Morgunn - 01.12.1952, Page 35
Sálarrannsóknirnar og vísindin.
Eftir PALMSTIERNA, barón.
★
Palmstierna barón, höfundur greinar þeirrar, er hér fer á eftir,
er kunnur merkismaður, um alllangt skeið sendiherra Svía í London.
Hann hefur á síðari árum ritað allmikið um sálarrannsóknir og hafa
ritgerðir hans vakið athygli. Greinin, sem birtist hér í lauslegri þýð-
ingu, kom í tímaritinu Light árið 1951. — E. Loftsson.
Eins og sakir standa nú, þykir mér full ástæða vera til
að taka grundvallar vandamál sálarrannsóknanna að nýju
til gaumgæfinnar íhugunar. Vér hljótum þá að spyrja með
sjálfum oss: Er mögulegt að reka sálarrannsóknirnar að
öllu leyti í samræmi við ýtrustu kröfur um vísindalegar
starfsaðferðir?
Brautryðjendur sálarrannsóknanna héldu að vísu fram
þeirri skoðun, að vísindalegar aðferðir bæri að nota við
þessar rannsóknir, en þeir voru jafnframt víðsýnir menn
°g frjálslyndir. Þeir plægðu nýjan jarðveg og söfnuðu
kynstrum af heimildum, áhugasamir um að rannsaka sér-
hvað það, er barst þeim í hendur. Þeir áttu áræði og
dirfsku hins sanna áhugamanns í ríkum mæli og voru
óháðir öllum fræðilegum sjónarmiðum í rannsóknum sín-
Um og athugunum.
Allir höfum vér vafalaust veitt því athygli, að nýtt við-
horf til þessara mála hefur verið að skapazt hægt og hægt
hin síðari ár. Skilyrðislaus neitun á sannleiksgildi alls þess,
sem ekki hafi verið sannað með vísindalegum tilraunapróf-
um,fer þverrandi.Rannsóknastarfið hefur síðustu áratugina
Verið rekið með það sjónarmið í huga, að gera sálarrann-
sóknirnar að sérstakri vísindagrein og kröfurnar um vís-