Morgunn - 01.12.1952, Blaðsíða 15
MORGUNN
93
gerðust. Hef ég við samning þessa erindis stuðzt bæði við
ofannefnda skýrslu Hjartar, og frásögn annarra ábyggi-
logra sjónarvotta, þar eð skýrsla Hjartar tekur aðeins yfir
t>á daga, sem hann dvaldi að Hvammi, en atburðimir stóðu
mikið lengur yfir.
Eins og gefur að skilja, bárust fréttir af atburðum þess-
Um fljótt um nærliggjandi sveitir, og tók fólk þegar að
streyma að Hvammi til að forvitnast um, hvað þar væri
að gerast.
Eftir að hafa kynnt sér ástandið, rituðu undir skýrslu
Hjartar sem hlutlausa og rétta frásögn þessir menn:
Þorsteinn Þórarinsson, þá bóndi að Laxárdal. (Dvelur nú í Rvík'.
Guðlögur H. Vigfússon, þá vinnum. í Laxárdal. (Nú málari í Rvík.)
Jóhanna Sigfúsdóttir, þá húsfreyja í Hvammi. (Dáin.)
Björn Guðmundsson, þá bóndi að Hallgilsstöðum. (Dáinn.)
Halldór Beriediktsson, þá barnakennari. ((Nú hreppstjóri Sauða-
neshrepps.)
Valgerður Friðriksdóttir, þá vinnukona að Hallgilsstöðum. (Nú í
Reykjavík.)
Jóhann Tryggvason, þá verzlunarmaður, Þórshöfn. (Nú skrif-
stofustjóri í Rvík.)
Jóhann Gunnlögsson, þá hreppstjóri, Þórshöfn. (Dáinn.)
Jóhannes Árnason, þá bóndi að Gunnarsstöðum. (Nú á sama stað.)
Þorlákur Stefánsson, þá í Laxárdal. (Nú bóndi á Svalbarði.)
Aðalsteinn Jónasson, þá bóndi í Hvammi. (Nú á sama stað.)
Pétur Metúsalemsson, þá bóndi á Hallgilsstöðum. (Nú dáinn.)
Guðrún Björnsdóttir, þá vinnukona á Hallgilsstöðum. (Nú dáin.)
Árni Benediktsson, þá vinnumaður á Hallgilsstöðum. (Nú forstjóri
Mjólkursamsölunnar í Rvík.)
Snæbjörn Arnijótsson, þá verzlunarstjóri, Þórshöfn. (Nú dáinn.)
Borghild Arnljótsson, þá verzlunarstjórafrú, Þórshöfn. (Nú dáin.)
Davíð Kristjánsson, þá verzlunarmaður, Þórshöfn. (Nú kaupmaður
í Reykjavík.)
Stefán Guðmundsson, þá vinnumaður í Hvammi. (Nú á Raufar-
höfn.)
Sá atburður, sem einna fyrst vakti verulega athygli, var
sá, að niðri í borðskúffu í baðstofu Jóhanns voru geymdar
Þrjár skeiðar, matskeið úr nikkel, teskeið úr nikkel og te-
skeið úr silfri. Þegar til átti að taka, var búið að þrísnúa