Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 8
86
MORGUNN
komum, sem finnur andann gefa sér eitthvað inn til að
segja, og finnur „hið innra ljós“ lýsa sér. En hlutur þessa
fámenna flokks í opinberu lífi Breta er orðinn mikill og
merkilegur. Frá þeim hefur komið margt hinna merkileg-
ustu manna í stjórnmálum og ekki sízt mannúðarmálum.
„Vinur fanganna", hin fræga og mikilhæfa frú Elísabeth
Fry, sem manna mest vann að endurbótum fangelsanna
og allri meðferð fanga, var Kvekarakona. William Penn,
sem stofnaði Pennsylvaníuríkið í Bandaríkjunum og gerði
var eina hina merkustu tilraun, sem gerð hefur verið í
heiminum til að stjórna kristnu ríki, var Kvekari. Svo var
umbótamaðurinn mikli, þingskörungurinn og mælskumað-
urinn John Bright. Marga mætti fleiri telja, eins og stjórn-
málamanninn alkunna, William Wilberforce, sem barðist
fyrir afnámi þrælasölunnar — og sigraði — og aðra. Um
sálrænar gáfur George Fox eru margir vitnis-
Vitranir. burðir. Auk vitrananna, sem hann fékk og
stóðu í beinu sambandi við trúboð hans, sá
hann stundum fyrir atburði, sem sögulega þýðingu höfðu.
Hann sagði fyrir þingslitin eftir „löngu þingsetuna" brezku,
sem alkunn er, tveim vikum fyrr en hún varð. Meðan hann
var í fangelsi sá hann fyrir brunann mikla í London. Hann
var einu sinni í dásvefni — transi — í 14 daga, svo djúp-
um dásvefni, að honum blæddi ekki, og ýmsar sögur eru
sagðar af andlegum lækningum hans. Kvekarar telja upp-
haf hreyfingar sinnar þá, er Fox fékk vitrunina á Pendle-
fjallinu, og hafa því haldið þriggja alda minningarhátíð í
ár. Enginn svo fámennur trúflokkur hefur átt eins marga
afburðamenn og þeir í ensku þjóðlífi, og raunar einnig
fyrir vestan haf.
Island og Norræni 1 ágústmánuði í sumar var haldinn
spíritistafundurinn. hinn árlegi fundur norrænna spírit-
ista, að þessu sinni í Danmörku. —
Frúrnar Soffía Haraldsdóttir og Arnheiður Jónsdóttir sátu
fundinn, og flutti frú Soffía erindi fyrir fundarmönnum