Morgunn - 01.06.1926, Síða 26
20
MORGUNN
í því sambandi, var hinn fyrnefndi mágnr Mr. Bradley's.
Kvaðst liann standa í daglegw hugsanasambandi viö Mr.
Bradley og hjálpa honum t.il að semja bókina „Towards the
Stars“, sem iiann segir aS muni verka á heiminn eins og
þrumufleygur!
Álit Mr. Bradley á miðilsgáfu Mrs. Leonard fór sívax-
andi. Telur hann hana með allra fremstu miðlum sem þektir
séu. (Mrs. L. kemur mikiö við sögu í bók Sir Oliver Lodge
um Raymond).
Iíreyfir liann í þessu sambandi þeirri skoðun, sem reynd-
ar oft hefir lcomið fram, aö öll stórmenni í vísindum og list-
um muni vera andlegir miölar.
Nú kemur nýr kafli í bókinni, sem segir frá þeim fund-
um, sem haldnir voru með Mr. Valiantine, þegar hann var
kominn yfir til Englands. — Hann bjó hjá Mr. Bradlev frá
1. febr. til 5. marz 1924.
Verður að fara þar fljótt yfir sögu. Það konm þar fram
margir sömu andarnir og á Ameríkufundunum, þar á meðal
systir Mr. Bradley og gæsluandar Valiantines, Bert Everett
og Dr. Barnett. Sömleiðis mágur Bradleys W. Clarke. Á
þessum. fundum voru oft viðstaddir margir aðkomandi menn,
þar á meðal ýmsir, sem þektir eru um allan heim, svo sem
Conan Doyle, Charles Sykes myndhöggvari, William Archer
leikritahöfundur og Marconi uppfyndingamaður. Tvisvar
voru viöstaddir menn frá enska Sálarrannsóknarfélaginu og
þar að auki margir merkir blaðamenn og rithöfundar sem
oflangt yröi upp aö telja. Margir af þessum mönnum voru
ávarpaöir af beinum röddum fyrir utan miöilinn, og þar
sem þessar raddir voru nægilega skýrar, könnuðust menn
venjulega við látna ættingja. Marconi talaöi t. d. viö einn,
sem ávarpaði iiann á ítölsku og kvaðst vera faðir hans. Því
miður var röddin ekki nógu skýr til þess aö Marconi þættist
ftdlkomlega viss aS þekkja föður sinn. Einnig var töluð
þýzka, rússneska og welska, sem töluð er í Wales og er harla