Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 32
110
MORGUNN
ans, en verður þó að berjast, því að líf þess stefnir að
þeim markmiðum, sem sjálfur hann hefur sett hverri
ódauðlegri sál. Einn þátturinn í handleiðslu hans er sá,
að hann felur helgum þjónum sínum að vaka yfir jarðnesk-
um mönnum. 1 gegn um trúarbók vora, heilaga Ritning,
gengur sem rauður þráður trúin á englana, trúin á það að
vemdandi verur séu oss nálægar. Ég hygg, að vér, sem
hér erum saman, þekkjum Ritninguna svo vel, að ég þurfi
ekkert dæmi að nefna af ótal mörgum bæði úr Gamla
testamentinu og því nýja. Og af nútímareynslunni hafa
fjölmargir sannfærzt um þessa hliðina á handleiðslu Guðs,
bæði í svefni og vöku. Þessir helgu þjónar eiga Krists-
augað: augað, sem sér í gegn um fjarlægðina alla þá, sem
undir fíkjutrénu sitja, alla þá, sem í fjötrum ófullkomleik-
ans eru að berjast harðri baráttu. Englarnir, sem heilög
Ritning talar tíðum um, afstýra ekki öllum vandræðum
vorum. Bæði geta þeir það ekki, þeir tilheyra ekki hinu
jarðneska efni og hafa mjög takmarkað vald yfir því, og
eins er það fráleitt vilji Guðs, en honum þjóna þeir. En
þeir vaka yfir mannsbarninu á jörðunni og reka á þann
hátt erindi Guðs, að þeir anda friði og krafti að sálu bar-
áttubarnsins, þeir starfa í þjónustu hins eilífa kærleika
að því, að veita innblástur guðsbarninu, sem í viðjum
efnisins er að þokast hægum skrefum að takmarkinu, sem
Guð ætlar því að ná.
Margir einstaklingar hafa fundið blessun og styrk, fund-
ið sálarfrið á erfiðustu stundunum í þessari trú. Þessa
hliðina á handleiðslu Guðs hefur þeim orðið auðveldast að
skilja. Þeim hefur fundizt sem himnesk rödd hvíslaði hljóð-
lega í eyra þeim: „ég sá þig, þar sem þú varst undir fíkju-
trénu“. Hverjir veita oss þessa þjónustu? Það vitum vér
ekki til fulls. Stundum þeir, sem elskuðu oss heitast meðan
þeir dvöldu á jörðunni, stundum einhverjir aðrir. En svo
virðist sem allt þetta heilaga starf sé á einhvem dular-
fullan hátt unnið í þjónustu Krists og undir merkjum
hans, að á einhvern hátt standi hann enn á bak við þetta