Fréttablaðið - 29.10.2010, Side 36
2 •
LIFÐU AF Í
POPP er fylgirit Fréttablaðsins. POPP
kemur út einu sinni í mánuði.
Ritstjóri: Atli Fannar Bjarkason
atlifannar@frettabladid.is
Útlitshönnun: Arnór Bogason
Sölustjóri: Benedikt Freyr Jónsson
benediktj@365.is • sími 512 5411
Útgefandi: 365 hf.
4
13
14
6
NÓVEMBER
Vefsíðan Askmen.com gerði risavaxna könnun í samstarfi við vefsíðuna
Cosmo.com í sumar. Takmarkið var að varpa ljósi á nútímamanninn, en
yfir 100.000 karlmenn tóku þátt í könnuninni sem var framkvæmd eftir
kúnstarinnar reglum. Popp valdi nokkrar skemmtilegar staðreyndir úr
könnuninni og birtir á síðum blaðsins í dag. Það skal tekið fram að þeir
sem svöruðu eru frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu og Kanada. Við
hljótum að eiga eitthvað sameiginlegt með þeim.
STÓRA KARLAKÖNNUNIN
HLUSTAÐU
Fyrsta sólóplata Erps Eyvindarsonar, Blaz
Roca, er væntanleg. Lögin á plötunni eru á
annan tug og Erpur fékk goðsögnina Ragga
Bjarna til að taka lagið með sér. Þannig að
ef þú vilt heyra Ragga syngja: „Allir eru að
fá sér“ autotjúnaðan eins og T-Pain þá er
Kópacobana platan fyrir þig.
Hugleikur Dagsson
sendir á næstunni frá
sér bókina Fleiri íslensk
dægurlög. Bjartmar
Guðlaugsson á í þetta
skipti lag sem Hugleikur
myndskreytti, en Sigur
Rós hefur ekki enn þá
verið tekin fyrir.
„Það var alltaf planið að gera
aðra svona bók vegna þess að
ég vissi að það væri eitthvað
efni eftir,“ segir Hugleikur
Dagsson.
Hugleikur sendir frá sér
bókina Fleiri íslensk dægurlög
í nóvember. Bókin er framhald
bókarinnar Íslensk dægurlög
sem var sú fyrsta sem forlagið
Ókeibæ-kur sendi frá sér, en
það er í eigu Hugleiks og Ólafíu
Erlu Svansdóttur. Í bókunum
myndskreytir Hugleikur þekkt
lög, en hann segir að brunnur-
inn sé ekki ótæmandi. „Ég held
ekki. Ef ég geri þriðju og fjórðu
bókina þá verða brandararnir
frekar langsóttir og skrýtnir,“
segir hann. „Ég er búinn að vera
að skoða bækur eins og 100
bestu plötur Íslandssögunnar
og sönglagabækur og svoleiðis
til að finna eitthvað til að gera
grín að. Það var meira eftir en
ég bjóst við þegar ég byrjaði að
semja þessa.“
Spurður hvort tónlistarmenn
verði kynntir til sögunnar í nýju
bókinni sem voru ekki í þeirri
fyrri svarar Hugleikur játandi.
„Ég held að Bjartmar hafi ekki
verið í fyrri bókinni. Ég teikna
ágætismynd af Mamma beyglar
alltaf munninn,“ segir hann og
játar að lög stærstu íslensku
hljómsveitar allra tíma, Sigur
Rósar, hafi ekki enn þá orðið að
mynd.
Stuttu eftir að Íslensk dægur-
lög komu út gaf Hugleik-
ur út Popular Hits,
sem er sams konar
bók með erlend-
um lögum. Eins
og gefur að skilja
er hægt að taka
fyrir talsvert fleiri
erlend lög. Það er
því ljóst að fram-
hald Popular Hits
kemur út á næstu
misserum. „Það
gæti enst í meira en
tvær bækur,“ segir
Hugleikur.
FLEIRI ÍSLENSK
DÆGURLÖG FRÁ
HUGLEIKI
19%
karlmanna myndu nota GPS-tæki
til að fylgjast með ferðum kær-
ustunnar sinnar.
41%
finnst í lagi að kærastan sé
vinkona fyrrverandi kærastanna
sinna á Facebook.
6%
karlmanna myndu ekki vilja vera
með stelpu sem þénar meira en
þeir.
48%
karlmanna hafa logið til um
hversu mörgum stelpum þeir
hafa sofið hjá.
SÖNN ÁST Úr bókinni
Fleiri íslensk dægurlög.
HORFÐU
Hlemmavídeó lofar góðu. Loksins
virðast vera komnir íslenskir þættir
sem taka sig ekki of alvar-
lega. Sem dæmi um það
má nefna að Örn Árnason
fuðraði upp í fyrsta
þættinum.
LESTU
Bókin hans Loga Geirs er skyldu-
lesning. Þó það sé ekki nema til
að vera með í umræðunni. Logi er
náttúrulega ósérhlífnasti
maður landsins eftir
að hann ljóstraði því
upp að hann hefði ekki
fengið hár á punginn
fyrr en hann fór að
skríða á þrítugsald-
urinn. Svo fá
Þjóðverjar á
baukinn í
bókinni.
Stærsta
tónlistarverslun landsins
Skráðu þig í
prufuáskrift og
þú gætir unnið
iPod Touch
7
DAGAR FRÍTT
Öll tónlist á einum stað!
VILTU VINNA!