Morgunn - 01.12.1952, Síða 13
MORGUNN
91
Hafralónsá, sem skilur sveitirnar Langanes og Þistilfjörð.
Fjórbýli var í Hvammi um þessar mundir, en bæir tveir.
Neðri bær, sem svo var kallaður, stóð á hól, sem gengur
fram úr háum túnhjalla, og líktist mest risastóru nefi.
Allur var hóllinn gróinn, að undanskildum allstórum steini,
sem stóð út úr suðurhlið hans. Var okkur krökkunum sagt
að steinninn væri inngangur að híbýlum álfa, sem í hóln-
um byggju, og ráðlagt að halda okkur sem mest frá hon-
um.
Húsaskipan neðri bæjar var þannig, að tvær baðstofur
sneru stöfnum saman, og voru hvor um sig í tvennu lagi.
I annarri baðstofunni bjó Aðalsteinn Jónasson og kona
hans, Jóhanna Sigfúsdóttir, ásamt börnum sínum, tveimur
gamalmennum og fósturdóttur, Ragnheiði Vigfúsdóttur
að nafni.
1 hinni baðstofunni bjó Jóhann Jónsson, ásamt foreldr-
um sínum, Ólöfu Arngrímsdóttur og Jóni Samsonarsyni,
heiðaskáldinu, er doktor Helgi Péturss nefndi svo, og ritaði
um á sínum tíma.
Nokkru framar en boðstofurnar stóð framhús, jafnlangt
baðstofuhúsinu. 1 öðrum enda þess var búr Aðalsteins. Þá
sameiginlegt hlóðaeldhús. Þá sameiginlegar bæjardyr, og
svo búr Jóhanns í hinum endanum.
Gegnum sundið milli framhúss og baðstofu lágu svo
göng, sem voru sameiginlegur inngangur að baðstofunum,
en í sundinu annars vegar við göngin var sameiginlegt f jós.
öll voru hús þessi byggð úr torfi, en baðstofurnar þilj-
aðar, með skarsúðarþaki, einnig voru búrin þiljuð innan.
Á öndverðum vetri 1913 fór fólk Aðalsteins að taka eftir
hví, að ýmsir hlutir fóru að týnast, eða voru færðir úr
stað, án þess að hægt væri að gera sér grein fyrir orsök-
Urn þess. Var það hó helzt sett í samband við svefngöng-
Ur fósturdóttur þeirra hjóna, Ragnheiðar Vigfúsdóttur.
Hugðist Aðalsteinn helzt taka fyrir þetta með því að
tasa baðstofunni, og lét setja nýjan hengilás fyrir bað-
stofudyrnar. Geymdi hann lykilinn að lásnum undir kodda