Morgunn - 01.06.1926, Qupperneq 64
MOBGU UN
58
anlega margt óskýrt, sem saman viS þetta fléttast. Þess vegna
er þaS með öllu óhugsandi, aö luegt sé að rekja það alt, í
stiittu máli. Eg get ekkert annaS gert en að telja upp nokli-
ura flokka þeirra fyrirbrigSa, seni sterkust áhrif hafa haft í
því efni aö sveigja til hugi manna í þessa átt.
Þess skal þá fyrst geta, að tekist hefir aff sjá framliðna
menn; fjölda margir þeirra hafa þekst. Virðist þaS gert
á þann liátt, að notaö er efni eöa kraftur úr þeiin mönn-
um sem miðilsgáfu eru gæddir, til þess að byggja úr
þessa skyndilíkami, sem sýnilegir eru okkar augum. Sjálfur
hefi eg kvöld eftir kvöld um eitt skcið verið vottur þessara
líkamninga, sem svo eru nefndar. Eg sá þá eins greinilega og
eg sé nokkurn mann hér inni. Þá hafa verið telmar Ijósmyndir
af framliðnum mönnum, sem mannleg augu hafa ekki greint.
VirSist þá'líka efni eða kraftar notaðir úr miSlum, en lík-
amningin er ekki efniskendári en svo, aS mannsaugað fær ekki
greint hana, þó að ljósmyndaplatan sé svona næm á geislana.
Aragrúi af slíkum myndum hefir þekst. Þá hefir veriS safnaS
saman og rannsakað mjög mikið af frásögnum manna, sem
skygnigáfu hafa veriS gæddir. Eg hugsa, að flestir yðar, sem
hér eruS, hafi þekt skygnt fólk eitthvert sinn á æfinni. Frá-
sögur slíkra manna hafa verið íhugaSar, rengdar og krufð-
ar, og enginn maður, sem vit hefir á, er svo broslegur aS telja
þær allar fjarstæSu. Þær eru vafalaust oft skynvillur, en
fjarri því æfinlega. Þá liefir verið safnað saman sæg af
vottfestum frásögnum um svipasýnir, er óskygnir menn hafa
séð, og án þess aS miSilshjálp virtist notuð. Sérstaklega eru
kynstur af óréngjanlegum frásögnum um svipi, er sést hafa
um þaö leyti, er menn voru aö skilja viS. Er svo aS sjá, sem
sálin eigi sérstaklega hægt með aS taka á sig einlivern efnislegan
búning og birtast jafnvel á fjarlægum stöðuni, meðan hún
<mn nýtur áhrifanna frá sínum eigin fyrri líkama. En það,
sem aS öllu samantöldu hefir vegið þyngst á metunum til
þess aS sannfæra menn um veruleika þessara efna, eru þær
endurminningasannanir, er fengist hafa í gegnum miðla. Þair
hafa verið óendanlega margvíslegar. Fyrst og fremst hafa þeir