Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Side 23

Morgunn - 01.12.1952, Side 23
MORGUNN 101 Jón Samsonarson, sem fyrr er nefndur, og var nú orð- inn blindur, kvaðst mundi sitja á kistunni um daginn, það yrði þá ekki farið í hana án þess að hann yrði þess var. Leið svo fram á daginn, að ekki bar til tíðinda í sam- bandi við leirtauið. En að áliðnum degi varð margt um gesti, eins og jafnan meðan á þessum atburðum stóð, og Þurfti þá að grípa til varaleirsins. En hann kom að litlu haldi, því að þar sem diskar áttu að vera og bollapör, var aðeins hrúga af brotum og dufti. Svo gjörsamlega var það uialað niður. Það skal tekið fram að allan þann tíma, sem leirtauið var í kistunni, vék Jón ekki úr sæti sínu á kistu- lokinu. Enn má nefna atburð, sem svipar mjög til þeirra tveggja, er síðast voru taldir. Eitt sinn ætlaði Aðalsteinn að veita einhverjum af gest- Um sínum úr vínflösku, er hann átti geymda niðri í komm- óðuskúffu, sem þó mun hafa verið ólæst. Flaskan var í venjulegum umbúðum, með hettu yfir stút. Þegar til átti að taka, var flaskan tóm, án þess að Þess sæust nokkur merki, að við hettunni eða tappanum hefði verið hreyft. Undruðust allir mjög, er sáu atburð Þennan, og fannst hann óskiljanlegur. Eitt sinn var yfirfrakki hreppstjórans breiddur yfir eld- húshlóðirnar, þannig að fóðrið sneri að eldinum. Þegar að var komið, var frakkinn óbrunninn, en orðinn mjög heitur. Hlóðarsteinum í eldhúsi, sem eru mjög stórir, eins og Þeir munu kannast við, sem notast við slík eldfæri, var kastað yfir áðurnefnt þil milli eldhúss og bæjardyra, og aha leið gegnum búrþil hinumegin bæjardyranna, eða um 3 m. leið. Einnig var þessum sömu steinum margsinnis velt fram á eldhúsgólfið, ásamt eimyrju úr hlóðunum. Töng hvarf úr eldhúsinu, og var hennar vant nokkra ^aga, þó að henni væri leitað. Þá var það dag nokkurn (líklega 25. febrúar), að kona Ur efri bænum, M. S., sem var að hjálpa Jóhönnu við að Undirbúa veitingar handa gestum, sat framan við hlóðirnar

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.