Morgunn - 01.06.1926, Síða 44
38
MOBGUNN
Seinni part vetrar 1919 réðst eg á m.b. „Bolla“. Skip-
stjóri var Ingimundur Nóvember Jónsson. Áttum við að
stunda færaveiSar á Faxaflóa. Þá var þaö einn dag, að viö
sigldum vestur undir Jökul, og var liann þá aö ganga upp
með landsynningsrok, og ætlaði Ingimundur aö leggjast á
Dritvík. Þegar viö Gísli stvrim. fórum af vakt, var ekki fyrir-
sjáanleg nein hætta. Síðan sofna eg og sef nokkuð, en er þá
alt í einu vakinn, og stendur þá lijá mér sami maSurinn, og
minst var á áðan, og segir mér, aö eg skuli fara upp. Bg lá
um stund og hugsaði málið, en þótti þó undarlegt, að eg
Jieyrði ekkert í vélinni og lieldur ekkert til mannanna uppi..
Klæði eg mig síðan og fer upp. Þegar eg lcem upp, eru menn-
irnir aftur á og eru að basla við að koma í messanbómunni,
en bátinn rekur fyrir sjó og vindi upp undir land og er kom-
inn mjög nærri, en formaður og vélamaður voru niðri í véla-
rúminu að athuga vélina. Þá hleyp eg niður aftur, vek Gísla
og biS hann að koma upp og hjálpa okkur, kalla síðan niður
í vélarúmiS og kom þá Nóvember upp og bað okkur aö lijálpa
til að koma fyrir seglum og leggja bátnum um og ságla frá
landi. Yar þaö síðan gert, en mér virtist, að þaö mætti ekki
tæpara standa.
Ilaustið 1918 var eg á Akureyri um tíma. Konan mínr
sem nú er, var þá hjúkrunarkona þar. Eitt sinn var eg á
leiðinni frá Oddeyri inn á Akureyri, og var kominn inn und-
ir bakkana fyrir innan kaupfélagiS. Þá nær mér maður og
gefur sig á tal viS mig. Ilann segir, aS eg slmli kaupa bókr
sem hann nefnir. Bg hafi gott af að lesa hana. Að því búnu
hverfur hann mér, og eg sé þá, livers kyns er — förunautur-
inn er ekki úr þessum heimi. En eg hugsa mér að fá aö vita,
hvort bókin sé til og kaupa hana þá um leiö. Eg treysti mér ekki
að lýsa manninum, svo aS það verði rétt, og nleppi því.
Þegar inn í bókabúðina kom, spurði eg eftir þessari bók,
og hún var til. Eg keypti hana og sömuleiöis tvær aðrar
bækur, sem eg gaf unnustu minni: Sálmabókina og Sjómanna-
líf. En bókinni, sem mér haföi verið sagt til, hélt eg sjálfur,