Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 72
52 14. október 2010 FIMMTUDAGUR GARNDEILDIR NETTÓ ERU Í MJÓDD, HVERAFOLD OG REYKJANESBÆ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST FRÁBÆRT VERÐ Í NETTÓ! PRJÓNUM FYRIR JÓLIN Álafosslopi 344kr Loðband Einband 234kr Léttlopi 184krPlötulopi 314kr FÓTBOLTI Víkingur undirstrik- aði metnað sinn fyrir komandi sumar í gær þegar liðið samdi við einn helsta markahrelli landsins, Björgólf Takefusa. Björgólfur er annar leikmaðurinn sem Víking- ur fær á skömmum tíma en Pétur Georg Markan kom til félagsins frá Fjölni á dögunum. „Ég var mjög spenntur fyrir Víkingi allt frá því þeir töluðu við mig fyrst. Ég var bara búinn að heyra jákvæða hluti um félag- ið. Þegar ég hitti síðan Björn for- mann var aldrei spurning um að fara í félagið. Ástríðan og metnað- urinn sem hann hefur fyrir félag- inu er svakaleg. Ég sagði við hann að með þessum ákafa gæti hann fengið menn til þess að spila frítt fyrir félagið,“ segir Björgólfur sem játar þó að fá greitt fyrir sína vinnu í Víkinni. Björgólfur hefur verið hjá KR undanfarin fimm ár og notið þar mikillar velgengni. Skorað mikið og verið einn öflugasti framherji úrvalsdeildarinnar. En af hverju fór hann frá KR? „Ég var kominn með leiða á umhverfinu hjá KR. Ég vil samt ekki að fólk haldi að ég fari þaðan í einhverju fússi. Það er ekki svo. Ég skil í mesta bróðerni og mér þykir mjög vænt um KR. Það var kominn tími fyrir mig að skipta um umhverfi og ég er mjög ánægð- ur að vera kominn í Víking. Ég er gríðarlega spenntur fyrir næstu árum þar enda er metnaðurinn mikill,“ segir Björgólfur og bætir við að honum þyki leiðinlegt að fá ekki almennilegt tækifæri til þess að kveðja það góða fólk hjá KR sem hefði veitt honum stuðn- ing á síðustu árum. „Ákvörðunin um að fara í Víking er fyrst og fremst fótboltalegs eðlis en ekki fjárhagsleg. Ég hef heyrt að mórallinn þarna sé frábær og að hjá liðinu sé mikil liðsheild. Mig langar að komast í félag þar sem er mikil liðsheild. Á fimm árum hjá KR hef ég ekki verið hluti af sterkri liðheild. Það er stór ástæða fyrir því að ég breyti til núna. Eitt af því sem gerir fótboltann skemmtileg- an er að vera hluti af sterkri liðs- heild og mig langar að komast í slíkt umhverfi,” sagði Björgólfur Takefusa. henry@frettabladid.is Vildi breyta um umhverfi Framherjinn Björgólfur Takefusa samdi til þriggja ára við Víking í gær. Hann segist skilja í góðu við KR þó svo hann hafi verið orðinn þreyttur hjá félaginu. GÓÐIR SAMAN Björgólfur segir að hann hlakki til að vinna með Leifi Garðarssyni þjálfara sem er hér afar kátur með nýjasta liðsstyrkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Markameti Ellerts B. Schram hjá KR verður ekki ógnað í bráð eftir að ljóst varð að Björgólfur Takefusa myndi ekki spila áfram með Vesturbæj- arliðinu. Björgólfur samdi í dag við Víking eftir að hafa spilað með KR undanfarin fimm ár en hann var farinn að nálgast metið óðfluga. Ellert B. Schram skoraði 62 mörk í 132 leikjum á sínum tíma og hafði ellefu marka forskot á Þórólf Beck síðan hann lagði skóna á hilluna. Þetta forskot minnkaði í fyrsta sinn í fjóra áratugi í sumar. Björgólfur Takefusa skoraði sex mörk í sumar og það síðasta var fimmtugasta markið hans fyrir KR í efstu deild. Hann var því tólf mörkum frá meti Ell- erts. - óój Markahæstu leikmenn KR frá upphafi: Ellert B. Schram 62 mörk Björgólfur Takefusa 50 Þórólfur Beck 49 Gunnar Felixson 44 Guðmundur Benediktsson 43 Einar Þór Daníelsson 42 Björgólfur farinn frá KR: Markamet Ellerts úr hættu ELLERT B. SCHRAM Skoraði 62 mörk fyrir KR í efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓTBOLTI Bandaríkjamaðurinn John Henry var mættur á stjórn- arfund hjá Liverpool í gærkvöld en hann mun væntanlega eignast félagið fljótlega. Dómstólar í Bretlandi hafa úrskurðað að stjórn Liverpool hafi verið heimilt að selja Henry félagið en núverandi eigendur félagsins voru ósáttir við söluna og skutu henni til dómstóla. Í kjölfar dómsins fundaði stjórn Liverpool og Henry mætti frekar óvænt á stjórnarfundinn enda var talið að stjórn Liverpool myndi fara yfir önnur tilboð sem borist höfðu á síðustu dögum. Peter Lim, kaupsýslumaður frá Síngapúr, gerði til að mynda nýtt og betra tilboð í félagið eftir að málefni Liverpool fóru fyrir dómstóla. Vera Henry á fundinum í gær þykir þó renna stoðum undir það að stjórn Liverpool muni taka til- boði hans eins og upphaflega stóð til að gera. - hbg Salan á Liverpool lögleg: Henry að eign- ast Liverpool JOHN HENRY Er líka eigandi hafnabolta- liðsins Boston Red Sox. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.