Morgunn - 01.06.1926, Qupperneq 12
G
MOR GUNN
þaö er óþekkjanlegt frá fornri tíð. Þau liafa dregið saman
alt mannkynið í tiltölulega lítinn Imapp, með sínum hraðfara
flutningstækjum. Þau hafa opnað fyrir oss nýja Jieima, sem
með öllu voru lokaöir áöur. Þau hafa kent oss að skynja
endalausar raðir sólkerfa og linatta, sem ímyndunaraflið er
meÖ öllu magnlaust að sjá út yfir. Enginn veit nema þar séu
bústaÖir æðra lífs, en vér fáum gert oss í hugarlund. Þau
liafa kai’aö inn í nýja lieima í efninu. Pundiö andardrátt efn-
isins eða œöaslög í sveiflum atóma og electróna í hinni minstu
ögn. Þau hafa kent oss mikið a£ leyndardómunum við að
vernda vort eigið líf gegn sjúkdómum og lieilsuleysi. Og
þau hafa dregið upp fyrir oss þróunarsögu mannlífsins og alls.
lífs um miljónir ára. Það er ekki kynlegt, þótt mörgum fari
svo, að þeir fái trú á, að þær aðferðir, sem öll þessi krafta-
verk hafi leyst af hendi, séu þess megnugar að leysa gátuna
miklu um það, hvenær maðurinn fái frið sínum eigin anda,.
þ. e. finni svo, að ekki verði um vilst, í hverju lijálpræði
mannanna sé fólgið. Trúin á þekkinguna er þau trúarbrögð,
er niikill bluti hinna fróðustu og vitrustu manna veraldarinn-
ar hallast nú aö. Sú spurning vaknar því að sjálfsögðu, hvort
kirkjan geti lagt niður verk sitt, með því að vísindin liafi
tekið í sínar hendur forystuna fyrir mannkynið í leit þess að
hinuin æðstu gæðum.
Þessi niðurstaöa væri sannarlega meira en þess verð a5
veita henni athygli, ef reynslan sýndi, að vísindin liefðu þok-
að mönnnnum nokkuð í þá átt, sem líklegt va;ri að lijálpræðið
væri aö finna. En svo varlega sé talað, þá er að minsta kosti
margt, sem mælir á móti þessu. Ilins vegar er margt, sem
mælir með því, að ekki sé óhugsandi, að vísindin verði bana-
mein allrar menningar og andlegs lífs á jörðinni. Yér sjáum,.
að hver uppgötvun á kröftum náttúrunnar, sem hægt hefir
verið að notfæra í praktisku lífi, hefir verið notuð til þess að-
þjá nokkurn hluta mannkynsins. Yélarnar liafa svift menn
atvinnu og lífi. Öll þekking efnafræðinnar og eðlisfræðinnar
hefir verið tekin í þjónustu manndrápa og vígaferln. Eg get
ekki stilt mig um að lofa yður að heyra nokkur orð, eftir einn