Morgunn - 01.12.1952, Síða 27
Undir fíkjutrénu,
prédikun eftir séra Jón AuSuns,
flutt í dómkirkjunni 19. sunnudag eftir trinit. 1952.
★
Texti: „Daginn eftir hafði hann í hyggju að fara til
Galíleu, og hittir Filippus; og Jesús segir við hann: Fylg
þú mér! ... Filippus finnur Natanael og segir við hann:
Vér höfum fundið þann, sem Móse hefir ritað um í lög-
málinu og spámennirnir, Jesúm Jósefsson frá Nazaret.
Og Natanael sagði um hann: Getur nokkuð gott verið frá
Nazaret? Filippus segir við hann: Kom þú og sjá. Jesús
sá Natanael koma til sín og segir um hann: Sjá, sannar-
lega er þar ísraelíti, sem ekki eru svik í. Natanael segir
við hann: Hvaðan þekkir þú mig? Jesús svaraði og sagði
við hann: Áður en Filippus kallaði á þig, sá ég þig, þar
sem þú varst undir fíkjutrénu. Natanael svaraði honum:
Rabbí, þú ert guðssonurinn, þú ert ísraelskonungur ...“
Jóh. 1, 44—50.
Natanael er ein af þeim persónum guðspjallanna, sem
koma skyndilega fram á sjónarsviðið, en hverfa jafnskyndi-
'Gga aftur, en mikil saga þeirra er þó stundum sögð í fá-
um orðum. Þessar persónur frumkristninnar koma ein og
eiu fram á sjónarsviðið úr fylkingunum miklu, sem eru
gleymdar og enginn kann lengur að nefna. Gleymdar,
Segjum vér, af því að þér þekkjum ekki sögu þeirra, og
þó er engin mannssál gleymd, þótt hún lifi fyrir utan það
°Segjanlega litla og þrönga svið, sem sjón vor nær yfir.
^illjónirnar, sem lifðu samtíma Natanael, eru oss gleymd-
ar> og þó eru þær til enn og hafa átt sína tvö þúsund ára
Segu einhvers staðar í þeim híbýlum í húsi föður vors,
sem vér þekkjum ekki, og hafa þokazt þar áfram á ókunn-