Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 64
44 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
> ORÐUÐ VIÐ ALIEN
Leikkonan Natalie Portman hefur
verið orðuð við aðalhlutverkið í nýrri
Alien-mynd sem Ridley Scott er með
í undirbúningi. Myndin á að gerast á
undan fyrstu myndinni sem
kom út árið 1979. Talið er að
helsti keppinautur Portman
um hlutverkið sé Noomi
Rapace, sem lék aðalhlut-
verkið í Millennium-þrí-
leiknum sem byggður er á
bókum Stiegs Larsson.
Aaron Sorkin er handrits-
höfundur The Social Net-
work sem er komin í kvik-
myndahús hérlendis.
Fréttablaðið hitti hann á
blaðamannafundi í París
þar sem hann ræddi um
Facebook, einkalíf og eitur-
lyfjanotkun sína.
Bandaríkjamaðurinn Aaron Sork-
in er handritshöfundur The Soci-
al Network sem fjallar um stofn-
anda Facebook, Mark Zuckerberg,
og málshöfðanir gegn honum
skömmu eftir að þessi vinsæla síða
var stofnuð.
Sorkin er afar virtur á sínu sviði
enda hefur hann skrifað handrit að
myndum á borð við A Few Good
Men og The American President
auk hinna margverðlaunuðu sjón-
varpsþátta The West Wing. „Þegar
ég tók þetta verkefni að mér vissi
ég ekkert um Facebook. Ég hafði
heyrt um Facebook alveg eins og
ég hafði heyrt um blöndung í bíl.
Ég get ekki opnað húddið á bílnum
og sagt hvar hann er og ég get ekki
lagað hann fyrir nokkra muni,“
segir hinn 49 ára Sorkin. „Það var
ekki Facebook sem dró mig að
þessari mynd. Facebook er áhuga-
verður og í raun kaldhæðnisleg-
ur bakgrunnur sögu sem hefur að
geyma elsta umfjöllunarefni sem
til er. Þessi mynd snýst um vinskap,
tryggð, svik, afbrýðisemi og völd,
rétt eins og Shakespeare og fleiri
hafa skrifað um í gegnum tíðina.“
Sorkin segir að handritaskrif
sem slík geri lítið fyrir sig. Það er
ekki fyrr en leikarar eru komnir í
spilið og kvikmyndatökur hefjast
að hann verður virkilega ánægð-
ur. „Ég fæ mikið út úr því að fylgj-
ast með framvindunni til enda og
sjá lokaútkomuna. Mér finnst lið-
síþróttir skemmtilegri en einstakl-
ingsíþróttir. Ég fíla hljómsveitir
miklu betur en sólótónlistarmenn
og mér leið eins og að vera í hljóm-
sveit að vinna með David [Fincher
leikstjóra], leikurunum og fólkinu í
kringum myndina,“ segir hann.
Handtekinn með eiturlyf
Einkalíf fólks er áberandi á Face-
book en þó þannig að þeir sem eru
virkir á síðunni ráða því alfar-
ið sjálfir hvers konar mynd þeir
draga upp af sjálfum sér. Sorkin
hugsaði mikið um málefni tengd
einkalífi í tengslum við The Social
Network.
„Mitt eigið einkalíf sprakk í loft
upp í apríl 2001 þegar ég gerði
mjög heimskulegan hlut. Ég var
handtekinn á flugvelli með eiturlyf
í töskunni minni. Þetta var í fyrsta
sinn sem almenningur fékk að
kynnast minni raunverulegu per-
sónu. Fram að þessu hafði ég birst
í gegnum persónurnar sem ég bjó
til sem voru allar mjög rómantísk-
ar, heillandi og gáfaðar. Þetta voru
persónur sem þú vildir eiga sem
vini, samstarfsfélaga og jafnvel
forseta. Síðan kom í ljós að þessi
náungi sem var að búa þær til var
háður eiturlyfjum,“ segir Sorkin,
sem hefur verið allsgáður eftir að
hann fór í afvötnun skömmu eftir
atvikið. „Í framhaldinu leið mér
eins og allur heimurinn væri að
fylgjast með mér. Núna, ef ég fer
á stefnumót, er það ekkert einka-
mál heldur fylgjast fjölmiðlar með
manni og almenningur gagnrýnir
mann. Þetta er fórnarkostnaðurinn
við þennan starfsvettvang,“ segir
hann. „Veröldin er orðin þannig að
við skemmtum okkur yfir einka-
lífi annars fólks og það er hvorki
gott né dyggðugt.“ Hann gagnrýn-
ir raunveruleikaþætti á borð við
The Bachelor, sem hann telur langt
því frá raunverulega, ekki frekar
en það hvernig orðið „félagslíf“ er
nefnt í sömu andrá og Facebook.
„Við erum að skemmta okkur yfir
göllum annars fólks. Fyrstu tvær
vikurnar í American Idol snúast
um að benda á og hlæja að fólk-
inu sem getur ekki sungið. Svona
á maður ekki að gera, að skemmta
sér yfir niðurlægingu annarra.
Það gerir okkur að grimmari og
heimskari einstaklingum og ég er
á móti slíku.“
Vélar stjórna félagslífinu
Sorkin segir að Mark Zucker-
berg hafi með Facebook búið til
verkfæri sem gat sýnt gallalausa
útgáfu af honum sjálfum. Það sé
helsta vandamálið við síðuna því
hún sýni aðeins einhliða útgáfu
af notendum sem virðist laus-
ir við alla galla. „Hafið þið hitt
einhvern, sem þið hafið aldrei
áður hitt, eftir að þið kynntust
honum á Facebook?“ spyr Sork-
in. „Ég byrjaði með Facebook-
síðu í tengslum við þessa mynd
og þessi fyrstu kynni valda fólki
alltaf vonbrigðum. Ég held við
ættum að vera ánægð með að
við erum öll mannleg. Allir sem
eru í hjónabandi kannast við að
maður fer að elska þessa ófull-
komnu hluti við makann sinn.
Þegar vélar eru farnar að taka
þátt í félagslífi fólks verð ég
alltaf taugaóstyrkur.“
freyr@frettabladid.is
Gallalaust fólk á Facebook
AARON SORKIN Handritshöfundurinn segir það ekki sniðugt að skemmta sér yfir
óförum annarra. NORDICPHOTOS/GETTY
Bíó ★★★★
The American
Leikstjóri: Anton Corbijn.
Aðalhlutverk: George Clooney, Thekla Reuten, Violante Placido,
Paolo Bonacelli.
Kani í völundarhúsi
George Clooney kallar sig Jack og er staddur í Svíþjóð á fyrstu mínútum
kvikmyndarinnar The American. Þar berst hann við byssuglaða snáða í
snjónum og hefur betur. Skömmu síðar gengur hann undir nafninu Edward í
smáþorpi á Ítalíu þar sem örlög hans munu ráðast.
Í fyrstu dregst
áhorfandinn inn
í sögufléttuna
en þegar líða
tekur á myndina
kemur í ljós að
hún skiptir ekki
máli. Hver mun
drepa hvern og
af hverju? Hverjir
eru sannir
bandamenn
Ameríkanans
og hverjir munu stinga hann í bakið? Edward treystir engum vegna þess
að hann er í helvíti. Vingjarnlegur prestur reynir að benda honum á það en
líklega er það orðið of seint.
Aftanverð eyrun á George Clooney eru í miklu aðalhlutverki. Við sjáum
aftan á hann þar sem hann gengur hægum en ákveðnum skrefum um
þröng og tómleg stræti þorpsins, fram og til baka. Það er líkt og hann sé
staddur í völundarhúsi án útgönguleiðar.
Það eru engar sprengingar í myndinni. Hún býður áhorfandanum upp á
merkilegri og betri hluti en það. Á endanum stoppar sýningarvélin en kvik-
myndin heldur áfram. Tveir sólarhringar hafa liðið og ég er ennþá að horfa á
The American.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Falleg og djörf mynd sem tekur tíma að melta. Þeir sem vilja
hasar verða vonsviknir.
Hin ungu og upprennandi Alice
Eve og Luke Evans eru í viðræð-
um um að leika á móti John Cus-
ack í spennumyndinni The Raven
sem er byggð á samnefndu ljóði
Edgars Allans Poe. Leikstjóri
er James McTeigue sem
hefur á ferilskránni mynd-
irnar V for Vendetta og Ninja
Assassin.
Evans, sem lék síðast í
Hróa Hetti á móti Rus-
sell Crowe, fékk hlutverk-
ið eftir að Jeremy Renn-
er ákvað frekar að leika
í Mission: Impossible 4.
Evans leikur rannsóknar-
lögreglumann sem ásamt
Cusack leitar að raðmorðingja sem
hefur rænt unnustu skáldsins Poe
(Eve) og er byrjaður að myrða fólk
þar sem hann hermir eftir verkum
skáldsins. Eve vakti síðast athygli í
rómantísku gamanmyndinni She’s
Out of My League og lauk nýver-
ið tökum á bresku gamanmynd-
inni The Decoy Bride. Undanfarið
hefur hún leikið í spennumyndinni
ATM en á meðal næstu mynda
Luke Evans eru Skytturnar þrjár
og Tamare Drewe þar sem hann
leikur á móti Gemmu Arterton.
Tökur á The Raven hefjast 25. okt-
óber og fara þær fram í Búdapest
og í Serbíu. Sögusviðið er Baltimore
árið 1849.
Ráðin í The Raven
ALICE EVE Eve vakti athygli í gamanmyndinni She’s Out of
My League. NORDICPHOTOS/GETTY
AÐALLEIKARAR Aðalleikarar The Social Network, þeir Justin Timberlake, Andrew
Garfield og Jesse Eisenberg.