Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 28
29. október 2010 FÖSTUDAGUR6
„Ég held að við verðum um fjörutíu
talsins, allt stelpur sem léku sér á
Nýlendugötunni fyrir löngu síðan,“
segir Ester Hurlen verslunarkona
sem ásamt gömlum vinkonum og
vinkonum þeirra ætlar að mæta á
Hótel Borg á morgun og gera sér
glaðan dag. Það er í fjórða skipti á
jafnmörgum árum sem þær hittast
til að rifja upp gömul kynni. En þar
sem Nýlendugatan er stutt vekur
fjöldinn í partíinu athygli. Ester
útskýrir hann:
„Það er alveg tuttugu ára ald-
ursmunur á þeim yngstu og elstu í
hópnum þannig að við lékum okkur
ekki allar saman í gamla daga.
Þegar ein var orðin dama voru
aðrar litlar og svo framvegis. En
við vissum allar hver af annarri.
Þessir samfundir á síðustu árum
byrjuðu með því að ég og Unnur
Gunnarsdóttir, gömul vinkona
mín, hittumst af tilviljun hjá dætr-
um okkar suður í Vogum og upp úr
því ákváðum við að hóa nokkrum
leiksystrum saman. Það spurðist út
og bæði yngri og eldri vildu fá að
vera með. Auðvitað voru allar vel-
komnar og strax fyrsta árið vorum
við 23 eða 24. Þegar sá fundur var
höfðum við ekki hist í mörg herr-
ans ár og þekktum ekki hver aðra
í sjón.“
Ester ólst upp í húsi sem heit-
ir Sandgerði og er á Nýlendugötu
19 B. Í porti á bak við húsið kveðst
hún hafa átt bú sem hún og vinkon-
urnar léku sér oft í. „Ég var einka-
barn og fékk að hafa portið dálítið
fyrir mig og þarna urðu til margar
vel skreyttar drullukökur,“ rifjar
hún upp og nefnir líka ratleiki og
parís þegar hún er spurð hvað þær
stöllur hafi haft fleira fyrir stafni.
„Svo vorum við í boltaleikjum eins
og kíló, brennó, sóló og „yfir“. Leik-
vellir? – nei, við lékum okkur niðri
í Daníelsslipp, í bakgörðunum og
svo á götunum sem voru moldar-
götur þar sem auðvelt var að teikna
parís.“
Ekki hefur enn orðið úr því að
hópurinn fari saman á fornar slóð-
ir vestur á Nýlendugötu að sögn
Esterar. „En gamlar myndir eru
gjarnan dregnar upp úr veskjunum
þegar við hittumst,“ segir hún. „Og
svo höfum við um margt að spjalla.
Æskan var ljúfur tími sem gaman
er að minnast.“ gun@frettabladid.is
Leiksystur líta til baka
Stelpur sem fyrir 60-70 árum bökuðu drullukökur í bakgörðum og hoppuðu í parís á moldargötum í
Vesturbænum ætla að hittast í Silfursal Hótel Borgar á morgun og rifja upp liðnar stundir.
Áslaug og Oddfríður spásséra úti með
dúkkurnar á sjötta áratugnum.
Nýlendugötuvinkonurnar hittust fyrir
tveimur árum á veitingastaðnum A
Hansen.
Ester Hurlen, Jónína og Guðlaug Kristófersdætur, Unnur Gunnarsdóttir og Guðríður
Thorlacius á fornum slóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rómantískar helgar þurfa ekki
að kosta mikið meira en ríkulegt
ímyndunarafl og sanna ást.
■ Gerðu heimilið eins kósí og
hugsast getur, þar sem ekk-
ert minnir á vinnu eða daglegt
stress. Slökktu á farsímum og
tölvum. Settu hrein sængurföt á
rúmið og hrein handklæði á bað-
herbergið.
■ Gefðu þér tíma til að hugsa um
hvað hittir í mark hjá báðum. Var
hann kannski búinn að biðja um
eitthvað sérstakt og ástleitið fyrir
sig, eða öfugt? Um helgar gefst
tími til að láta draumana rætast.
■ Gerið eitthvað náið saman, eins
og að horfa á rómantískar kvik-
myndir, fara á söfn, elda lostvekj-
andi máltíð eða skreppa í stutta
ástarferð út fyrir bæinn.
■ Hafðu tiltæka tónlist sem
geymir fallegar minningar og
tengir ykkur saman.
■ Farið í ratleik heima eða í mið-
bænum, þar sem þið ratið loks í
faðm hvor annars eftir skemmti-
lega útúrdúra.
■ Skrifið hvort öðru ástarbréf
þar sem þið tíundið tilfinningar,
söknuð og þrár hvort til annars,
en einnig drauma sem ekki hafa
áður verið sagðir.
■ Gefið hvort öðru persónulega
ástargjöf, eins og málaðan blóm-
vönd í ramma eða vinaband úr
völdum perlum og steinum.
■ Laumist í fáfarna sveitasund-
laug til að kela undir vetrar-
bláma.
■ Heimsækið sjaldséðan ástvin
ykkar saman, eins og ömmu á elli-
heimilinu eða einmana frænda.
■ Í fallegu vetrarveðri er rómant-
ískt að fara saman á afvikinn stað
þar sem kveikja má lítinn eld og
steikja sykurpúða yfir, eða fara á
veitingahús í sveitum landsins þar
sem kertaljós vermir hjörtun.
■ Að fara saman í undirfatabúð og
kaupa fallegan nærfatnað á hvort
annað er kynæsandi upplifun.
■ Kveiktu á urmul kerta heima
og jafnvel lokkandi ilmkerti sem
gefur frá sér munúðarfullan ilm.
Taktu upp flösku af góðu víni eða
öðrum frískandi drykk og útbú-
ið máltíð sem krefst ekki mikils
umstangs eftir á. Eigðu ljúffeng-
ar múffur, ávexti og konfekt til að
maula í rúminu að morgni.
Rómantísk helgi!
Rómantík má alls staðar finna, jafnt heima, í borgarysnum og úti í náttúrunni, eins
og sjá má á þessum samrýmdu hestum.
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
Á sunnudag gefst almenn-
ingi kostur á að koma með
gamla gripi til greiningar hjá
sérfræðingum Þjóðminjasafns
Íslands.
Á greiningardögum Þjóðminja-
safnsins hefur margt skemmti-
legt komið fram. Meðal þess
sem fólk hefur komið með eru
tóbaksdósir sem munu hafa
verið í eigu Brynjólfs Péturs-
sonar Fjölnismanns, stokkabelti
eignað Ragnheiði biskupsdótt-
ur, forn öxi sem fannst í jörðu í
Þjórsárdal og hlutar úr vinsælu
bollastelli frá 19. öld.
Hlutir þurfa ekki að vera
mjög gamlir til að vera áhuga-
verðir. Ef til eru á heimilinu
sérkennileg áhöld eða gripir
með áletrunum eða stimplum,
sem enginn man lengur hvaðan
komu eða til hvers voru notuð,
er tilvalið að koma með þau á
Þjóðminjasafnið og fá grein-
ingu hjá sérfræðingum, því þá
kemur oft ýmislegt spennandi
í ljós.
Dagskráin stendur frá klukk-
an 14 til 16, en samkvæmt feng-
inni reynslu næst að greina um
fimmtíu gripi á þeim tíma.
Gestum er því bent á að koma
tímanlega og taka númer.
Dularfullir
dýrgripir
Á mörgum heimilum leynast stakir
og dularfullir gripir sem gaman væri
að vita meira um.