Morgunn - 01.12.1952, Síða 7
MORGUNN
85
lögðu aðaláherzluna á lífernið en ekki trúna, trúarhug-
myndirnar, og boðuðu „hið innra ljós“ sem hina guðlegu
leiðsögn mannssálarinnar. En nafnið, sem þeir bera, „kvek-
arar“, bendir til hins sálræna uppruna hreyfingarinnar.
Það er dregið af ensku sögninni „to quake“, sem þýðir að
skjálfa eða titra, en það gerðu þeir, þegar þeir töluðu á
safnaðarsamkomum undir leiðsögn andans. Ungur að aldri
átti George Fox sína trúarraun. Heimslund kirkjunnar,
andleysi prestanna, trúfræðifjötrar kirkjukenningarinnar,
allt var þetta honum ónóg. Hann leitaði til nokkurra presta
um hjálp út úr ógöngunum. Þeir gátu ekki hjálpað, og
honum varð ljóst, að hann yrði að fara
Hið innra Ijós. sína eigin leið til að finna sannleikann og
finna sálarfrið. 1 einverubæn og við helg-
ar hugleiðingar heyrði hann dularraddir tala til sín, og
innan skamms fór hann að predika opinberlega, og fór
stað úr stað með boðskap sinn. Hann benti á hinn einfalda
boðskap Krists og kenndi, að eins og í frumkristninni ætti
hver maður enn að finna leiðsögn andans, hverjum, sem
leitaði, myndi Guð gefa „hið innra ljós“. Sjálfir nefndu
Kvekarar sig „Vini“ eða „Vinafélagið”, og svo nefna þeir
sig enn. Vegna andstöðunnar við kirkjuna urðu þeir bráð-
lega fyrir áköfum og ruddalegum ofsóknum. Á fyrstu 40
árunum var 14 þúsundum þeirra varpað í fangelsi, og í
fangelsunum létust um 400 af illri meðferð. En ofsókn-
irnar urðu til þess að breiða stefnu þeirra mjög
Ofsóknir. út, ekki aðeins um England, heldur og til ann-
arra landa og vestur um haf. Þegar Fox and-
aðist, hafði hann snúið um 60 þúsundum manna til trúar
sinnar. Trúflokkur þeirra hefur aldrei orðið mjög fjöl-
mennur, og Kvekurum fjölgar ekki. Mun það af mestu
stafa af því, að skipulagningin er eftir eðli hreyfingarinnar
mjög laus og sömuleiðis formið fyrir samkomum þeirra.
Þar er enginn söngur, enginn prestur til að leiða bænirnar,
engin altarisþjónusta og húsin gersamlega skrautlaus og
óbrotin. Hver sá getur staðið upp og talað á safnaðarsam-