Fréttablaðið - 29.10.2010, Blaðsíða 52
14 •
karlmanna hafa sagst vera umhverfissinnar til að heilla
stelpur.19% 45% karlmanna telja að Obama hafi breytt viðhorfi heimsins til Bandaríkj-anna.
1. Hjá 112 Neyðarlínunni.
2. Nei, hann er búinn að fjarlægja alla speglana.
3. Eins og er sirka þrjú magalyf, þvaglosunarlyf og lyf við kvíðaröskun.
4. Ari gengur ekki í skóm. En Laddi nuddar á honum bífurnar reglulega.
5. Hann er að háma í sig kavíar með Kristjáni Jóhannssyni.
6. Taco ekki spurning, þá hringir einhver bjalla. Sorrí með þennan.
7. Já, örugglega. Ber er hver að baki nema konu eigi.
8. Messías MC. Hver annar?
9. Að sjálfsögðu og sérstaklega fyrir framan spegilinn.
10. Að mæta trúðnum. Er einhver sem hræðist ekki trúða?
STEINDI UM ARA ARI UM STEINDA
SPURNINGARNAR
1. Þegar grínistar koma heim eftir
erfiðan vinnudag er oft talað um að tár
trúðsins byrji að streyma. Hvar leitar
Ari/Steindi að hughreystingu í lok dags?
2. Allir vita að þegar grínisti sér spegil
staðnæmist hann, starir með tár í aug-
unum á sjálfan sig og færist hægt nær
speglinum. Að lokum spyr hann með
titrandi röddu: „Hver er ég?“ Á þetta við
um Ara/Steinda?
3. Margir grínistar hafa fetað brautir
eiturlyfjadjöfulsins og riðið hvíta hestin-
um um óravíddir grínbransans. Hversu
mörg lyf heldurðu að séu núna í blóði
Ara/Steinda?
4. Allir grínistar elska hvíta strigaskó.
Alþekkt er að þegar íslenskir grínistar
stimpla sig inn í bransann fá þeir sent
nýtt par af hvítum strigaskóm frá Ladda.
Heldurðu að Ari/Steindi sé búinn að sitt
par sent?
5. Þegar grínistar slá í gegn byrja þeir
að hanga með frægu fólki. Allir þekkja
til dæmis söguna af Pétri Jóhanni og
Sigga Hall, stuttu eftir að sá fyrrnefndi
var valinn fyndnasti maður landsins. Með
hverjum hangir Ari/Steindi?
6. Magasár herjar á flesta grínista, enda
eru þeir sólgnir í mexíkóskan mat. Hvort
er Ari/Steindi meiri taco eða burrito-
maður?
7. Þrátt fyrir kokhreysti og jafnvel
hroka eru grínistar ekki kvennamenn.
Nýleg rannsókn sýnir að um 60% þeirra
eru ekki við kvenmann kenndir á lífsleið-
inni. Á Ari/Steindi kærustu?
8. Allir grínistar elska rapp. Sumir segja
að það sé vegna þess að þeir þori ekki
öðru. Hver er uppáhaldsrappari Ara/
Steinda?
9. Afar erfitt er fyrir grínista að hlæja
að bröndurum annarra grínista. Alveg
eins og þegar kokkar hrækja út úr sér
mat sem er ekki eldaður eftir þeirra
uppskrift. Er Ari/Steindi fær um að hlæja
með öðrum?
10. Vígsluathöfnin í Félagi alíslenskra
grínista (FAG) er ekki í neinu samræmi
við mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Hvaða aðgerð í athöfninni fór
mest fyrir brjóstið á Ara/Steinda?
1. Ég held hann eldi sér einhverja snilld og hlammi sér svo niður í ljúfan Playstation-pakka.
2. Nei. Steindi skoðar spegilinn, sér sjálfan sig og hugsar: „djöfull var mér að detta í hug
góður skets.“ Og hann er alltaf sannspár.
3. Engin. Ég giska á að blóðið í Steinda sé hreinna en í Sookie Stackhouse.
4. Sjálfur þurfti ég að sækja mína heim til Ladda en ég heyrði að Laddi hefði gert sér ferð
heim til Steinda, sem gerði mig dálítið afbrýðisaman.
5. Hann hangir með Bent, Dóra DNA, Didda Fel, Simma og Jóa, Bjartmari og aðeins með
Sigga Hall líka.
6. Ég sé einhvern veginn fyrir mér að Steindi hafi löngu fundið upp leið til að blanda þessu
tvennu saman í tacito.
7. Já, og hún semur örugglega allt besta efnið hans.
8. Dóri DNA, Bent, Erpur og Diddi Fel. Sjálfur myndi ég ekki þora öðru með þennan vina-
hóp í kringum mig alla daga, brennandi tunnur og skjótandi af vélbyssum.
9. Já, og Steindi er einhvers konar Íslandsmeistari í að „peppa“ aðra. Það væri örugglega
bara fínt að festast í námu með honum.
10. Engin. Sumir halda að þetta séu einhver frímúrarasamtök og maður þurfi að skríða yfir
heit kol og þannig. En staðreyndin er sú að þetta er ósköp einfalt skriflegt próf sem
Laddi útbýr. Jú, og svo er maður reyndar laminn í sólarhring, en það er allt í gríni.
EKKI SÍST
ÞAÐ SEM ARI VEIT UM
STEINDA
OG STEINDI VEIT UM
ARA
CHUCK NORRIS ÞARF EKKI VATN, SÚREFNI EÐA MAT. HONUM FINNST
BARA GAMAN AÐ HALDA ÞESSUM EFNUM Í GÍSLINGU Í LÍKAMA SÍNUM.