Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 12

Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 12
12 29. október 2010 FÖSTUDAGUR BRUSSEL, AP Fulltrúar Þýskalands og Frakklands reyna að fá full- trúa annarra ríkja Evrópusam- bandsins (ESB) til að styðja nýjar reglur um ríkisútgjöld sem nauð- synlegar séu til að forða annarri skuldakreppu í Evrópu. Angela Merk- el , k a nsl a r i Þýskalands og Nicolas Sarkozy Frakklandsfor- seti mættu til tveggja daga ráðstefnu Evr- ópuríkja í Brussel í gær. Á ráð- stefnunni fara þau fram á að búin verði til neyðarlausn sem skylda myndi lánafyrirtæki í einkaeigu til að taka á sig hluta kostnaðar við að bjarga mjög skuldugum löndum. Um leið kalla þau eftir stuðningi við tillögu um að lönd sem ítrek- að fari fram úr fjárlögum verði svipt atkvæðisrétti í ESB. Sú til- laga þykir afar róttæk og draga sumir embættismenn í efa að hún muni ná fram að ganga. Herskár tónn er sagður í Ang- elu Merkel sem vill að þjóðir, sem ekki takist á við heilbrigðar aðgerðir í ríkisfjármálum, þurfi þá að horfa upp á að missa atkvæð- isrétt sinn. „Ógni þjóð heilbrigði evrunnar skekur hún grunnstoðir ESB,“ sagði hún. Leiðirnar sem Þjóðverjar og Frakkar leggja til eru líklega báðar sagðar kalla á breytingar á grunnsáttmála ESB. Breytingar á honum eru þó ekki auðsóttar og ferlið allt líklegt til að taka nokk- ur ár. Þannig tók tíu ár að fá sam- þykki Evrópuríkja fyrir gildandi Lissabon-sáttmála. Fyrri útgáfum sáttmálans var árið 2005 hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Hol- landi og Frakklandi, auk þess sem Írar felldu sáttmálann nokkrum sinnum. José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði afnám atkvæðisréttar aðildarríkja „óásættanlegt“ og taldi tillögu um slíkt aldrei verða samþykkta í öllum 27 aðildarríkjunum. Nokkrir þjóðarleiðtogar og embættismenn ESB tóku í gær undir orð hans. „Við horfum mjög gagnrýnum augum á allar breyt- ingar á sáttmála ESB,“ sagði Josef Proell, fjármálaráðherra Austur- ríkis. Angela Merkel er hins vegar sögð hafa gert stuðning við breyt- ingar á sáttmálanum að skilyrði stuðnings Þjóðverja við strang- ari reglur um ríki sem fara fram úr fjárlögum, sem einnig eru til umfjöllunar á ríkjaráðstefnunni. Fjármálaráðherrar ESB lögðu í síðustu viku til viðvaranir og mögulegar sektir á ríki sem brjóta reglur sambandsins um skuldir og fjárlagahalla. olikr@frettabladid.is Ólíklegt að brotleg lönd verði svipt atkvæðisrétti Þjóðverjar og Frakkar kalla eftir ströngum viðurlögum brjóti ríki ESB ítrekað reglur um skuldir og fjár- lagahalla. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir sviptingu atkvæðisréttar aldrei verða samþykkta. Í BRUSSEL Í GÆR Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ANGELA MERKEL VÍSINDI Bandarískir vísindamenn segjast hafa smíðað búnað sem þeir vonast til að nýtist við að ráða í drauma. Þetta kemur fram í grein sem vísindamennirnir skrif- uðu í tímaritið Nature. „Við viljum geta lesið í drauma fólks,“ segir doktor Moran Cerf, sem leiðir rannsóknina. Markmið- ið er að auka skilning á því hvern- ig og hvers vegna fólk dreymir. Draumar hafa verið fólki hug- leiknir um aldir en á síðustu árum hefur sálfræði verið notuð til að skilja hvað gerist í undirmeðvit- undinni þegar fólk dreymir. Hing- að til hefur einungis verið hægt að spyrja fólk út í drauma þess eftir að það vaknar. Markmið rann- sóknar Cerfs og félaga er að þróa kerfi sem á að hjálpa fólki að muna drauma sína. „Það eru engin skýr svör til við því hvers vegna fólk dreymir,“ segir doktor Cerf. Cerf og félagar byggja rann- sóknir sínar á því að hver heila- fruma sé tengd ákveðnum atburði eða hlut. Hann komst meðal ann- ars að því að þegar fólk hugsaði um Marilyn Monroe kviknaði á ákveðnu taugaboði. Með því að sýna hópi fólks myndaseríu gátu doktor Cerf og samstarfsmenn hans einangrað nokkur tauga- boð og búið til gagnagrunn fyrir hvern sjúkling. Þannig kviknaði á sömu taugaboðum ef þeir hlutir eða atburðir komu fyrir í draum- um fólks. Doktor Cerf viðurkennir að ekki sé hægt að nota búnaðinn til að fanga drauma. Hann vonast þó til að niðurstöðurnar séu fyrsta skrefið í átt til þess. - kh Rannsaka tengsl drauma og taugaboða: Vonast til að geta lesið í drauma fólks DRAUMUR Doktor Cerf og félagar vonast til að rannsóknir þeirra verði til þess að hægt verði að lesa í drauma. NORDICPHOTOS/AFP PALESTÍNA, AP Umleitanir bandarískra stjórnvalda til að koma friðarviðræðum milli Ísraels og Palestínu af stað á ný hafa enn sem komið er ekki skilað árangri. Þetta hefur fréttastofa AP eftir Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egypta- lands, í gær. Innan við hálfur mánuður er til stefnu þar til Palestínustjórn tekur ákvörðun um hvort slíta beri friðarviðræðunum. Þær hófust í Washington í Bandaríkjunum í síð- asta mánuði, en hafa legið niðri vegna þess að Ísraelar neita að stöðva byggingu land- tökubyggða á Vesturbakkanum. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, neit- aði að framlengja bann á byggingu land- tökubyggða sem gilt hafði í tíu mánuði, en endaði 26. september. Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórn- ar, segir ekki hægt að hefja viðræður að nýju nema tekið verði fyrir byggingafram- kvæmdirnar. Síðan bannið rann úr gildi hefur verið hafin bygging 600 nýrra íbúða landtökumanna á Vesturbakkanum. Utanríkisráðherra Egypta sagði fjöl- miðlum eftir fund með Abbas í gær, að ríkisstjórn hans héldi áfram viðræðum við Bandaríkin og Ísrael, en fram til þessa hafi ekki komið til nauðsynlegra kaflaskila í viðræðunum. - óká MÆTTIR Á FUND Ahmed Aboul Gheit utanríkisráðherra og Omar Suleiman, yfirmaður leyniþjónustu Egypta, mæta á fund með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Egyptar segja friðarumleitan Bandaríkjamanna fyrir botni Miðjarðarhafs engu hafa skilað: Friðarviðræður strand meðan byggt er HUNDASUND Þessi ljónsungi þarf að fá kennslu í hundasundi áður en hann fær að spóka sig í ljónabúrinu í dýragarði í Washington-borg, en virðist ekki sérlega hrifinn af volkinu. NORDICPHOTOS/AFP KONGÓ, AP Fyrsti hópur flótta- fólks frá Kongó sem býr í Búr- úndí snýr aftur heim í þessari viku, að því er fram kemur í til- kynningu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Celine Schmitt, talskona Flótta- mannastofnunarinnar, sagði í gær að flytja ætti yfir þúsund manns aftur heim, en í fyrsta hópnum væru yfir 170 manns. Fólkið er í hópi fólks sem tók að flýja yfir til Búrúndí á síð- ari hluta tíunda áratugar síðustu aldar. Um 28.000 manns sem upp- runa eiga að rekja til Kongó búa í Búrúndi, þar af eru um 20.000 í flóttamannabúðum. - óká Flóttafólk snýr aftur til Kongó: Yfir 170 verða í fyrsta hópnum Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Milljónir hafa látist og fjöldi manns hefur lagt á flótta vegna vopnaðra átaka í Lýðveldinu Kongó síðastu áratugi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL Sala á Vista, við- bótalífeyrissparnaði Arion banka og KB ráðgjafar, er enn í biðstöðu síðan í byrjun mánaðarins. Arion banki ákvað að hætta að selja nýja samninga í kjölfar umfjöllunar um sex greiðslur mánaðarlegra iðgjalda sem renna í þóknun til KB ráðgjafar en ekki í lífeyrissparnað viðskiptavina, en slíkt er óheimilt samkvæmt fjármálaráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka liggur ekki fyrir hvenær sala á samningum muni hefjast að nýju, en iðgjöldin eru eitt af þeim atriðum sem hafa verið í endurskoðun nú í tæpan mánuð. Gamlir samningar hald- ist óbreyttir. - sv Sala á Vista liggur enn niðri: Iðgjöld áfram í endurskoðun ARION BANKI Ekki liggur fyrir hvenær sala á nýjum Vista samningum muni hefjast að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.