Morgunn - 01.12.1952, Side 9
MORGUNN
87
um sálarrannsóknamálið og spíritismann á íslandi. Af nor-
rænum spíritistablöðum er auðsætt, að fundarmönnum hef-
Ur þótt mikill fengur í erindi frúarinnar. Rolf Carleson,
ritstjóri og einn af forystumönnum sænskra spíritista,
segir frá erindi hennar í sænska tímaritinu Spiritualisten.
Hann lýkur á það lofsorði og leggur áherzlu á, hvílíka
gleði það hafi vakið norrænum spíritistum, að heyra dóttur
Haralds Níelssonar túlka málefnið. Frú Soffía flutti ávarps-
orð fyrsta fundardaginn og ýtarlegt erindi fyrir fjölmenni
í Daníelskirkjunni í Kaupmannahöfn (samkomustað spírit-
ista) síðasta daginn, sem fundurinn stóð.
Með mikilli athygli var fylgt eftir prestskosningunum
í Reykjavík í haust, þegar Reykvíkingar gengu að kjör-
borðinu til að velja sér þrjá nýja presta. Um það voru ekki
skiptar skoðanir, að umsækjendur voru
Rrestar kosnir allir ágætir menn og sumir þeirra í röð
> Reykjavík. fremstu presta í landinu. En um hitt
skiptust skoðanir, sem eðlilegt er, hverja
kjósa bæri. Að mestu leyti munu menn hafa skipzt í flokka
eftir trúmálaskoðunum og kosið í samræmi við það. Enda
var löngu fyrir kosningamar ljóst, hverjar trúarskoðanir
í höfuðatriðum hver umsækjendanna aðhylltist. Kosninga-
úrslitin sýndu greinilega, að meginþorri kjósendanna óskar
ekki eftir prestum, sem fylgja afturhaldsstefnunum. Enda
féllu allir þeir umsækjendur, sem menn töldu slíks von af.
Þó voru hinir íhaldssömu umsækjendur í fremstu röð skoð-
anabræðra sinna, og áttu vegna venzla og frændafylgis
oiikið fylgi víst áður en gengið var til kosninganna. En
þetta dugði þeim ekki. Fólkið í söfnuðunum tók af skarið
og afþakkaði íhaldsömu trúarkenningarn-
Hvert hnígur ar. Aðrar prestskosningar í Reykjavík
straumurinn? hin síðari árin benda einnig til hans sama.
Þetta er ekkert einstakt fyrirbrigði, ekk-
Grt einstakt fyrir Island. Svo að segja hvarvetna um krist-
inn heim er fólkið að fjarlægjast kreddufastar kirkjur og