Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Blaðsíða 10

Morgunn - 01.12.1952, Blaðsíða 10
88 MORGUNN kreddufasta kennimenn, hin „orþódoxu“ sjónarmið eru hvarvetna að eiga æ erfiðara uppdráttar. Þetta er víðast augljóst, t. d. með frændþjóð vorri, Dönum. Þar hefur kirkjan verið æði íhaldsöm um langan aldur, miklu íhald- samari en hugsanlegt er hér á Islandi. Og þar hefur nú á síðari árum komið í ljós mikið fráhvarf frá kirkjunni. Þaulkunnugir danskir kirkjumenn, sem hér voru í sumar, sögðu átakanlegar sögur af því. Og erfiðast eiga nú upp- dráttar þar í landi hin gömlu höfuðvígi „orþódoxíunnar", heimatrúboðið danska og Grundtvigsstefnan. Samt streyt- ast menn enn við að halda í þau form, sem sýnast dauða- dæmd, þær hugmyndir, sem orðnar eru viðskila kynslóð- inni, vegna þess að þær samrýmast ekki nýrri þekkingu. Ber þá þetta þess vott, að trúin sé að deyja og að fram- tíðin muni segja skilið við kristindóminn? Engan veginn, enda væri slíkt það áfall, sem ríða mundi menningunni í vestrænum heimi að fullu. Æ fleiri og fleiri þeirra manna, sem sjá lengst og þyngstar áhyggjur hafa af velferð mann- kynsins, eru að sannfærast um, að sterkari trú þurfi að endurfæðast í kynslóðinni til þess að bjarga kynslóðinni. Margt bendir nú á vaxandi trúarþörf nútímamannsins. En ýmislegt sýnir berlega, að þeirri þörf verður ekki svalað meðan haldið er áfram að klæða kristindóminn í þann gamla búning, sem hæfði fyrri kynslóðum, en er nútíma- manninum fjarlægur. Auðveldara væri fyrir kirkjuna að geta haldið öllu áfram óbreyttu frá því, sem verið hefur, en það er ekki hægt. Fráhvarfið frá hinum gömlu formum sýnir, að það er ekki hægt. Þess vegna er vandinn mikill, sem nú bíður kirkjunnar. Hún þarfnast djarfra siðbótar- manna. Hún þarf nýjan Lúter, nýjan sannleiksvott, sem varðveitir trúareldinn, en er eins óhræddur og siðbótar- hetjan þýzka var við að varpa fyrir borð dauðum formum, úreltum kenningum. Nýlega hefur borizt hingað sænsk útgáfa á þrem fyrir- lestrum próf. Haralds Níelssonar, en útgáfufyrirtækið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.