Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 6
6 29. október 2010 FÖSTUDAGUR
Hárs tofan Hæðarsmár i 6 S ími : 544 4455
Íris Hlín, Íris Telma og Kolla hafa hafið störf
á hárgreiðslustofunni Space í Kópavogi og
vilja bjóða gamla sem og nýja
viðskiptavini velkomna.
Bjóðum 15% afslátt til 20. nóvember!
Sími 544 4455
9.990 (fullt verð 11.990)
Bíldshöfða - Sími 585 7220 - OPIÐ ALLA DAGA
36 g #3, #4, #5, 25 stk.
42 g #1, #3, #4, #5. Verð: 2.290 25 stk.
STJÓRNMÁL Tillögur um niðurskurð
hjá heilbrigðisstofnunum á lands-
byggðinni verða endurskoðaðar.
Að sögn Odd-
nýjar G. Harðar-
dóttur, formanns
fjárlaganefnd-
ar Alþingis, er
hlustað á hávær-
ar raddir um
óraunhæfar til-
lögur um niður-
skurð í fjárlaga-
frumvarpinu og
reynt að finna
leiðir til að milda áhrif efnahags-
ástandsins á starfsemi heilbrigðis-
kerfisins úti um land.
„Það er þverpólitísk sátt um að
endurskoða þetta og það verður
gert,“ segir Oddný. Hins vegar sé
ekki hægt að lofa því að enginn nið-
urskurður verði. „Það er óábyrgt.
Við höfum ákveðnar tekjur og verð-
um að aðlaga gjöldin að þeim. Ef við
gerum það ekki erum við í tjóni til
framtíðar.“
Oddný vill ekki segja til um hve
háar fjárhæðir um er að tefla né
hvaðan peningarnir sem draga eiga
úr niðurskurðinum eiga að koma.
Hún vill heldur ekki upplýsa um
hve margar stofnanir sé að ræða.
„Ég vil ekki vekja upp vænting-
ar og þurfa að svíkja þær. Slíkt er
óábyrgt,“ segir Oddný.
Að meðaltali nemur niðurskurð-
ur á þrettán heilbrigðisstofnunum
tæpum tuttugu prósentum sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu. Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga er gert
að skera niður um fjörutíu prósent,
St. Jósefsspítala-Sólvangi um 37
prósent, Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki um þrjátíu prósent og
Heilbrigðisstofnun Austurlands,
Heilbrigðisstofnuninni í Vestmanna-
eyjum og Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja á milli 20 og 30 prósent.
Samtals nemur niðurskurður á
heilbrigðisstofnunum tæpum þrem-
ur milljörðum króna.
Fjárlagafrumvarpið hefur verið
til meðferðar fjárlaganefndar í þrjár
vikur. Hafa nefndarmenn hlýtt á
sjónarmið sveitarstjórnarfólks
og ráðuneyta til frumvarpsins og
fram undan eru viðtöl við fulltrúa
stofnana. Þá hefur nefndin falið fag-
nefndum þingsins að veita umsögn
og Ríkisendurskoðun að yfirfara
ýmsar tölur frumvarpsins.
bjorn@frettabladid.is
Niðurskurðartillögur
verða endurskoðaðar
Formaður fjárlaganefndar segir þverpólitíska sátt um að endurskoða niðurskurð-
artillögur hjá heilbrigðisstofnunum. Finna þurfi leiðir til að milda áhrif efna-
hagsástandsins á starfsemi þeirra. Sparnaður sé engu að síður óumflýjanlegur.
ODDNÝ
HARÐARDÓTTIR
UNDIR HNÍFNUM Heilbrigðisstofnunin á Suðurnesjum er ein þeirra stofnana sem er
ætlað að skera niður í rekstri sínum samkvæmt fjárlagafrumvarpinu.
INDÓNESÍA, AP Tala látinna á Ment-
awai-eyjum í vesturhluta Indónes-
íu var í gær komin í 343 eftir leit
björgunarsveita. Stjórnvöld telja
að hundruð manna sem enn er
saknað kunni að hafa borist á haf
út með flóðbylgjunni sem þar reið
yfir 25. október. Eldgos í fjallinu
Merapi á eyjunni Jövu hófst stuttu
eftir jarðskjálftann sem hratt flóð-
bylgjunni af stað.
Gosið sem kostaði 33 lífið hjaðn-
aði um stund, en hefur nú hafist
aftur, þótt engar fregnir séu um
frekari mannskaða eða eignatjón.
Í gær var haldin fjöldaútför
meðan drunurnar í Merapi-fjalli
lægði. Náttúruhamfarirnar, sem
áttu sér stað á ólíkum stöðum
Indónesíu á innan við sólarhring,
hafa reynt verulega á viðbúnað
almannavarna.
Eyjabúar á Mentawai, þar sem
þriggja metra há alda reið yfir og
sópaði burt húsakosti, hafa hafst
við undir tjalddúkum. Fjöldi fólks
hefur líka flúið til fjalla og neitar
að snúa aftur heim af ótta við að
önnur flóðbylgja ríði yfir.
Stjórnvöld segja að rándýrt við-
vörunarkerfi sem sett var upp
eftir flóðbylgjuna sem reið yfir á
annan í jólum 2004 hafi bilað fyrir
mánuði síðan þar sem því hafi ekki
verið almennilega við haldið. Þýsk-
ur starfsmaður verkefnisins segir
aftur á móti að kerfið hafi virkað,
en vegna þess hve uppruni skjálft-
ans hafi verið nærri Mentawai-
eyjunum hafi reynst ómögulegt
að vara íbúa þar við áður en flóð-
bylgjan reið yfir. - óká
EFTIR FLÓÐ Kona sem missti bæði hús
og mann í flóðbylgju á Pagai-eyju og
dætur hennar tvær gráta missi fjölskyld-
unnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hundraða manna saknað eftir flóðbylgju:
Tæplega 350 manns
hafa látist í Indónesíu
ÞJÓNUSTA Blindrafélagið hefur
tekið þá ákvörðun að sækja rétt
lögblindra Kópavogsbúa til ferða-
þjónustu. Lögmaður hefur verið
settur í málið og ætlast félag-
ið til þess að Kópavogsbær fylgi
ákvæðum og lögum í samningi
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðra einstaklinga.
Blindrafélagið hefur leitað
eftir viðræðum við bæjaryfir-
völd í Kópavogi um málið en því
hefur ekki verið sinnt til þessa. Í
tilkynningu frá félaginu kemur
fram að þjónustustig Ferðaþjón-
ustu fatlaðra sé ekki ásættanlegt
í mörgum tilvikum. - sv
Blindrafélagið sækir rétt sinn:
Kópavogur skal
bæta þjónustu
MENNTAMÁL Foreldrar hafa full-
an rétt á því að fara fram á, án
skýringa, að börn þeirra taki
ekki þátt í kennslu eða athöfnum
sem viðkomandi telur ekki sam-
ræmast eigin skoðunum eða trú-
arbrögðum. Kemur þetta fram í
lögfræðiáliti um samstarf kirkju
og skóla sem unnið var að beiðni
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins.
„Með álitinu er verið að skerpa
skilin,“ segir Katrín Jakobsdótt-
ir, mennta- og menningarmála-
ráðherra. „Það er til að mynda í
lagi að fara í kirkju einu sinni á
vetri en ekki í
hverjum mán-
uði. Þetta var
meðal annars
gert til þess
að upplýsa for-
eldra.“
Varðandi
heimsóknir
presta á skóla-
tíma, segir í
álitinu að nauð-
synlegt sé að
foreldrar séu látnir vita af þeim
fyrirfram og gætt sé að því að
ekkert ósamræmi sé í heimsókn-
um þeirra annars vegar og frá
öðrum trúfélögum hins vegar.
Heimsóknir skuli falla að skipu-
lagi náms og vera í samræmi við
það.
Lögmætt er að kenna kristin-
fræði sem hluta af opinberu
námsefni en skólar skuli þó bjóða
börnunum önnur námsúrræði
óski foreldrar eftir því.
Á heimasíðu ráðuneytisins
kemur fram að álitið sé ekki sett
fram sem skoðun ráðuneytisins,
heldur einungis sem fræðileg og
hlutlæg úttekt á þeim álitamálum
sem um ræðir. - sv
Ráðuneytið lét gera lögfræðiálit á samstarfi skóla og Þjóðkirkjunnar:
Þurfa ekki að læra um kristni
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
MENNTAMÁL Rúmlega fimmtíu
skólastjórar og prestar funduðu
um samstarf skóla og kirkjunn-
ar í Neskirkju í gær. Tilefnið var
tillaga mannréttindaráðs Reykja-
víkurborgar um breytingar á
starfinu.
Fram kom meðal annars á
fundinum að nokkrir skólastjór-
ar telja að þegar samstarf kirkju
og skóla sé á forsendum skólans
og að höfðu samráði við foreldra
styðji það við skólastarfið. Hvorki
formaður mannréttindaráðs né
menntaráðs þáði boð á fundinn. - sv
Kirkja og skólar funda:
Um 50 prestar
og skólastjórar
MOSKVA, AP Eldgos á Kamtsjatka-
skaga í austurhluta Rússlands
hefur truflað flug og hulið bæi
ösku. Rossiya 24 sjónvarpsstöðin
hefur eftir Sergei Seníúkov eld-
fjallafræðingi að öskuský hafi náð
allt að tíu kílómetra hæð og færist
í austur yfir Kyrrahaf.
Almannavarnir Rússlands
sögðu í gær að öskuský frá eld-
fjöllunum Sjívulets og og Klútsjet-
skæja röskuðu flugi á svæðinu.
Þá er skyggni í rússneska bænum
Ust-Kamtjatsk sagt komið niður
í örfáa metra og þykkt öskulag á
jörðinni. Fimm þúsund íbúar bæj-
arins eru ekki sagðir í hættu, en
hvattir til að halda sig innan dyra
með lokaðar dyr og glugga. - óká
Gos truflar flug á Kamtsjatka:
Öskuský færist
yfir Kyrrahaf
FÉLAGSMÁL Endurvekja ætti
verkamannabústaðakerfið og
raunhæft kaupleigukerfi fyrir
almennt launafólk að mati ASÍ.
Í ályktun ársfundar sam-
bandsins er þess krafist að grip-
ið verði tafarlaust til aðgerða til
að taka á „yfirþyrmandi skulda-
og greiðsluvanda heimilanna“.
Koma verði til móts við lántak-
endur vegna mikilla hækkana á
höfuðstóli lána frá bankahrun-
inu haustið 2008. Ársfundur-
inn krafðist þess að stöðugur og
sanngjarn leigumarkaður verði
efldur, og vörður staðinn um
vaxta- og húsaleigubætur. - bj
Ályktun um húsnæðismál:
Vilja fá verka-
mannabústaði
Hefur þú neytt fæðubótarefna?
Já 41,2%
Nei 58,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú siglt með Herjólfi?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
KJÖRKASSINN
DÓMSMÁL Fyrrverandi gjaldkeri
Leikfélags Dalvíkur hefur verið
dæmdur í fjögurra mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjár-
drátt.
Konan var ákærð fyrir að hafa
dregið sér tæplega 1,7 milljónir
króna af reikningi leikfélags-
ins sem hún notaði síðan til eigin
neyslu. Féð dró hún sér á rúm-
lega einu ári, frá nóvember 2008
til desember 2009.
Konan viðurkenndi skýlaust
sök sína fyrir dómi. Við ákvörðun
refsingar leit dómurinn til þess
en einnig þess að með hinni refsi-
verðu háttsemi aflaði hún sér
verulegra fjármuna. - jss
Dæmdur fyrir fjárdrátt:
Gjaldkeri leikfé-
lags dró sér fé
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi forsæt-
isráðherra Ítalíu segir „fjölmiðla-
þvætting“ að vændiskona undir
lögaldri hafi verið á heimili hans
fyrir tilstilli tveggja starfsmanna
sjónvarpsstöðvar í hans eigu.
Í frétt dagblaðsins Corriere
della Sera í gær segir að frétta-
stjóri og framleiðandi hjá Medi-
aset sæti rannsókn lögreglu fyrir
milligöngu um vændiskaup hjá
Ruby, 17 ára gamalli marókkóskri
stúlku. Ruby er í yfirheyrslum
sögð hafa sagt að hún hafi verið
í mat í lystihúsi Berslusconis
skammt frá Mílanó, en neitar
því að forsætisráðherrann hafi
haft við hana mök. Lögfræðing-
ur Berlusconis segir um staðlausa
stafi að ræða. - óká
BERLUSCONI Ítalski forsætisráðherrann
hefur í annað sinn á tveimur árum verið
orðaður við vændishneyksli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Starfsmenn sæta rannsókn:
Vændiskona í
mat í lystihúsi