Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 11
MORGUNN
89
Litteraturförlaget hefur látið þýða og gefur út með leyfi
frú Aðalbjargar Sigurðardóttur. En tvö sænsk útgáfufyrir-
tæki höfðu leitað til frúarinnar
Svíar gefa út erindi eftir leyfi til að gefa út sýnis-
próf. Haralds Níelssonar. horn af erindum próf. Haralds
um sálarrannsóknir. Erindin,
sem þarna eru birt, flutti próf. Haraldur í Kaupmannahöfn
árið 1921, og eru þessi: Egna upplevelser pá det psykiska
omrádet, — Kyrkan och den psykiska forskningen, — og
Om döden, — og ennfremur eftirmáli eftir höfundinn. 1
fyrsta erindinu segir höf. margt frá reynslu sinni af miðils-
gáfu Indriða Indriðasonar, og í öðru erindinu segir hann
margt um kirkjuna og sálarrannsóknirnar, sem mikla og
verðskuldaða athygli lesendanna mun vekja. Vér gleðjumst
yfir því, að sænskir lesendur skuli nú eiga þess kost að
fylgjast með því, sem hinn ágæti frumherji sálarrannsókn-
anna á Islandi lagði til málanna. Hjá því mun naumast
fara, að margir hugsandi menn með Svíum eigi eftir að
leggja frá sér þessa bók þakklátir fyrir það að hafa fengið
hana í hendur.
„Sálrænu fyrirbrigðin
varpa ljósi yfir margt, sem fram að þessu hefur verið
óskiljanlegt í sambandi við upphaf kristninnar. Eftir ró-
loga athugun kemst ég ekki hjá að viðurkenna, að margt
er það í frumkristninni, sem ómögulegt er að skilja, ef
ekki er höfð hliðsjón af fyrirbrigðunum, sem sálarrann-
sóknir nútímans eru að fást við.“
Dr. Westwood, enskur prestur.