Fréttablaðið - 29.10.2010, Qupperneq 44
BRAGÐMIKIL BLANDA
AF NORRÆNUM
KVIKMYNDUM SEM
NOTIÐ HAFA ALÞJÓÐ-
LEGRAR HYLLI
Markmiðið með Kvikmyndaverðlaunum
Norðurlandaráðs er að kynna úrval og fjölbreytni
kvikmynda sem gerðar eru á Norðurlöndum, að
efla norrænt menningarsamfélag og kynna
Norðurlöndin sem heimamarkað fyrir menningu
og styrkja þar með stöðu norrænna kvikmynda á
alþjóðamarkaði.
Norrænu kvikmyndaverðlaunin eru veitt árlega
og er afhending verðlaunanna í Reykjavík 3.
nóvember við hátíðlega athöfn í íslensku
Óperunni. Verðlaunin eru veitt fyrir listræna
norræna kvikmynd í fullri lengd, sem ætluð er til
sýningar í kvikmyndahúsum. Kvikmyndin verður
að hafa verið frumsýnd í þjóðlandinu á tímabilinu
1. september 2009 til 31. ágúst 2010. Verðlaunin
nema jafnvirði 350.000 danskra króna og
skiptast jafnt á milli handritshöfundar, leikstjóra
og framleiðanda til að leggja áherslu á að
kvikmynd er listform þar sem náið samstarf
þessara þriggja aðila er forsenda árangurs.
Fimm alþjóðlegar dómnefndir hafa valið þær
kvikmyndir sem tilnefndar eru frá Danmörku,
Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Viðmið við tilnefningu
Kvikmyndir sem tilnefndar eru þurfa að hafa
sterka tengingu við norræna menningu, vera
listframleiðsla í hæsta gæðaflokki, vera einstakar
og listrænar og sameina og betrumbæta alla
þætti kvikmyndalistarinnar þannig að útkoman
sé sannfærandi og samþætt listaverk.
Dómnefndin
Dómnefnd er skipuð fulltrúa og varafulltrúa frá
hverju landi fyrir sig, sem samþykktir eru af
Norrænu ráðherranefndinni um
menningarsamstarf. Fulltrúar í dómnefnd eru
valdir meðal mikilsmetinna einstaklinga í
kvikmyndaheiminum sem hafa faglega innsýn
og reynslu af kvikmyndagerð.
Fulltrúar: Anne Jerslev (Danmörk), Johanna
Grönqvist (Finnland), Sif Gunnarsdottir (Ísland),
Le LD Ngyen (Noregur) og Eva af Geijerstam
(Svíþjóð). Varafulltrúar: Bo Green Jensen
(Danmörk), Kati Sinisalo (Finnland), Kristín
Jóhannesdóttir (Ísland), Øyvor Dalan Vik
(Noregur) og Tony Forsberg (Svíþjóð).
SUBMARINO
Fafla – efniskjarni atburðarásar
Myndin segir frá tveimur bræðrum sem voru aðskildir í
æsku eftir áfall sem sundraði allri fjölskyldunni. Í dag er
eldri bróðirinn ofbeldisfullur ofdrykkjumaður, meðan sá
yngri, sem er einstæður faðir og fíkill, reynir að búa syni
sínum betra líf. Leiðir bræðranna skarast sem gerir
uppgjör við fortíðina óumflýjanlegt.
Um myndina
Leikstjórinn Thomas Vinterberg laðaðist að því
hlutbundna raunsæi sem er að finna í skáldsögu Jonas
T. Bengtsson þar sem umfjöllunarefnið er sektarkennd
foreldra. Við undirbúning kvikmyndarinnar sökkti
Vinterberg sér í hugarheim tveggja aðalpersónanna,
hinum félagslega snauða Nick (Jakop Cedergren) og
eiturlyfjafíklinum yngri bróður hans (Peter Plaugborg),
sem er faðir litla drengsins Martin. Til að ná sem bestri
mynd af beiskum hugarheimi persónanna dvaldi
Vinterberg langdvölum í vafasömum hluta
Kaupmannahafnar, þar sem hann hitti fyrir gamlan
bekkjarfélaga sinn sem þá hafði verið heróínfíkill í 20 ár.
Bekkjarfélagann gamla spurði hann spjörunum úr til að
skilja betur líf föður Martins í bókinni.
Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni
Berlinale 2010 í Berlín í Þýskalandi. Hún hefur verið
keypt til dreifingar í Frakklandi, Benelux löndunum,
Spáni, Ítalíu og Japan. Hún var frumsýnd í Danmörku í
mars síðastliðinn og hlaut lofsamlega dóma.
Aðstandendur
Leikstjóri: Thomas Vinterberg
Handrit: Thomar Vinterberg og Tobias Lindholm
Framleiðandi: Morten Kufman
Byggt á bók eftir: Jonas T. Bengtsson
Aðalhlutverk: Jakob Cedergren, Peter Plaugborg,
Patricia Schuman og Morten Rose
Framleitt af Nimbus film
Lengd 110 mínútur
THE GOOD HEART
Fafla – efniskjarni atburðarásar
Myndin fjallar um umrenninginn Lucas, sem lendir á
sjúkrahúsi eftir misheppnaða sjálfsmorðstilraun. Þar hittir
hann bareigandann Jacques, sem á við eigin
heilsuvandamál að stríða. Eftir að Lucas hefur verið hjúkrað
til heilsu tekur Jacques hann að sér í þeim tilgangi að hann
taki við barnum þegar Jacques fer yfir móðuna miklu. Allt
gengur eins og áætlað var þar til drukkna gengilbeinan April
mætir á staðinn og setur heldur betur strik í reikninginn.
Um myndina
Dagur Kári sameinar í þessari kvikmynd tvo ólíka póla
kvikmyndagerðarlistarinnar: Arthouse og sitcom eða
ljóðrænt listform og gamanþáttaform. „Ég hef mikið dálæti á
gamanþáttastílnum, að vera fastur í endalausri
endurtekningu með uppáhalds persónunum mínum í
skýrum og afmörkuðum frásagnarheimi. Ég hef líka dálæti á
ljóðrænum kvikmyndum og dramatískri uppbyggingu sem
brýtur hefðbundnar reglur frásagnarlistarinnar.
Gamanþættirnir hafa tilhneigingu til að hafa helst til
ófrýnilega umgjörð og útlit á meðan ljóðrænar kvikmyndir
eiga það til að taka sig of alvarlega. Markmiðið var að gera
blöndu af því sem ég hef dálæti á úr báðum stílum, gera
ljóðrænan húmor og dramatíska kómík,“ segir Dagur Kári.
Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Tórontó í
Kanada 2009. Hún hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum hér
á Íslandi, í Frakklandi, í Póllandi, í Bandaríkjum
Norður-Ameríku, á Spáni og hefur þar að auki unnið til
ýmissa verðlauna s.s. Kodak Nordic Vision verðlaunin fyrir
kvikmyndatöku (Rasmus Videbæk) á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í Svíþjóð 2010.
Aðstandendur
Leikstjórn og handrit: Dagur Kári
Framleiðendur: Þór Sigurjónsson og Skúli Fr. Malmquist
Aðalhlutverk: Brian Cox, Paul Dano og Isild Le Besco
Framleitt af Zik Zak Filmworks
Lengd 95 mínútur
TILNEFN
DANMÖRK ÍSLAND
Verðlaunahafar fyrri ára.
Norrænu kvikmyndaverðlaunin voru veitt í fyrsta
sinn á árinu 2002. Þá hlaut finnski kvikmynda-
leikstjórinn Aki Kaurismäki þau fyrir kvikmyndina
Mies vailla menneisyyttä (Maður án fortíðar).