Fréttablaðið - 29.10.2010, Side 42

Fréttablaðið - 29.10.2010, Side 42
8 • LÍFIÐ SNÝST UM TÓNLIST ÞORBJÖRG ROACH GUNNARSDÓTTIR ER STELPAN Í RETRO STEFSON Orð: Atli Fannar Bjarkason Myndir: Anton Brink R etro Stefson er ein heitasta hljómsveit landsins. Ef þú trúir því ekki, spurðu þau sem sáu hljómsveit- ina koma fram á Iceland Airwaves-hátíðinni á dögunum. Gríðarleg orka leysist úr læðingi á tónleikum hljómsveitarinnar, sem gaf út aðra plötu sína á dögunum. Hún heitir Kimbabwe og hefur fengið frábæra dóma; fjórar stjörnur í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu og fullt hús í Fréttatímanum. Árangur sem fáar hljómsveitir toppa. Retro Stefson varð til í Austurbæjarskóla fyrir nokkrum árum. Hún varð þó hvorki til í mötuneyti kennara né skrifstofu húsvarðarins, þar sem meðlimir hljómsveitarinnar voru á barnaskólaaldri þegar ævintýrið hófst. Hljóm- sveitina leiðir hinn skeleggi Unnsteinn Manúel Stefánsson og er hann einn af sex strákum í Retro Stefson. En það er líka ein stelpa í hljómsveitinni. Hún heitir Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir og er einn fjórði Ameríkani. Hún leikur á hljómborð, segist vera feimin og þurfti að hugsa sig um í klukkutíma áður en hún sló til og tók boði Popps um að mæta í viðtal. Ég hitti Þorbjörgu í höfuðstöðvum Popps í Skaftahlíð. Þegar hún kom fékk ég strax nag- andi samviskubit þar sem ég hafði komið þeim skilaboðum áleiðis að hún tæki hljómborðið með sér og hún burðaðist með það í strætó úr miðbænum. Væri ég eins mikill herramað- ur og ég segist vera hefði ég að sjálfsögðu sótt hana. Allavega sent eftir henni bíl, en ég þarf augljóslega að fara betur yfir það sem mamma mín kenndi mér. Við setjumst niður í viðtalsherbergi Popps og hún biður um að fá að opna glugga. Það er ekki til að slá á sam- viskubitið, en hún þurfti augljóslega að leggja mikið á sig til að mæta í viðtalið. Ég ætti að skammast mín. Nýja platan ykkar í Retro Stefson er búin að fá frábærar viðtökur og magnaða dóma í fjöl- miðlum. Bjuggust þið við því? „Nei, ég er ógeðslega ánægð. Ég var ekki mikið að pæla í þessu, það var mikið að gera. Svo sá ég dóm á Facebook og var mjög ánægð. Ég var stressuð, þetta er náttúrulega plata númer tvö og hún er öðruvísi en sú fyrsta. Ég hafði áhyggjur af því að fólk þyrfti meiri tíma til að melta hana, en viðtökurn- ar komu á óvart og við erum öll ógeðslega ánægð.“ Já, þetta er náttúrulega plata númer tvö, sem hefur reynst mörgum erfið. Voruð þið ekki viss um að hún myndi slá í gegn þegar hún var tilbúin? „Nei, ég veit það ekki. Við erum rosalega ánægð með hana og vorum ekki mikið að spá í hvað öðrum fyndist. Ég varð fyrst stressuð þegar við héldum hlustunarpartí.“ Framhald á næstu síðu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.