Fréttablaðið - 29.10.2010, Síða 52

Fréttablaðið - 29.10.2010, Síða 52
14 • karlmanna hafa sagst vera umhverfissinnar til að heilla stelpur.19% 45% karlmanna telja að Obama hafi breytt viðhorfi heimsins til Bandaríkj-anna. 1. Hjá 112 Neyðarlínunni. 2. Nei, hann er búinn að fjarlægja alla speglana. 3. Eins og er sirka þrjú magalyf, þvaglosunarlyf og lyf við kvíðaröskun. 4. Ari gengur ekki í skóm. En Laddi nuddar á honum bífurnar reglulega. 5. Hann er að háma í sig kavíar með Kristjáni Jóhannssyni. 6. Taco ekki spurning, þá hringir einhver bjalla. Sorrí með þennan. 7. Já, örugglega. Ber er hver að baki nema konu eigi. 8. Messías MC. Hver annar? 9. Að sjálfsögðu og sérstaklega fyrir framan spegilinn. 10. Að mæta trúðnum. Er einhver sem hræðist ekki trúða? STEINDI UM ARA ARI UM STEINDA SPURNINGARNAR 1. Þegar grínistar koma heim eftir erfiðan vinnudag er oft talað um að tár trúðsins byrji að streyma. Hvar leitar Ari/Steindi að hughreystingu í lok dags? 2. Allir vita að þegar grínisti sér spegil staðnæmist hann, starir með tár í aug- unum á sjálfan sig og færist hægt nær speglinum. Að lokum spyr hann með titrandi röddu: „Hver er ég?“ Á þetta við um Ara/Steinda? 3. Margir grínistar hafa fetað brautir eiturlyfjadjöfulsins og riðið hvíta hestin- um um óravíddir grínbransans. Hversu mörg lyf heldurðu að séu núna í blóði Ara/Steinda? 4. Allir grínistar elska hvíta strigaskó. Alþekkt er að þegar íslenskir grínistar stimpla sig inn í bransann fá þeir sent nýtt par af hvítum strigaskóm frá Ladda. Heldurðu að Ari/Steindi sé búinn að sitt par sent? 5. Þegar grínistar slá í gegn byrja þeir að hanga með frægu fólki. Allir þekkja til dæmis söguna af Pétri Jóhanni og Sigga Hall, stuttu eftir að sá fyrrnefndi var valinn fyndnasti maður landsins. Með hverjum hangir Ari/Steindi? 6. Magasár herjar á flesta grínista, enda eru þeir sólgnir í mexíkóskan mat. Hvort er Ari/Steindi meiri taco eða burrito- maður? 7. Þrátt fyrir kokhreysti og jafnvel hroka eru grínistar ekki kvennamenn. Nýleg rannsókn sýnir að um 60% þeirra eru ekki við kvenmann kenndir á lífsleið- inni. Á Ari/Steindi kærustu? 8. Allir grínistar elska rapp. Sumir segja að það sé vegna þess að þeir þori ekki öðru. Hver er uppáhaldsrappari Ara/ Steinda? 9. Afar erfitt er fyrir grínista að hlæja að bröndurum annarra grínista. Alveg eins og þegar kokkar hrækja út úr sér mat sem er ekki eldaður eftir þeirra uppskrift. Er Ari/Steindi fær um að hlæja með öðrum? 10. Vígsluathöfnin í Félagi alíslenskra grínista (FAG) er ekki í neinu samræmi við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hvaða aðgerð í athöfninni fór mest fyrir brjóstið á Ara/Steinda? 1. Ég held hann eldi sér einhverja snilld og hlammi sér svo niður í ljúfan Playstation-pakka. 2. Nei. Steindi skoðar spegilinn, sér sjálfan sig og hugsar: „djöfull var mér að detta í hug góður skets.“ Og hann er alltaf sannspár. 3. Engin. Ég giska á að blóðið í Steinda sé hreinna en í Sookie Stackhouse. 4. Sjálfur þurfti ég að sækja mína heim til Ladda en ég heyrði að Laddi hefði gert sér ferð heim til Steinda, sem gerði mig dálítið afbrýðisaman. 5. Hann hangir með Bent, Dóra DNA, Didda Fel, Simma og Jóa, Bjartmari og aðeins með Sigga Hall líka. 6. Ég sé einhvern veginn fyrir mér að Steindi hafi löngu fundið upp leið til að blanda þessu tvennu saman í tacito. 7. Já, og hún semur örugglega allt besta efnið hans. 8. Dóri DNA, Bent, Erpur og Diddi Fel. Sjálfur myndi ég ekki þora öðru með þennan vina- hóp í kringum mig alla daga, brennandi tunnur og skjótandi af vélbyssum. 9. Já, og Steindi er einhvers konar Íslandsmeistari í að „peppa“ aðra. Það væri örugglega bara fínt að festast í námu með honum. 10. Engin. Sumir halda að þetta séu einhver frímúrarasamtök og maður þurfi að skríða yfir heit kol og þannig. En staðreyndin er sú að þetta er ósköp einfalt skriflegt próf sem Laddi útbýr. Jú, og svo er maður reyndar laminn í sólarhring, en það er allt í gríni. EKKI SÍST ÞAÐ SEM ARI VEIT UM STEINDA OG STEINDI VEIT UM ARA CHUCK NORRIS ÞARF EKKI VATN, SÚREFNI EÐA MAT. HONUM FINNST BARA GAMAN AÐ HALDA ÞESSUM EFNUM Í GÍSLINGU Í LÍKAMA SÍNUM.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.