Morgunn - 01.06.1926, Qupperneq 113
MOEGUNN
107
þessi tvívegis komið í hús okkar í mjög æstu skapi, og við
haft reiöiorð allmikil, um og við leigjanda einn í húsinu. YiS
erum þess fullvís, að alls enginn orðrómur liafSi borist út, um
komur þessa manns frá fólkinu í okkar húsi og að hinu leyt-
inu máliö þannig vaxiö, að lítt er liugsanlegt, að hlutaöeig-
andi maður hafi flíkað því.
Nokkuru síSar, á fundi hjá GuSrúnu, segir Friðrik: „Nú
get eg fariS að vitja þín, Olöf, því nú er þetta horfiS úr hús-
inu, sem eg gat um á dögunum. Eg hefi rekið það burtu.“
ÞaS stóö og heima, aS þá var áminstur maður hrettur að lcoma.
Baldursliaga, Yestm.eyjum, 6. apríl 1926.
Marta Jónsdóttir. Ól'óf Olafsdóttir. Agúst Arnason.
UndirritaSur vottar, aö þaS sem liér er liaft eftir Guð-
rúnu konu minni í sambandi vi‘S mig, er nákvæmlega rétt.
Sveinbj. Frifífinnsson.
9.
Frásögn Mörtlm Jónsdóttur.
Eg hefi í mörg ár verið illa haldin af hægðaleysi, sem
heíir ágerst með aldrinum, svo aö nú þessi síöustu ár hefi
eg aldrei liaft hægöir nema með einhverri hjálp, ánnaðlivort
með laxermeöölum eöa grasavatni; en það var líka hætt að
duga. Ilægðirnar komu stundum ekki í 5—7 daga, en eftir
svo langan tíma ekki nema meö afar-miklum verkjum og upp-
köstum; þessu fylgdu afskapleg óþægindi, svo sem: uppþcmba,
svitaköst á nóttunni og svefnleysi. Þá var þaö í desember í
fyrra, að eg leitaði læknis, og lagði hann mér til meðöl, sem
hann sagöi aö ættu aöallega að vera við uppþembunni og
svefnleysinu, en sagði mér aö halda áfram aö drekka sterkt
grasavatn — af heimulurót — sem eg líka gjöröi. Þetta dugði
um tíma, en svo fór aö sækja í sama horfið aftur. Og í febrú-
ar var eg orðin afleit.
Svo var þar 3. marz, aö eg leitaöi til frú Guðrúnar Guð-
mundsdóttur, og baö hana að fá Friðrik huldulækni til að
hjálpa mér, ef þess væri kostur, og lofaöi hún að gjöra þaö.
Nóttina eftir þóttist eg veröa lians vör, og svo aftur tveimur
nóttum seinna — en oftar ekki. Það gjörðist meö þeim hætti,
■sem nú skal greina:
Fyrri nóttina vaknaöi eg við það, aö mér fanst einkenni-
legan hitastraum leggja um höfuö, brjóst og handleggi, og