Morgunn - 01.06.1926, Page 15
MORGUNN
9
grein fyrir, að mér virtist að menn hafa farið í leit, sinni aö
hjálprœöinu.
Menn hafa leitaö aö hjálpræöinn í hinum ytri gjöfum
náttúrunnar. Þeir luifa ekki fundið það þar. Og þó er það
þar. Hvers vegna liafa þeir ekki fundiö það? Yegna þess
að þeir hafa ekki elskað þær gjafir nóg. Þeir hafa ekki elsk-
að auðinn nóg. Þeir hafa ckki látiö sér skiljast aö hann er
heilagur. Þeir liafa ekki látiö sér skiljast, aö hvert einasta
ltorn, sem ræktað er á jörðinni, öll björg, sem ur sjó er drcg-
in, er til þess ætluð að gera mannkynið farsælla. Þeir hafa
•ekki látið sér skiljast, aö allur heimsins auður er ástgjöf guðs
til mannanna til þess að gera þá vitrari og betri. Þeim er
fært þar í hendurnar verkfæri til þess að sanna það með lífi
SÍnu, að þeir skilji að guð sé faðir þeirra, m. ö. o., aö þeir
séu bræður. Þeir hafa þar tæki til þess að lyfta lífinu á jörðinni
upp til meiri þroska, heldur en nokkur núlifandi maður lief-
ir skilyrði til þess aö eygja. Þaö, sem Jesús leggur inn í þessa
hjálpræðisleit, er þessi tilfinning, þessi ástríða til þess að
•standa með lífinu, með mönnunum, leggja fram afl sitt og
vilja til þess að veröldin vaxi og vitiö dýpki og kærleikurinn
milli mannanna magnist. Jesús hefir þessa leiöina og þessa
leitina upp í æöra veldi.
Einhverjum kann ef til vill að finnast, sem þetta mál
eigi lítiö erindi til vor; þessi þjóð sé auðlaus þjóö og fátæk.
Þetta. má vel vera. Eg hevri menn tala um, aö þetta séu örð-
ugir tímar. En hitt sjá allir, að þjóðin er framar ö'llu aö leita
að auöi. Vér vonum öll aö hún finni hann. En hitt er ekki
jafnljóst, að þjóöin liafi sjálf gert sér grein fyrir, að takist
lienni aö leggja undir sig auö lands og sjávar, þá hafi hún
hezt skilyrði allra þjóöa veraldarinnar til þess að skipa þjóð-
lífi sínu í samræmi við hugsjónir Krists. Hér er ekkert í svo
föstum skorðum, að það sé sjálfsagt, að vér förum að dærni
annara þjóða, sem hafa leitt yfir sig þá ógæfu aö láta vax-
andi auði sínum verða samfara vaxandi stéttahatur, minkándi
samúð, meiri örbirgö og minkandi manngildi. Ef nokkurt
knýjandi verkefni hrópar eftir íslenzku kirkjunni, þá er þaö það.