Morgunn - 01.06.1926, Síða 93
MORGUNN
87.
fá hann í hendur mönnum, sem nýlega höföu snúist frá
heiðni til kristinnar trúar. Þar var minst á ýmis konar smá-
vægilegan breyskleika postulanna, og menn óttuðust, aö í aug-
um fáfróðra manna mundi það tlraga úr ljómanum af írægö
þeirra, og lotningin fyrir boðskap þeirra mundi þverra við
þaö. Þau eintök, sem til voru, komust öll í hendur nokkurra
heilagra manna, sem fóru til Rómaborgar, til þess aS boða
fagnaðarerindið þar, og hafa öll týnst. En jafnframt er því
lialdið fram í skrifunum, aö mikinn hluta þessara týndu
bóka megi framleiða aftur, og að síðar kunni aS koma saga
:allra tólf postulanna. 1 einni af þessum týndu bókum á að
vera sérstaklega merkileg frásögn um kraftaverk postulanna,
•og fáein þeirra eru sög'S í þessum annál.
„ ,Fullyrt er, a'ö merkilegar sálrænar skýringar
Merkliegar , , , , ,
skýringar seu 1 þessum skritum a ýmsum mattarverk-
um, svo sem komu heilags anda, lausn Péturs
úr fangelsinu o. s. frv. Þá er talin merkileg frásögnin uni
þ<rö, hvernig kirkjan var stofnuð á sameignar grundvelli, og
þá ekki síður skýringar á ýmsum breytingum, sem urðu á
kirkjunni í fyrstu kristninni, á ýmsum örðugleikum liennar,
á þeim vándamálum, sem komu upp í sambandi við lieið-
ingjatrúboðið og þar fram eftir götunum.
Er þetta Þá komum vér aö því mikilvæga atriði, hvort
nokkuð að þetta sé nokkuð að marka. Mikið kemur af
marka? ósjálfráðum skrifum, sem telja sig vera frá-
sagnir um atburði löngu liðinna tíma, og menn láta inn um
annað eyrað og út um liitt, af því að enginn kostur virðist á
að fá það sannað, livort frásagnirnar séu réttar, og af því að
vitanlega kemur svo mikið af ósjálfráðmn skrifum, sem er
marldeysa. En mikil rækt liefir verið við það lögð að rann-
saka þessi skrif. Nafnkunnur enskur rannsóknamaður, sem er
mjög mentaður maður og heitir F. Bligli Bond, hefir verið
viðstaddur, þegar mikiö af þessum Annál hefir skrifast. Bráð-
lega varð hann sannfærður um, aö þessi skrif hefðu mikið
sögulegt gildi, og fyrir því fór hann til ritstjóra eins kirkju-
blaðsins og fór þess á leit við hann, að liann fengi stofnaða