnréttingar sem
eru mjög auðveldar í uppsetn-
ingu. Önnur merki í hreinlætis-
tækjum eru til dæmis Keramag og
Sphinx, sem bæði eru framúrskar-
andi vörur,“ segir Jón Ari.
Meðal annarra vörumerkja
Tengis má nefna innbyggðar sal-
ernisgrindur frá Geberit, sem
Tengi hefur selt í um sextán ár og
reynst gríðarlega vel.
„Búnaður, sem að öllu jöfnu
er settur inn í lokaða flísalagða
veggi, verður alltaf að vera fyrsta
flokks. Það á líka við um Vola-
blöndunartækin sem oft eru sett
inn í veggi, en þau eru hönnuð af
Arne Jacobsen, þeim heimþekkta,
danska arkitekt. Þá selur Tengi
einnig þýsku blöndunartækin frá
Hansa,“ segir Jón Ari um ríkulegt
vöruúrval Tengis í baðherbergi
landsmanna.
„Lykilatriði í okkar huga er
framúrskarandi varahlutaþjón-
usta og rekum við verkstæði bæði
á Akureyri og í Kópavogi þar sem
öll okkar tæki eru þjónustuð. Einn-
ig er gaman að geta þess að hjá
Tengi starfar sérstakur þjónustu-
stjóri sem leysir úr öllum málum
sem upp geta komið,“ segir Jón Ari
að lokum.
Gæði, þjónusta og ábyrgð
Jón Ari Eyþórsson er verslunarstjóri Tengis, þar sem finna má hvaðeina sem prýða má og nýta í einu baðherbergi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tengi hefur nú selt
Mora-blöndunartæki í
aldarfjórðung, eða allt
frá árinu 1985. Þau hafa reynst einstak-
lega vel í íslenskum aðstæðum og neyt-
endur verið ánægðir með kaupin. Aðals-
merki Mora-blöndunartækja hefur verið
einföld uppsetning og tækin byggja á fáum
varahlutum.
Fyrr á þessu
ári var sett á
markaðinn ný
lína sem ber
nafnið MoraMIXX
og hefur henni verið
tekið fagnandi, eins
og öðrum línum Mora.
Frá fyrstu tíð hefur framleiðendum Mora
verið umhugað um umhverfið og öll blöndun-
artæki sem
þeir framleiða eru
vottuð í samræmi
við gæðakröfur og reglugerðir
er varða flutning á neysluvatni og
rennslishávaða í neysluvatnskerfum.
„Þar hefur samsetning málma í tækjun-
um mikið að segja, sérstaklega hvort blýinni-
hald er mikið eða í þeim aðrir ódýrir þung-
málmar sem við viljum að sjálfsögðu ekki fá
út í neysluvatnið sem við drekkum alla daga,“
segir Jón Ari.
Falleg og umhverfisvæn
Þessi Mora Mixx blönd-
unartæki eru falleg á
handlaugar.
Nýja Mora
Mixx blöndunar-
tækislínan
fyrir bað-
karið.
Geberit
salernisgrindur
Innbyggðar salernis-
grindur frá Geberit sem
reynst hafa gríðarlega
vel á Íslandi í áratugi.
Margar lausnir í boði fyrir allar aðstæður,
mikið úrval af þrýstispjöldum.
Unidrain
frá Danmörku eru
frumkvöðlar og með
einkaleyfi á framleiðslu
á svokölluðum
gólfrennum sem koma
alveg upp að vegg.
Þessi dönsku niðurföll
eru úr ryðfríu stáli sem
er mjög mikilvægt og
hafa þau hlotið mörg
verðlaun fyrir framúrskarandi
hönnun.
Helstu kostir þeirra eru:
• Ryðfrí
• Unidrain er einfaldara og örugg í uppsetningu
• Vinna við flísalögn verður auðveldari, vatnshalli aðeins í
eina átt
• Auðvelt að þrífa
• Útkoman verður nútímalegt, sígilt og glæsilegt baðberhergi