Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Side 38

Morgunn - 01.12.1952, Side 38
116 MORGUNN rannsóknanna, söfnun gagna og heimilda til flokkunar og röðunar samkvæmt efni og snúum oss að eðliseinkennum þeirra, förum svo að velta fyrir okkur, hvemig þau muni nú gerast í raun og veru, hver sé hugsanleg orsök þeirra og tilefni, þá rekumst vér á örðugleika nýrrar tegundar. Vér vitum þegar t. d. að taka, að til sönnunar hugsana- flutnings- og skyggnifyrirbrigðunum er aragrúi af stað- festum og vottuðum frásögnum, en frá visindalegu sjónar- miði vitum vér svo til ekkert um, hvernig þau gerast, að því undanteknu, að efnisrænar fjarlægðir takmarka þau ekki að neinu leyti. Því hefur þegar verið slegið föstu að efnisatriði þessarar þekkingar, sem þau hafa að geyma, berist inn í vitundina eftir sálrænum leiðum. En — hver er það nú, sem hugsar og sér, sem fær lesið hugsanir, skráð og numið myndir hlutrænna atburða og sagt frá einum og öðrum atvikum, er gerast handan við skynrænt athafnasvið líkamlegra skyntækja og skilningarvita? Er maðurinn ef til vill búinn einhverju líffæri, sem þessu fær afrekað? Getur sennilegt talizt, að visindamanninum takist að uppgötva þetta með venjulegum rannsóknaraðferðum? Auðsætt er þó, að starfs- og greiniorka slíks skyntækis er óháð tíma og rúmi, en hvorki hefur reynzt unnt að staðsetja það eða uppgötva með mælitækjum vísindanna. Sálfræðingarnir tala um sál eða vitund, en þetta eru bara orð, tvíræðrar merkingar og segja ekki hið minnsta. Vér notum einatt orð „til þess að hilma yfir vanþekkingu vora“, sagði Goethe eitt sinn. Hátternisfræðingarnir neita jafnvel með öllu að til sé sérstakt líffæri, er hugsi og skynji áhrif, það, er vér nefnum sál, er aðeins samnefnari eða heildarútkoma þess, er vér reynum og lifum dag hvem. Sálfræðivísindin virðast þess heldur ekki megnug að ráða fram úr gátunni. En alþýðumaðurinn ályktar að sálar- rannsóknimar hafi endur-uppgötvað mannssálina. Vér stöndum andspænis ráðgátu, sem í senn er heimspekilegs, háspekilegs og trúræns eðlis. Oss hefur þegar borið út fyrir hin viðurkenndu landamæri vísindalegra rannsókna.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.