Morgunn - 01.12.1952, Side 3
Úr ýmsum áttum.
★
Með fyrirlestraferðum hefur enginn unnið annað eins
að útbreiðslu spíritismans og Sir Arthur Conan Doyle.
Hann var orðinn stórauðugur maður af bókum sínum,
ekki sízt Sherlock Holmes-sögunum frægu, og hann varði
stórum hluta eigna sinna til ferðalaga víða um heim í
Þjónustu spíritismans. 1 fótspor hans hafa ýmsir fetað og
einkum hafa sumir miðlarnir ferðazt
MiðiII kemur mikið til að kynna málið. Meðal þeirra
til Danmerltur. er enski miðillinn frú Bertha Harris, sem
ferðazt hefur í haust um Norðurlönd,
en koma hennar til Álaborgar í Danmörku varð ýmsum
nftirminnileg. Félagið, sem annaðist móttöku frúarinnar
°g samkomu, fékk einn aðal fundarstað borgarinnar leigð-
an og auglýsti samkomuna með tveggja daga fyrirvara.
Hn þá skarst lögreglustjórinn í leikinn og tilkynnti for-
nianni félagsins, að hann bannaði samkomuna. Formaður-
inn gekk þegar í stað á fund lögreglustjóra og krafðist þess,
að bannið væri tekið aftur. Lögreglustjórinn þóttist bera
fyrir sig einhvern lagabókstaf og kvaðst ekki taka aftur
bannið, nema læknisvottorð fengist um það, að miðillinn
fremdi enga dáleiðslu eða „kastaði sér ekki í trans“! Þessa
fásinnu gat formaðurinn ekki gengið inn á, og fóru leikar
syo, að lögreglustjórinn féll frá banninu með því skilyrði,
að fulltrúi lögreglunnar yrði á sam-
Lögreglan kemur komunni og hefði leyfi til að slíta henni
til skjalanna. óðara og eitthvað gerðist þar, sem
andstætt væri lögum landsins. Við
þeirri kröfu hans var auðvitað með ánægju orðið. Þeir, sem
6