Morgunn - 01.06.1926, Page 33
MORGUNN
Þessar raddir myndu'Sust innan i liljóötrektum þeim eða
lúörum, sem hafðir voru á fundunum til þess a.'S styrkja veik-
ar raddir.
Margt mætti nú segja fleira úr þessari seinni bók, ef tím-
inn leyföi. Fundirnir voru yfirleitt nokkuö jafnir. — Alt af
komu fram margar raddir, sem áttu tal við fundarmenn —r-
aðallega um einkamál, en oft barst þó talið að öðrum efnum.
Einkum var Dr. Barnett ólatur aö svara spurningum, sem
fyrir hann voru lagöar. Sem vænta má, var liann krafinn um
uppskrift þá, sem hann þóttist liafa um lækningu á berklum,
krabbameini og syfilis. Yoru haldnir sérstakir fundir, þar sem
læknar voru viSstaddir, og skrifuðu þeir upp oröi til orös þau
meðul og ráð, sem Dr. Barnett gaf við þessum sjúkdómum.
Þau eru skráð í bók Bradley’s og öllum þar til sýnis. Þau
bera með sér, að vel lækningafró'Sur maöur hefir samiS þau.
En ekki virtust læknarnir samt vera vissir um, aö þau væru
óbrigðul og höf'öu orð á því við Dr. Barnett, aö sér fyndust
sum meðulin nokkuö úrelt (og settu það í samband viö það,
áð Dr. Barnett heföi lifað á jörðinni fyrir 60 árum og því
sennilega ekki fylgst með framförunum í þessum greinum).
Dr. Barnett svaraöi ekki öðru cn því, að rétt meðul og rétt
ráð yröu aldrci úrelt, ef þau væru réttilega notuð! — Það
má geta þess, aö þessi ráö get.a sýnst dálítið flókin og vanda-
söm í notkun. En væntanlega hafa cinhverjir læknar tekið sig
til og gert tilraunir meö þau, þó að ekki liafi enn frézt um
árangur af því.
Dr. Barnett bætti því við SÍna fyrri spádóma, aö það
kæmi á næstu árum mikið rask á hugi manna um allan heim.
Mundu valda því náttúruhyltingar svo sem jaröskjálftar og
flóöbylgjur, sem mundu gera mikinn skaða sumstaöar í Ev-
rópu, og einnig væri mikil stríöshætta yfirvofandi, sem staf-
aði af því, að Japanar og Þjóöverjar væru með miklum liraöa
að Ibúa sig út í loftstríð, sem myndi hafa voöalegar afleiö-
ingar, ef því yrði ekki afstýrt. Aukið samband viö andaheim-
inn væri það eina, sem gæti komið í veg fvrir þessa hcims-
ógæfu.