Morgunn - 01.12.1952, Síða 36
114
MORGUNN
indalegar staðfestingar á þessu eða hinu láta nú stöðugt
meira á sér bera. Sterk og ákveðin löngun eftir því að fá
sveipað um sig skikkju visindamannsins og öðlast sæti
við hlið hans er orðin auðsæ staðreynd. Þau atriði í sál-
rænni reynslu, sem auðveldust eru til endurtekningar og
því hægast að sannprófa með vísindalegum starfsaðferð-
um eru valin til athugunar, tekin fram yfir þau, sem gerast
óvænt og án þess að við þeim sé búizt. Ný fræðileg orð
og hugtök hafa verið mynduð, stundum næsta torskilin,
einatt svo að áhugasömum alþýðumönnum um þessi mál
reynist örðugt að fylgjast með rökræðum um við-
fangsefnin. Stærðfræðilegir mælikvarðar og vísindalegar
skýrslur, sem aðeins útvaldir sérfræðingar mega fara
höndum um, er notað til að sýna niðurstöður rannsókn-
anna. Hið tækni- og fræðilega skipulag, sem viðhaft er,
heldur leikmönnunum í hæfilegri fjarlægð. Starfssviðið
þrengist. Rannsóknastarfið er orðið að einkarétti fárra
útvalinna. Athugunum þeirra, er utan hringsins standa,
er þokað til hliðar og skoðanir þeirra að engu hafðar, séu
þær að einhverju leyti í ósamræmi við hina mörkuðu
stefnu.
Þessi þróun málanna er nú svo langt á veg komin, að
engan veginn getur talizt of snemmt eða ótímabært að
ræða um, hvort hún hafi þegar borið tilætlaðan árangur
eða valdið vonbrigðum, og í öðru lagi, hvort þessar rann-
sóknaraðferðir séu líklegar til að stuðla að öruggri lausn
meginspumingarinnar, sem brautryðjendur sálarrannsókn-
anna skutu sér ekki undan að svara, spumingunni um það,
hvort lífið haldi áfram að loknum líkamsdauðanum.
Ég held að hverjum hleypidómalausum manni megi ljóst
vera, að árangur þessara vísindalegu rannsóknaraðferða
síðustu áratugina hafi orðið jákvæður að vissu marki. Það
er nú vísindalega sönnuð staðreynd, að maðurinn er bú-
inn sálrænum skynhæfileikum, og lengur verður ekki ve-
fengt, að vitundarlíf mannsins er búið hæfileikum til hugs-
anaflutnings, skyggni- og forspárhæfileikum, veruleiki