Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Page 19

Morgunn - 01.12.1952, Page 19
MORGUNN 97 Stóð svo Aðalsteinn á fætur og gekk fram, ætlað þá Árni að taka húfuna, en finnur ekki. Máske hefur Aðalsteinn tekið hana í misgripum, segi ég, og fór þá Árni á eftir Aðalsteini, en hann hafði sína húfu. Ég var kyrr á sama stað, svo að enginn gat komið að rúminu, svo að ég ekki sæi. Árni fer svo að leita aftur, en fann ekki húfuna. Fór hann svo húfulaus upp í efri bæinn, að finna Arn- grím, en kom eftir litla stund, sat ég þá í húsinu ásamt Jóhönnu og Ragnheiði. Hafið þið fundið húfuna mína? spurði Árni um leið og hann leit inn í húsið til okkar. Nei, sagði ég, það hefur ekki verið leitað síðan. Máske hún sé á sama stað, segir þá Árni, og grípur húfuna, er lá ofan á rúminu, og var þá skorin sundur frá hnakka að skyggni. Það, sem mig undrar mest, er það, hvernig húfan hvarf af rúminu, af því að við Árni vorum þar báðir, og urðum ekki varir við að nokkur kæmi að rúminu nema Aðalsteinn, sem engum dettur í hug að tortryggja.. Þennan sama dag, hvort það var fyrr eða síðar en það, sem nú var talið, skiptir ekki máli, sat ég í húsinu (en svo nefni ég alltaf tvö afþiljuð stafgólf í enda baðstofunnar), hafði þá um alllanga stund ekkert borið við. Þær sátu t>ar hjá mér, Jóhanna og Ragnheiður. Ætlaði ég að ganga út. Ragnheiður hafði tekið við barn- inu og stóð við húsdyrnar, en Jóhanna fór á undan mér fram fyrir dyrnar. En um leið og ég hafði stigið svo sem tvö fet fram fyrir dyrnar, kom barmómet, er hékk á nagla á stafnþilinu yfir hjónarúminu, í gólfið við fætur hrér, um það bil fimm álnir frá naglanum. Ragnheiður stóð á sama stað með barnið á handleggn- Urn, og enginn annar í húsinu. Barómetið, sem brotnaði svolítið, var síðan ásamt klukkunni borið upp í efra bæinn, fór ég einnig uppeftir og stóð þar við um tíma. 7

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.