Morgunn - 01.06.1943, Blaðsíða 52
46
MORGUNN
ardaginn fyrir páska fór hún í sparifötin sín og sagði, að
sín mundi verða vitjað í dag. Það var svo að skilja, að
hún bjóst við að deyja um daginn. En er degi hallaði og
hún var heil heilsu, sagði hún eins og við sjálfa sig: „Það
verður þá ekki ég í þetta sinn, það verður þá annað hvort
barnanna minna“. Þann dag drukknaði Steindór, son henn-
ar, á Skerjafirði. Var sóknarprestinum, séra Sigurði Thor-
arensen í Hraungerði, tilkynnt lát hans, en hann átti að
segja foreldrum hans. Þá er séra Sigurður kom að Odd-
geirshólum þess erindis, var Guðríður ekki við bæinn, hún
hafði gengið á leið með vinkonu sinni. Var sent eftir henni
og sagt, að prestur væri kominn. „Ég veit erindi hans“,
segir hún og fer heim. Prestur kom á móti henni á hlað-
inu og vildi heilsa henni. En hún varð fyrri til máls og
spurði: „Hvort barnanna minna er dáið?“ Hann sagði
henni það væri Steindór. „Ég bjóst fremur við“, sagði
hún, „að það væri Sigríður, hún er heilsulítil. En ég vissi,
að ég var búin að missa annað hvort þeirra“.
Þá er gestir komu að Oddgeirshólum, var Guðríður vön
að bera þeim mat sjálf og leifar af borði. Vissi hún jafn-
an, ef einhver þeirra var feigur, þá gat hún ekki borið
leifar þess manns af borði fyrir einhverri óbeit, sem hún
sjálf skildi ekkert í. Þá er vinnumenn frá Oddgeirshólum
fóru til vers, var Guðríður vön að ganga úr hlaði með
þeim. En einu sinni, þá er vinnumaður, er Oddur hét, fór
í verið, gat hún ómögulega komið sér til þess að fylgja
honum úr hlaðinu fyrir einhverri ósjálfráðri óbeit. Sagði
hún svo, er hann var farinn, að honum mundi ekki aftur-
komu auðið. Það rættist. Hann drukknaði um veturinn.
Stefán, maður Guðríðar, átti reiðhest hvítan að lit,
fyrirtaks gæðing. Þótti honum mjög vænt um hann, og
Guðríði eigi síður. Þar kom, að honum þótti nauðsynlegt
að geta hlíft Hvítingi við og við. Samdi hann þá við Rang-
æing einn, að selja sér efnilegan fola og færa sér hann á
tilteknum tíma. Þenna samning gjörði Stefán án vitundar
Guðríðar. Mun hann hafa hitt Rangæinginn á ferðalagi,