Fréttablaðið - 14.10.2010, Síða 44
14. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR
Verkstæði Pitstop bjóða upp á
fjölbreytta þjónustu, til dæmis
smur- og smáviðgerðir ásamt
því að vera dekkjaverkstæði.
„Við höfum verið á dekkjamark-
aðinum í hátt í tíu ár, fyrst undir
nafninu Dekkjalagerinn, sem
margir kannast eflaust við, en
höfum rekið verkstæðin undir
nafninu Pitstop frá árinu 2005.
Fyrirtækið hefur frá upphafi
haft þjónustu og dekkjaúrval á
góðu verði sem aðalsmerki fyr-
irtækisins,“ segir Sigurður Ís-
leifsson, innkaupa- og sölustjóri
hjá Pitstop. Pitstop rekur í dag
verkstæði í Reykjavík og Hafn-
arfirði og bjóða þau upp á fjöl-
breytta þjónustu svo sem smur-
og smáviðgerðir ásamt því að
vera dekkjaverkstæði. Verkstæð-
in eru við Rauðhellu 11 og Hjalla-
hraun 4 í Hafnarfirði og í Duggu-
vogi 10 í Reykjavík.
Hjá Pitstop á að vera hægt að
finna allar helstu gerðir og týpur
dekkja, allt frá hjólbörudekkjum
og upp úr. „Nýverið höfum við
byrjað að flytja inn nýja tegund
vinnuvéladekkja frá indverska
dekkjarisanum BKT sem er með
mjög breiða línu af dekkjum fyrir
vinnuvélar, eða allt frá smæstu
hjólbörudekkjum upp í stærstu
hjólaskófludekk,“ segir Sigurður.
Pitstop er enn að auka við dekkja-
úrvalið og nú síðast eru það góðir
samningar við hollenska fyrir-
tækið Interstate Tire and Rubber
sem býður upp á vetrar- og sum-
ardekk á mjög góðu verði. „Int-
erstate er mjög umhugað um um-
hverfisþáttinn í sinni framleiðslu
og leggur ríka áherslu á að fylgt
sé í einu og öllu reglugerðum ESB
þar að lútandi.“
Höfuðstöðvar Pitstop eru á
Rauðhellu í Hafnarfirði. Þar er
pláss undir stóran hjólbarðalag-
er fyrirtækisins sem ekki veitir
af því salan er góð og eykst ört
vegna aukinnar sölu til annarra
verkstæða um allt land. Í Rauð-
hellunni er að finna smurstöð og
stórt dekkjaverkstæði með full-
komnum vélakosti fyrir allar
gerðir dekkja og bíla. „Við getum
tekið stærstu vörubíla og vinnu-
vélar inn,“ segir Sigurður. Hann
getur þess jafnframt að nafni
hans, Siggi Ævars, ráði ríkjum á
þessu verkstæði og hann sé mikill
reynslubolti í bransanum. Sömu
sögu segir hann um verkstjórana
í Dugguvoginum og Hjallahrauni,
þá Arnþór Hálfdánarson og Guð-
berg Björnsson. Undir þeirra
stjórn geti viðskiptavinir treyst
því að öll vinna sé fyrsta flokks
enda séu verkstæðin búin bestu
vélum og tækjum sem völ sé á. „Í
Hjallahrauni er aðstaða til ýmissa
smáviðgerða, smurstöð og hjóla-
stillingar ásamt góðum dekkja-
lager og því ekkert til fyrirstöðu
að hafa samband við Begga og
strákana með nánast hvaðeina
sem varðar bílinn eða dekkin,“
segir hann. Ásamt stórum lager
í Rauðhellu eru verkstæðin í
Dugguvoginum og Hjallahrauni
með góðan lager af dekkjum í
öllum verðflokkum.
„Hjá Pitstop reynum við
stöðugt að mæta kröfum og vænt-
ingum viðskiptavina okkar og
gott betur. Við höfum á undan-
förnum árum byggt traust lang-
tímasamband við stóran og ört
stækkandi kúnnahóp sem meðal
annars sést á aukningu í geymslu-
dekkjum en það er þjónusta sem
við höfum lagt mikið upp úr í
nokkur ár. Það er einn af helstu
þáttum í okkar starfsemi að veita
öllum viðskiptavinum okkar óað-
finnanlega þjónustu og við erum
með mjög öfluga vegaaðstoð sem
viðskiptavinir okkar hafa kunn-
að vel að meta. Við erum með
öflugan þjónustubíl sem veitir
vegaaðstoð þegar þess er þörf og
dælir upp úr bensíntönkum þegar
menn hafa verið svo óheppnir að
dæla röngu eldsneyti á bílinn
og margt fleira,“ segir Sigurður
en þjónustubíllinn sinnir svæð-
inu frá Hvalfjarðargöngum til
Suðurnesja.
Með dekk á hjólbörur og
upp í stærstu hjólaskóflur
Sigurður Ísleifsson, innkaupa- og sölustjóri hjá Pitstop, segir aðalsmerki fyrirtækisins vera þjónustu og dekkjaúrval.
„Það var aðeins hluti lagersins
sem varð fyrir tjóni. Vörubíla-
verkstæðið, smurstöðin og fólks-
bílaverkstæðið urðu ekki að neinu
leyti fyrir skakkaföllum af völd-
um eldsvoðans,“ segir Sigurð-
ur Ísleifsson hjá Pitstop en hluti
dekkjalagers fyrirtækisins að
Rauðhellu í Hafnarfirði fuðraði
upp aðfaranótt þriðjudags.
„Við erum þegar byrjaðir á
uppbyggingu,“ segir Sigurður
og bendir á að Pitstop eigi enn
ágætan lager sem geymdur sé
bæði í gámum og öðru
húsnæði á svæðinu.
„Við erum síðan byrj-
aðir á því að viða að
okkur nýjum lager
og ætlum að koma
því öllu á rétt ról
eftir tvær eða þrjár
vikur.“
Sigurður lýsir
því að tvö hólf hafi
brunnið. Annað sé al-
gerlega ónýtt en hitt
hafi skemmst minna.
Næsta skref verð-
ur að hreinsa út úr
því húsnæði sem
enn er nothæft
og lagfæra það.
Sigurður
gerir ráð fyrir
að allar trygg-
i nga r fyr i r -
tækisins séu í
lagi. „Svo brett-
um við bara upp
ermarnar og höld-
um áfram.“
Bretta upp ermar og halda áfram
Vörubíladekk
Hægt að bora og
negla. Fáanleg í
mörgum stærðum.
Allir verðflokkar,
mismunandi
munstur.
Sóluð vörubíladekk.
Hægt að negla flest
munstur.
Fáanleg í fjölmörgum
stærðum.
Góð verð í boði.
Dugguvogi 10, Rvk. • Sími 568 2020 • Hjallahrauni 4, Hfj. • Sími 565 2121
Rauðhellu 11, Hfj. • Sími 568 2035
Mastercraft
Courser CT og
Mastercraft MSR.
INT-WinterIWT2-1a
Sailun Iceblazer
IBWST1