Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 18
96 MORGUNN
heiði, og veitti henni því sérstaka eftirtekt, og öllum
hennar hreyfingum.
Hún var látin bera matardiska framan úr búri. Ekki
þori ég að fullyrða að hún hafi haft diska í báðum hönd-
um, þó minnir mig að svo væri, og gekk ég á eftir henni
inn göngin og í baðstofuna.
Veltur þá skattholið fram á gólfið rétt við tærnar á mér,
en hún var þá komin inn á mitt gólfið, og engir aðrir í
baðstofunni.
Eftir að við höfðum borðað morgunverð, fór Ragnheiður
að þvo húsgólfið, en Jóhanna tók hálstrefil prjónaðan,
sem ég átti, og hafði lagt á borðið í húsinu. Lagði hún
trefilinn fram á skattholið, en þar var skuggsýnt, því að
stungið hafði verið upp í rúðugötin.
Ég var í frambaðstofunni og Jóhanna, og hélt hún á
barni, er var á fyrsta ári.
Þegar Ragnheiður hafði þvegið húsgólfið, kom krakki
inn í baðstofuna, sem hafði hönd á treflinum, og var hann
þá skorinn í þrjá jafnstóra parta og alveg þvert yfir.
Jóhanna telur trefilinn hafa verið heilan, er hún lagði
hann á skattholið, en eftir það horfði ég oftast á Ragn-
heiði, enda hafa þetta ekki verið meira en svo sem tíu
mínútur.
Ég mæltist til þess við Aðalstein, að hann skryppi eða
sendi að Dal, ef þeir bræður þar vildu koma að Hvammi.
Aðalsteinn var svo að búa sig af stað, og kom inn í
framboðstofu og settist á rúm Ragnheiðar til að hafa skó-
skipti.
Með honum kom inn Árni Benediktsson á Hallgilsstöð-
um. Árni settist á rúmgaflinn hjá Aðalsteini, en ég stóð
upp við skattholið, sem var rétt við rúmgaflinn. Kastar þá
Árni húfunni sinni á rúmið ofan við Aðalstein, og hafði
við orð, að máske hefði það gaman af að skera sundur
húfuna sína eins og netið hans Hjartar.
Fórum við svo að rabba saman meðan Aðalsteinn hafði
skóskipti, og stóð það á nokkrum mínútum.